Fréttablaðið - 09.11.2012, Blaðsíða 4
9. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR4
GENGIÐ 08.11.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
226,3703
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,88 128,50
203,87 204,87
162,83 163,75
21,830 21,958
22,245 22,377
19,081 19,193
1,5994 1,6088
195,19 196,35
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
HEILBRIGÐISMÁL Karlmaður á sjö-
tugsaldri, sem hafði dvalið um
skeið í Úganda, leitaði á bráðamót-
töku Landspítalans nýlega vegna
hita og roða út frá sári á fram-
handlegg. Við rannsókn kom í ljós
að flugulirfa svokallaðrar tumbu-
flugu hafðist við í handlegg manns-
ins og var mikil sýking í sárinu.
Í nýjasta tölublaði Læknablaðs-
ins er þessu sjúkdómstilfelli lýst
og er um svokallaða lirfuóværu í
húð að ræða. Lirfuóværa er fyrst
og fremst hitabeltissjúkdómur sem
orsakast af flugnalirfum sem lifa
sníkjulífi í hryggdýrum. Sjúkdóm-
urinn er vel þekktur í mönnum en
einnig algengt vandamál í húsdýr-
um. Maðurinn hafði fengið fjöl-
mörg flugnabit víðs vegar um lík-
amann við dvöl sína í landinu, en
einkenni þeirra hurfu án eftirkasta.
Því dugði þessi eina lirfa til þess að
einkennin voru orðin þetta mikil.
Magnús Gottfreðsson, smitsjúk-
dómalæknir á Landspítalanum,
segir það ekki sérlega óalgengt að
fólk fái húðútbrot eftir dvöl erlend-
is, en lirfuóværa sé fremur sjald-
gæf skýring á slíkum útbrotum.
„Tíðnin fer þó eftir því hvar fólk
hefur dvalist og hve lengi. Þetta er
þó væntanlega ekki fyrsta tilfellið
sem greinist hér á landi, þótt þetta
sé fyrsta tilfellið sem er tilkynnt,“
segir Magnús.
Erling Ólafsson, skordýrafræð-
ingur á Náttúrufræðistofnun, veit
ekki til þess að „tumbu-flugan“ hafi
hlotið viðeigandi íslenskt heiti enn
sem komið er. Spurður hvort um
mikla plágu sé að ræða þar sem
flugan sé landlæg segir Erling að
svo sé. „Já, hún er engin skemmt-
Kom heim frá Úganda með
tumbu-lirfu í handleggnum
Karlmaður leitaði til læknis á Landspítalanum vegna sýkingar. Flugulirfa reyndist vera djúpt í handlegg
hans. Læknar þurfa að vera meðvitaðir um hættu á sýkingum sem þessum vegna tíðra ferðalaga landans.
SÁR Á HENDI Sárið var orðið allstórt og sýkingin mikil. MYNDIR/LÆKNABLAÐIÐ
un fyrir þá sem sýkjast af henni.
Það er aldrei gaman að láta éta sig,
hvorki utan frá né innan,“ segir
Erling.
Í Læknablaðinu kemur fram að
erlendar rannsóknir sýna að eftir
ferð til hitabeltislanda leita 8-19%
ferðamanna til læknis og eru
húðútbrot algengustu umkvört-
unarefnin, auk meltingarfæra- og
öndunarfærasjúkdóma. Upplýsing-
ar í franskri rannsókn, sem tók til
269 ferðamanna með húðvandamál
eftir ferðalög til hitabeltislanda, er
talin lýsandi. Þar reyndist húðskr-
iðlirfusýki algengasta greiningin
(25%), en þar á eftir kom graftar-
húðkvilli í 18% tilfella, klæjandi
húðbólga vegna skordýrabits (10%)
í þriðja sæti og lirfuóværa í húð
(9%) í því fjórða.
Það er mat höfunda greinarinnar
að full ástæða sé til þess að íslensk-
ir læknar viti af tilveru þessar
óværu, ekki síst í ljósi sífellt fleiri
ferðalaga fólks frá Íslandi til hita-
beltislanda. svavar@frettabladid.is
Á sex dögum myndast kýli með hita og roða. Talsvert ónæmissvar getur orðið
umhverfis kýlið og geta sjúklingar fundið fyrir eitlastækkunum, hita og slapp-
leika. Lirfan þarf á súrefni að halda og liggur öndunargat hennar í gegnum
húðina. Frá því svæði getur vessað. Á 8-12 dögum verður lirfan fullþroskuð
og nær þá gjarnan 12-15 millimetra lengd. Lirfan yfirgefur þá hýsilinn, borar
sig niður í jarðveg og púpar sig þar svo úr verður fullorðin fluga.
Lífsferill tumbu-flugunnar í náttúrunni
FLUGULIRFA Það
reyndist vera sjö
millimetra hvít sívöl
lífvera í sárinu.
1
6
2 3
4
5
Fullorðin
fluga
Verpir eggjum á blóðsugu
(oft moskítóflugur).
Blóðsugan smitar sárið
með eggi flugunnar.
Lirfa
þroskast
í holdi.
Eftir að hún nær
þroska fellur hún
úr sári í jörð.
Þar þroskast
lirfan og verður
að flugu.
EGYPTALAND, AP Tawadros annar,
nýkjörinn biskup kopta í Egypta-
landi, segist ekki geta sætt sig
við nýja stjórnarskrá ef of mikil
áhersla verður
lögð á trúmál í
henni.
Þetta bend-
ir til þess að
koptar, sem
eru kristinn
söfnuður, muni
ásamt verald-
lega sinnuðum
Egyptum berj-
ast gegn því að strangtrúaðir
múslímar nái því fram að ísl-
amskri trú verði gert hátt undir
höfði í stjórnarskránni, sem nú
er í smíðum.
Tawadros biskup segir að
koptar hafi árum saman mátt
þola það að vera ýtt til hliðar í
egypsku samfélagi. - gb
Nýr biskup egypskra kopta:
Andvígur trú
í stjórnarskrá
TAWADROS ANNAR
BRETLAND Nær helmingur Breta,
49 prósent, segist myndu greiða
atkvæði með úrsögn úr ESB,
ef slík tillaga væri borin undir
þjóðina. 28 prósent myndu hafna
úrsögn og aðrir eru óákveðnir.
Þetta kemur fram í könnun
sem YouGov opinberaði í gær, en
hlutföllin eru þau sömu og þau
hafa verið síðustu misseri.
David Cameron forsætis-
ráðherra stendur frammi fyrir
klofningi innan síns flokks,
Íhaldsflokksins, í Evrópumál-
um. Hann er mótfallinn þjóðar-
atkvæðagreiðslu, en vill frekar
reyna að semja um breytt hlut-
verk og skyldur Bretlands innan
sambandsins. - þj
Ný könnun í Bretlandi:
Helmingur vill
úrsögn úr ESB
DÓMSTÓLAR Stjórnarformaður
íslenska snekkjusmíðafyrirtæk-
isins Scandic International var í
gær sýknaður af ákærum í máli
á hendur honum sem höfðað var
í Dubai í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum.
Forsaga málsins er sú að fyrir-
tækið hafði unnið mál í Abu
Dhabi þar sem ekki hafði verið
staðið við greiðslur vegna smíði
á snekkju.
Kaupandi snekkjunnar sem
tapað hafði málinu höfðaði þá á
móti mál í Dubai þar sem Bene-
dikt G. Benediktsson, stjórnarfor-
maður Scandic,
var sakaður
um skjalafals.
Greint var frá
því á Vísi að
Benedikt hefði
setið um tíma í
gæsluvarðhaldi
y t ra veg n a
málsins , en
hafi verið lát-
inn laus gegn
greiðslu 1,7 milljóna króna trygg-
ingargjalds.
Dómstóll í Dubai komst svo í
gær að þeirri niðurstöðu að ekki
væru nægar sannanir í málinu á
hendur Benedikt.
„Fallegur, íslenskur fullnaðar-
sigur í rétti dagsins,“ sagði Bene-
dikt eftir að niðurstaðan lá ljós
fyrir, en í umfjöllun Gulfnews.
com er því lýst hvernig bros
færðist yfir andlit hans þegar
dómurinn var kveðinn upp.
Benedikt sagði að þótt dóm-
urinn hefði reyndar varla getað
farið á annan veg hefði verið gott
að koma málinu frá.
Samkvæmt frétt Gulfnews.com
er hægt að áfrýja dómnum innan
fimmtán daga. - óká
Formaður íslensks snekkjusmíðafyrirtækis sýknaður af ásökun um skjalafals:
Fullnaðarsigur fyrir rétti í Dubai
BENEDIKT G.
GUÐMUNDSSON
VIÐSKIPTI Ragna Sara Jónsdóttir
hefur verið ráðin forstöðumaður
samfélagsábyrgðar hjá Lands-
virkjun. Ragna Sara hefur frá
2010 gegnt starfi yfirmanns sam-
skiptasviðs hjá fyrirtækinu en
við því starfi tekur nú Magnús
Þór Gylfason.
Innleiðing á stefnu um sam-
félagsábyrgð verður sérstakt for-
gangsverkefni hjá Landsvirkjun
árið 2013. Segir Hörður Arnar-
son forstjóri að fyrirtækið vonist
eftir því að stefnan skili því betri
samkeppnisstöðu og aukinni
starfsánægju. - mþl
Móta samfélagsábyrgðarstefnu:
Ragna Sara nýr
forstöðumaður
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
21°
13°
10°
10°
8°
13°
9°
9°
23°
11°
22°
11°
22°
6°
10°
13°
5°Á MORGUN
Stormur með S- og
A- strönd annars strekk-
ingur. Dregur úr vindi.
SUNNUDAGUR
Strekkingur allra
austast annars hægari. -2 -2
-4
-4
-4
-1 1
0
-2-2
3
4
3
3
1
1
1
1
0
2
-1
12
23
23
20
18
5
6
4
8
11
10
20
MISSKIPT VEÐUR
Vonskuveður verð-
ur um norðan- og
vestanvert landið í
dag með talsverðri
hríð norðanlands.
Sunnan og austan
til verður víða
þokkalegt veður
fram eftir degi en
vindur vex þar í
kvöld og nótt. Á
morgun dregur úr
vindi seinnipartinn,
fyrst vestanlands.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður