Fréttablaðið - 09.11.2012, Blaðsíða 8
9. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR8
KÍNA, AP Leiðtogar kínverska
Kommúnistaflokksins leggja
áherslu á að vinna gegn spill-
ingu ráðamanna, sem virðist hafa
grafið eitthvað undan tiltrú lands-
manna til flokksins undanfarið.
„Enginn er yfir lögin hafinn,“
sagði Hu Jintao, leiðtogi flokks-
ins, í ræðu sinni á 18. landsþingi
flokksins sem hófst í Peking í gær.
„Ef okkur ferst ekki vel við að tak-
ast á við þetta mál, þá gæti það
reynst flokknum örlagaríkt, og
jafnvel leitt af sér hrun flokksins
og fall ríkisins.“
Á landsþinginu, sem stendur í
viku, lætur Hu af embætti sem
aðalritari Kommúnistaflokksins.
Við tekur Xi Jinping, sem lengi
hefur verið háttsettur í flokknum.
Í mars á næsta ári er svo ráðgert
að Xi taki við af Hu sem forseti
Kína.
Fleiri mannabreytingar eru
fyrir hugaðar á þessu þingi. Meðal
annars taka nýir menn við í níu
manna fastanefnd framkvæmda-
stjórnar flokksins, einni valda-
mestu stofnun flokksins.
Landsþing flokksins eru hald-
in á fimm ára fresti, og þá er öllu
tjaldað til. Farið er yfir starf síð-
ustu fimm ára og næstu ár skipu-
lögð.
Nokkur ólga hefur verið í kín-
versku samfélagi síðustu árin og
gagnrýni á spillta ráðamenn víða
í borgum og bæjum landsins verið
óvenju opinská.
Merki sáust um óánægju lands-
manna meðal annars í gær þegar
konu einni tókst að kasta pappírs-
tætlum upp í loftið á Tiananmen-
torgi í Peking, rétt fyrir utan
Höll alþýðunnar í Peking þar sem
landsþing flokksins er haldið. Um
leið hrópaði konan: „Bófar og ræn-
ingjar“, eins og algengt er að gera
þegar spilltir ráðamenn sveitar-
félaga eru gagnrýndir.
Hneykslismál meðal ráðamanna
hafa verið óvenju áberandi þetta
árið, í aðdraganda þessa flokks-
þings. Þannig var Bo Xilai, einn
æðstu ráðamanna flokksins, rek-
inn úr flokknum og öllum emb-
ættum í kjölfar þess að eiginkona
hans var dæmd fyrir að myrða
breskan kaupsýslumann fyrr á
árinu.
Þessi hneykslismál virðast hafa
veikt stöðu Hus nokkuð, bæði
innan flokks og út á við. Hann
leggur því alla áherslu á að bæta
ímynd sína, meðal annars með því
að hvetja félaga sína til að ráðast
gegn atlögu gegn spillingunni.
gudsteinn@frettabladid.is
Hu hvetur til
atlögu gegn
spillingunni
Að venju er mikið um dýrðir í Höll alþýðunnar í
Peking þegar landsþing Kommúnistaflokks Kína er
haldið. Átjánda þingið frá upphafi hófst í gær.
KASTAR KVEÐJU Á FÉLAGANA Hinn aldni Jiang Zemin, sem var leiðtogi Kína árin
1989 til 2002, mætti á átjánda flokksþing kínverska Kommúnistaflokksins, sem hófst
í gær og stendur í viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hæstiréttur ómerkti í
gær tveggja ára fangelsisdóm yfir
manni sem Héraðsdómur Vestur-
lands hafði kveðið upp yfir manni
fyrir kynferðisbrot gegn tveimur
stúlkum. Grundvallargögn í mál-
inu voru ekki þýdd yfir á móður-
mál mannsins.
Maðurinn er frá Palestínu og
krafðist ómerkingar dómsins
meðal annars vegna þess að hann
hann hefði ekki hlotið réttláta
málsmeðferð fyrir dómi. Túlkur
sem honum var útvegaður hafi
talað annað afbrigði arabísku en
hann og hann því illa skilið hann
við meðferð málsins fyrir dómi.
Þeirri röksemd vísar Hæstiréttur
á bug.
Hæstiréttur ómerkir hins vegar
dóminn vegna þess að ekki verði
séð að grundvallargögn í mál-
inu, til dæmis ákæran sjálf, hafi
verið þýdd fyrir manninn, né hafi
túlkurinn þýtt hana orðrétt fyrir
honum við þingfestingu málsins.
Skýrslur brotaþola og vitna hafi
ekki heldur verið þýddar.
Héraðsdómi er gert að bæta úr
þessu og rétta í málinu aftur. - sh
Tveggja ára níðingsdómur ómerktur í Hæstarétti:
Ákæran ekki þýdd
Kæra Sjálfstæðisfólk!
Ég og stuðningsmenn mínir
bjóðum ykkur velkomin á
opnun kosningaskrifstofu
minnar að Borgartúni 12-14
á morgun, laugardag, kl. 16.
Allir velkomnir. Léttar veitingar
og lifandi tónlist. Sjáumst.
Brynjar Níelsson,
hæstaréttarlögmaður.
UMDEILDIR
PISTLAR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
milljónir manna voru
skráðir félagar í kín-
verska Kommúnistaflokknum
í lok síðasta árs. Um 2.200
þeirra taka þátt í 18. lands-
þingi flokksins.
82