Fréttablaðið - 09.11.2012, Blaðsíða 24
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Úrslitakeppni Boxins, framkvæmda-keppni framhaldsskóla, verður haldin á morgun, laugardag, í
húsakynnum Háskólans í Reykjavík. Þar
munu nemendur þeirra átta framhalds-
skóla sem komust í úrslit leysa ýmsar
þrautir sem reyna á hugvit, verklag og
samvinnu. Frumkvæðið að keppninni
kemur frá Samtökum iðnaðarins að sögn
Guðrúnar Arnbjargar Sævarsdóttur, for-
seta tækni- og verkfræðideildar Háskól-
ans í Reykjavík. „Segja má að markmið
keppninnar sé að kynna og vekja áhuga á
tækni, tækninámi og störfum í iðnaði og
gera um leið verksviti hátt undir höfði.
Ekki veitir af, því að um fjórðungur út-
skrifaðra háskólanema hérlendis útskrif-
ast með tæknimenntun og úr raunvís-
indum en í löndum sem við viljum bera
okkur saman við er hlutfallið um 40%.“
Ekki síður er mikilvægt að sögn Guðrúnar
að vekja athygli framhaldsskólanema
á því hvað viðfangsefni verkfræðinnar,
tæknifræðinnar og tölvunarfræðinnar eru
áhugaverð og spennandi. „Ef ungt fólk er
að velta fyrir sér menntun sem veitir því
tækifæri og nokkuð trygg störf er tækni-
menntun mjög skynsamlegur valkostur.“
SKEMMTILEGAR ÞRAUTIR
Fimm manna lið keppa í þrautabraut
með ýmsum ólíkum þrautum. „Tilgreint
er í hverri þraut hversu margir úr liðinu
taka þátt í lausn þrautarinnar og á hvert
lið að velja aðferðir sem það beitir inn-
an þeirra marka sem gefin eru og skal
liðið vinna eitt að þrautinni. Þrautirnar
eiga að vera þess eðlis að hægt sé að
leysa þær á 30 mínútum. Þær þarfnast
ekki sérstakrar þekkingar en reyna á
hugvit, verklag og að menn séu úrræða-
góðir og lausnamiðaðir.“
Guðrún vill eðlilega ekki gefa upp
hverjar þrautir keppninnar í ár verða
en nefnir sem dæmi að á síðasta ári hafi
nemendur meðal annars þurft að opna
appelsínugosflösku með gröfu og raða
saman QR-kóða og skanna hann inn
þannig að hópurinn kæmist í tölvuleik
sem hann þurfti að klára.
Keppnin er samvinnuverkefni Há-
skólans í Reykjavík, Samtaka iðnaðarins
og Sambands íslenskra framhaldsskóla-
nema en þrautirnar eru unnar í sam-
vinnu samstarfsfyrirtækja og kennara
við skólann. Keppnin hefst kl. 10 á
laugardag og stendur til kl. 17.
ÞRAUTIR LEYSTAR
FRUMKVÆÐI Markmið framkvæmdakeppni framhaldsskólanna er að kynna
og vekja áhuga á tækninámi og störfum í iðnaði.
SKEMMTILEGT
Guðrún Arnbjörg Sæv-
arsdóttir, forseti tækni-
og verkfræðideildar Há-
skólans í Reykjavík.
MYND/STEFÁN
KYNNING Hreindýraborgararnir á Texasborg-
urum við Grandagarð hafa slegið í gegn í haust.
Þeir innihalda 100% gæðahakk úr hreindýrakjöti
frá Snæfelli. Borgararnir eru bornir fram með
kryddsósu, týtuberjarjómaosti, jöklasalati, rauð-
lauk, tómötum og djúpsteiktum lauk. Fransk-
ar kartöflur fylgja að sjálfsögðu með. Vin-
sældir Texasborgara hafa vaxið frá opnun
staðarins í vor. Hamborgararnir
eru heima gerðir og stórir, 140
grömm úr 100% gæðahráefni
án allra aukaefna. Vinsælasta
hamborgara tilboðið okkar er:
TEXASTILBOÐ ALLA DAGA,
Texas ostborgari,
franskar og gos
á 1.390 kr.
HREINDÝRABORGARARNIR
Á TEXASBORGURUM
ÚRRÆÐAGÓÐIR
Verzlunarskóli Ís-
lands sigraði í
keppninni í fyrra.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Söngleikjaunnendur ættu að
hoppa hæð sína yfir framtaki
leikaranna og söngvaranna sem
stíga á svið í Salnum í Kópavogi
í kvöld. Tónleikarnir eru partur
af fjögurra kvölda tónleikaröð
undir nafninu „Ef lífið væri
söngleikur“ og eru þeir aðrir í
röðinni. Hverjir tónleikar hafa
sitt þema þar sem tekin eru
fyrir lög úr mismunandi söng-
leikjum hverju sinni. Í kvöld
verða þekktustu söngleikjum
kvikmyndasögunnar gerð góð
skil, allt frá upphafsmyndum
söngleikja sem komu út á kvik-
mynd til þekktra nútímaverka.
Tónleikarnir höfða því til breiðs
aldurshóps, allt frá ömmu og afa
sem sáu Gene Kelly í Singing in
the Rain, mömmu og pabba sem
rokkuðu við tryllta tóna Johns
Travolta í Grease og yngstu
kynslóðarinnar sem grét yfir
Nicole Kidman í Moulin Rouge.
Það eru leikararnir Bjarni Snæ-
björnsson, Margrét Eir, Sigríður
Eyrún Friðriksdóttir og Orri
Huginn Ágústsson sem eiga veg
og vanda að tónleikaröðinni, en
þau unnu saman í Vesalingunum
sem sýndir voru í Þjóðleikhús-
inu í fyrra. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.00 í kvöld í Salnum í
Kópavogi.
GREASE OG GENE
KELLY Í SALNUM
Það verður líf, fjör og framandi
skemmtun í Gerðubergi á sunnu-
dag. Þá stíga á stokk stolt og
yndisleg börn með leik, dansi og
söng frá Japan, Tékklandi, Litháen,
Spáni, Rússlandi, Filippseyjum,
Portúgal og Taílandi.
Móðurmál – félag tvítyngdra barna
stendur fyrir dagskránni sem er
í senn lífleg og fjölbreytt. Móður-
mál beitir sér fyrir móðurmáls-
kennslu fyrir tvítyngd börn og
hjálpar foreldrum að stofna hópa
þar sem tungumál þeirra er kennt.
Á hverjum tíma eru í gangi margir
hópar og sífellt fleiri tungumál að
bætast við.
Rannsóknir hafa sýnt að börn
sem fá að læra tungumál foreldra
sinna eiga auðveldara með að læra
nýtt tungumál. Með starfinu vill
Móðurmál gefa tvítyngdum börn-
um tækifæri til að læra og viðhalda
eigin móðurmáli og menningu.
Dagskráin stendur frá klukkan 13
til 15. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
er í Gerðubergi 3-5 í Efra-Breið-
holti. Móðurmál er á Facebook og
með heimasíðuna Modurmal.com.
TVÍTYNGT BARNAFJÖR
GLEÐIN UPPMÁLUÐ Það er fátt
skemmtilegra en að syngja og dansa
eins og sjá má á þessum kátu krökkum í
Gerðubergi.
ÚR GREASE Þau þóttu flottust á sínum
tíma, Olivia Newton-John og John
Travolta.