Fréttablaðið - 09.11.2012, Page 1

Fréttablaðið - 09.11.2012, Page 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Föstudagur skoðun 16 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Lífið Jólakort & ljósmyndun veðrið í dag 9. nóvember 2012 264. tölublað 12. árgangur Kynningarblað Netpöntun, netkveðjur, kort frá stíðsárunum, fjölskyldumyndatökur og jólakort Obama. JÓLA ORT FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2012 &LJÓSMYNDUN V ið bjóðum upp á margar gerðir jólakorta, dagatöl, ljósmyndabækur og fleira sem viðskiptavinurinn velur sjálf-ur og setur saman gegnum forritið okkar Pixel designer. Þá tökum við á móti ljósmyndabókum og jóla-kortum sem fólk hefur sett saman í forritinu iPhoto. Einnig er hægt að koma til okkar í Brautarholtið og við setj-um upp jólakortin fyrir viðskipta-vini,“ segir Ingi Hlynur Sævarsson hjá Pixel prentþjónustu.„Umslög fylgja öllum jólakort-um og við bjóðum einnig upp á umslög árituð með nafni. Þá er hægt að senda okkur nafna-listann í Excel-skjali í tölvupósti og við prentum utan á umslög-in nafn viðtakanda og heimilis-fang. Þá þarf ekkert að gera nema smella kortunum í umslag og drífa í póst.“ Pixel designer-forritið er þægilegt og einfalt í notkunForritið er hægt að sækja frítt á heimsíðu okkar, www.pixel.is. Það er einfalt í notkun, hægt er að hlaða niður útgáfum hvort sem er fyrir PC eða MAC og leiðbeining-um um notkun þess í pdf-skjali.„Pixel designer-forritið hefur verið gífurlega vinsælt þau þrjú ár sem við höfum verið með það. Nú er komin ný uppfærsla sem býður viðskiptavinum upp á skemmti-lega tengingu við Flickr og Face-book þar sem meðal annars er hægt að nálgast myndir á þægi-legan hátt. Þó forritið sé mjög einfalt í notkun þá eru allir hér boðnir og búnir að aðstoða fólk og um að gera að hringja í okkur ef fólk lendir í vandræðum,“ segir Hlynur. Styrkja gott málefniÍ ár styrkir Pixel Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna með sölu sérstakra jólakorta. „Sú hugmynd kom upp hér hjá starfsmanni að fyrirtækið styrkti eitthvert gott málefni fyrir jólin,“ segir Hlynur. Með kaupum á SKB jólakorti styrkir kaupandi SKB um 15 krónur, Pixel leggur einn-ig til 15 krónur og þannig renna 30 krónur af hverju korti óskipt-ar til SKB. Styrktarkortið er að finna inni í forritinu Pixel design-er undir heitinu SKB. „Fólk þarf bara að hlaða niður forritinu en þar er að finna allar tegundir og stærðir jólakorta. Til að styrkja félagið þarf svo að velja kort sem heitir SKB.“ Tilbúin í jólaösina„Hjá okkur vinna þrettán manns, allt faglært fólk; prentsmiðir, prentarar og bókbindarar. Við erum komin í jólaskapið og tilbú-in fyrir jólaösina,“ segir Hlynur. „Afhendingartíminn hjá okkur er 3-5 dagar og það er alltaf mikið að gera hjá okkur fyrir jólin. Þó finnst mér fólk hafa verið fyrr á ferðinni síðustu ár með jólakortin en oft áður. Það verða þó alltaf einhverj-ir sem koma á Þorláksmessu með jólakortapöntunina og þá reynum við auðvitað að bjarga því. Í nóvember bjóðum við upp á 15% afslátt af öllum vörum úr Pixel designer. Þar á meðal er boðið upp á jólakort með um-slagi frá 98 krónum stykkið með afslætti. Hið eina sem fólk þarf að athuga er að slá inn afsláttar-kóðann JOL2012 þegar pöntun er framkvæmd í Pixel designer “ Styrkja gott málefniStarfsfólk Pixel komið í jólaskapið og tilbúið fyrir jólaösina. Undirbúningur jólanna hefst hjá Pixel prentþjónustu í Brautarholti 10-14 sem býður upp á alhliða prentþjónustu. Öflugur hópur starfsmanna Pixel prentþjónustu er kominn í jólaskapið og tilbúinn fyrir jólaösina. MYND/ANTON Taílenskur kjúkli M atreiðslumaðurinn Úlfar Finn-björnsson sér um sjónvarpsþátt-inn Eldað með Holta á ÍNN. Þar heimsækir hann marga af færustu kokkum landsins og fær þá til að elda ljúffenga rétti úr Holta-kjúklingi. Í dag er það matreiðslu-maðurinn Sturla Birgisson sem Úlfar heim-sækir. Sturla rekur veislu- og fyrirtækja-þjónustuna Heitt og kalt og er meðlimur Bocuse d‘Or-akademíunnar. Hér færir hann okkur uppskriftir að tveimur réttum; annars vegar er það taílenskur kjúklinga- réttur með rauðu karríi og kókossósu og hins vegar steiktar kjúklingabringur með sveppafylltu ravíólíi og skessujurtarpestói. Hægt er að fylgjast með Sturlu elda þessa girnilegu rétti í kvöld k ukkan 20.30 á sjón- varpsstöðinni ÍNN. Þættirnir verða svo endursýndir yfir helgina. Einnig er hægt að horfa á þá á heimasíðu ÍNN ELDAÐ MEÐ HOLTA HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Á næstunni mun hann heimsækja færustu kokka landsins og fá þá til að elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi. KEISARAKONSERT Í HÖRPU Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari flytur Keisarakonsertinn eftir Beethoven í Eldborgarsal Hörpu í kvöld kl. 19.30. Þetta er síðasti píanókonsertinn sem Beethoven samdi. Þessi tignar- legi konsert gerir miklar kröfur til einl ikarans. Keisara- konsertinn var saminn árið 1809. HEIMILISTÆKI EGILL ÓLAFS HEIMSÓTTUR FRÆGIR Á FRUMSÝNINGU SNIÐUGAR HÁRLAUSNIR 9. NÓVEMBER 2012 DÓMSMÁL Maður sem veitti föður sínum alvarlega áverka sem drógu hann til dauða er nú nauðungarvist- aður á öryggisdeildinni á Kleppi. Hann var metinn sakhæfur af geð- læknum fyrr á árinu og dæmdur til fjórtán ára fangelsisvistar. Í síðasta mánuði var maður- inn nauðungarvistaður á geðdeild Landspítalans við Hringbraut. Hann var þó fljótt metinn það veik- ur að hann þyrfti aukna meðferð, svo hann var færður á öryggis- deildina á Kleppi. Nauðsynlegt er að svipta hann sjálfræði, þar sem hann neitar að sækja meðferð á geðdeild. Hann verður að minnsta kosti sex mánuði inni á Kleppi. Maðurinn, Þorvarður Davíð Ólafsson, er einn nokkurra fanga á Litla-Hrauni sem fangelsismála- yfirvöld telja að þurfi sérúrræði innan kerfisins, en engin sérstök stofnun er fyrir hendi fyrir geð- sjúka einstaklinga sem hafa þó verið metnir sakhæfir fyrir dómi. Þessa fanga verður að vista í fangelsi, en réttargeðdeildin á Kleppi, sem áður var á Sogni í Ölf- usi, er samkvæmt lögum einungis fyrir ósakhæfa brotamenn. Samkvæmt reglum fangelsis- málayfirvalda á að leggja fanga sem veikjast af geðsjúkdómi inn á geðdeild Landspítalans á Hring- braut. Innlögn á öryggisdeild er undantekning sem eingöngu er gripið til ef um mjög veika einstak- linga er að ræða sem neita meðferð. Sigurður Páll Pálsson, yfirlæknir á öryggisdeildinni á Kleppi, segir afar fátítt að geðdeildir LSH taki við föngum af Litla-Hrauni, en það hafi þó gerst. „Ef einstaklingar eru metnir mjög veikir og vilja ekki nauðsynlega þjónustu, þarf að fara þessa leið,“ segir hann. „Aðalatriðið er að fangar fái sömu þjónustu og aðrir þjóðfélagsþegnar og ferlið sé eins hjá þeim og öðrum.“ Margrét Frímannsdóttir, for- stöðukona Litla-Hrauns, segir að komi upp bráðaveikindi hjá föng- um sem kalli á innlögn á geðdeild, sé ferlið auðveldara nú en það hafi verið hingað til. „En við þurfum að skoða hvern- ig við getum bætt aðbúnaðinn og komið á sérstakri deild fyrir sakhæfa geðsjúka einstaklinga,“ segir hún. „Einnig er nauðsynlegt að skoða hvernig verði staðið að mönnun þeirrar deildar og hvort við þurfum að leggja meiri áherslu á menntun fangavarða sem annast geðsjúka fanga.“ - sv Sakhæfur en samt of veikur fyrir fangavist á Litla-Hrauni Fangi af Litla-Hrauni sem hlaut fjórtán ára dóm fyrir morðtilraun er nú vistaður nauðugur á öryggisdeild geðspítalans á Kleppi. Sárvantar úrræði fyrir geðsjúka fanga, segir forstöðukonan Margrét Frímannsdóttir. Ef einstaklingar eru metnir mjög veikir og vilja ekki nauðsynlega þjón- ustu þarf að fara þessa leið. SIGURÐUR PÁLL PÁLSSON YFIRLÆKNIR Á ÖRYGGISDEILD KLEPPS NÝ KILJA Hagkvæm Windows 8 fartölva sem hentar vel fyrir alla hefðbundna tölvuvinnslu. 15,6” skjár, Intel Dual Core örgjörvi, 4GB vinnsluminni og 320 GB harður diskur. ÍÞRÓTTIR „Ég vildi gera mitt besta og fannst skipta mestu máli að vera með góða tækni og sýna fal- legt box. Ég var ekki að reyna að rota andstæðinginn í fyrsta höggi,“ segir Valgerður Guðsteins- dóttir, sem hlaut gullverðlaun í sínum flokki á ACBC-hnefaleika- mótinu í Gautaborg um síðustu helgi. Mótið er það næststærsta sinnar tegundar í heiminum. Valgerður æfði íþróttina á unglingsárunum og ákvað fyrir þremur árum að hefja æfingar að nýju. „Það er eitt og hálft ár síðan ég keppti síðast því það eru bæði fáar konur sem keppa og langt á milli móta,“ segir Valgerður. - sm / sjá síðu 42 Fékk gull í Svíþjóð: Fallegt box skiptir mestuEru þær of stórar? Valskonur taka á móti rúmenska liðinu Zalau í tveimur Evrópuleikjum. sport 38 Brasilískur í fyrra lífi Ingvi Þór Kormáksson fagnar sextugsafmæli með disknum Latínudeildin. tímamót 24 Skrifaði hana sjálfur Davíð Þór Jónsson sendir frá sér einlæga vísindaskáldsögu. bækur 42 STORMUR norðan- og vestan- lands í dag en mun hægari vindur sunnan og austan til. Snjókoma norðanlands en úrkomulítið sunnan til. Hiti frá frostmarki að 5 stigum. VEÐUR 4 3 3 1 10 Uppblásin ímynd á Reki Anna Hallin og Olga Bergman í Listasafni Íslands. menning 30 SAMFÉLAGSMÁL Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur sagt af sér sem stjórnarformaður Hjúkrunarheimilis- ins Eirar. Vilhjálmur tilkynnti stjórn Eirar um ákvörðun sína á fundi í gær. „Þetta er mín persónulega ákvörðun. Ég geri mér grein fyrir því að þetta mál er erfitt og það sem mestu skiptir af minni hálfu er að horfa til framtíðarhagsmuna félagsins, engin önnur sjónarmið mega ráða för,“ segir Vil- hjálmur og heldur áfram: „Að vel íhuguðu máli er það mitt mat að nú sé brýnt að byggja upp traust á ný gagnvart lánardrottnum og skjólstæðingum. Stjórnin ber ábyrgð og ég tel mig vera að axla hana með þessari ákvörðun.“ Erfið fjárhagsstaða Eirar hefur verið til umfjöllunar í fjöl- miðlum síðustu daga en eins og fram hefur komið skuldar hjúkrunarheimilið átta milljarða króna og er tæknilega gjaldþrota. Hefur því verið haldið fram að Vilhjálmur hafi leynt alvarlegri fjárhagsstöðu félags- ins fyrir stjórninni meðan hann var fram- kvæmdastjóri þess, en hann lét af því starfi í upphafi ársins og tók þá við sem stjórnarfor- maður. Sjálfur hefur hann alfarið neitað því að hafa leynt stjórnina upplýsingum. Magnús L. Sveinsson, varaformaður stjórnar Eirar, tekur nú við sem stjórnarformaður. Stjórnin hefur ákveðið að efna til full- trúaráðsfundar á föstudaginn eftir viku þar sem fjallað verður um stöðu hjúkrunarheimilisins og gerð grein fyrir því hvernig stjórnin hafi brugðist við vanda þess. - mþl Gerð verður grein fyrir stöðu Eirar á fulltrúaráðsfundi 16. nóvember: Vilhjálmur hættir í stjórn Eirar VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON KLUKKUM HRINGT GEGN EINELTI Þau Illugi, Ragnar Bjarni, Steinunn og Þórey hringdu kirkjuklukkum Lágafellskirkju í gær. Kirkjan er sú eina á höfuðborgarsvæðinu þar sem klukkum er enn hringt handvirkt en með framtakinu vildu börnin vekja athygli á mikilvægi þess að berjast gegn einelti. Kirkjuklukkum var hringt um allt land klukkan eitt í gær á degi gegn einelti, sem haldinn var í annað sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.