Fréttablaðið - 09.11.2012, Qupperneq 12
9. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR12
Þaru að innleiða
Með því að taka í notkun örgjörvaposa
sem snúa að viðskiptavinum og tengja
þá við afgreiðslukerfið frá Advania
takmarkar fyrirtækið rekstrar-
áhæu tengda kortaviðskiptum.
Advania á tilbúnar posalausnir og
aðstoðar við innleiðingu á örgjörvaposum.
Nánari upplýsingar á www.advania.is/pinnid
eða í síma 440 9428.
örgjörvaposa?
Styrkt umgjörð tölvunnar
hentar vel fólki á ferðinni.
Listaverð 239.990 kr. stk.
1-9 tölvur 159.900 kr. stk.
10+ tölvur 149.900 kr. stk.
DELL Latitude E5430
Öflugur vinnuhestur
á góðu verði
Nánari upplýsingar á www.advania.is/kynningarverd
í síma 440 9010 eða í tölvupósti sala@advania.is
Öll verð eru með vsk.
Tilboðið gildir á meðan birgðir endast.
Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn
13. nóvember næstkomandi, kl. 17.00 á
Stórhöfða 31, gengið inn Grafarvogsmeginn.
MATVÍS félagar
FIMM ÚTVARPS-
STÖÐVAR Í BEINNI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
FRÉTTASKÝRING
Hvernig miðar fjárfestingaáætlun
ríkisstjórnarinnar?
Katrín Júlíusdóttir fjármálaráð-
herra tilkynnti í gær hvernig fjár-
festingum ríkisstjórnarinnar yrði
háttað á næsta ári. Fjárfestinga-
áætlun fyrir Ísland 2013 til 2015
var kynnt í maí.
Samkvæmt
henni átti að
fjárfesta fyrir
16,4 milljarða
árið 2013, en
þeir verða 10,3.
Á fjárlög-
um er gert ráð
fyrir 4,2 millj-
örðum í fjár-
festingar, en sú
upphæð kemur
í gegnum veiði-
gjald. Á fundinum í gær kynnti
Katrín áætlanir um fjárfestingar
fyrir rúmlega sex milljarða króna
sem fá viðbótarframlag á fjárlög-
um. Með því á að skapa störf, efla
fjárfestingu og vaxandi atvinnu-
greinar.
„Þessi nýju verkefni koma til
viðbótar fjármagni til samgöngu-
bóta, nýsköpunar- og rannsókna-
sjóða og sóknaráætlana landshluta
sem veitt var í fjárfestingaáætlun
í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi
og fjármagnað var með tekjum
af veiðigjöldum. Alls verður því
yfir tíu milljörðum króna varið
til verkefna á árinu 2013, í sam-
ræmi við fjárfestingaáætlun fyrir
Ísland,“ segir í tilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu.
Þetta er reyndar ekki alveg í
samræmi við áætlunina, því eins
1.640 milljónir í Land-
eyjahöfn og fangelsi
Veiðigjald, leigutekjur og arðgreiðslur standa undir rúmlega 10 milljarða fjár-
festingu á næsta ári. Það er sex milljörðum lægra en gert hafði verið ráð fyrir.
Lækkun um 6 milljarða frá kynningu áætlunar*
Upphafleg áætlun Framlög
Fjármögnuð m/veiðigjaldi og leigutekjum 5.700 4.200
Samgönguframkvæmdir 2.500 2.500
Rannsóknar- og tækniþróunarsjóður 2.000 1.300
Sóknaráætlun landshluta 1.200 400**
Fjármagnað með arði og eignasölu (nýjar frkv.) 10.695 6.130
Fasteignir 7.057 3.430
Fangelsi 1.000 1.000
Hús íslenskra fræða 800 800
Herjólfur/Landeyjahöfn 1.000 640
Náttúruminjasafn/sýning 500 500
Þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri 0 290
Húsverndarsjóður 200 200
Háskólinn á Akureyri 57 0
Húsafriðunarsjóður 200 0
Leiguíbúðir, framlag í eigið fé Íbúðalánasjóðs 2.000 0
Græna hagkerfið 1.950 1.030
Grænn fjárfestingasjóður 1.000 500
Græna hagkerfið og grænkun fyrirtækja 500 280
Græn skref og vistvæn innkaup 200 50
Orkuskipti í skipum 200 50
Skapandi greinar 938 920
Kvikmyndasjóður 488 470
Verkefnasjóðir skapandi greina 250 250
Netríkið Ísland 200 200
Ferðaþjónusta 750 750
Uppbygging ferðamannastaða 500 500
Innviðir friðlýstra svæða 250 250
Samtals fjármagnað m/veiðigjaldi, leigutekjum, arði og eignasölu:
16.395 10.330
*Í milljónum króna
**Gert var ráð fyrir að sóknaráætlanir yrðu fjármagnaðar af leigutekjum aflaheimilda á
kvótaþingi. Frumvarp um breytt fiskveiðistjórnunarkerfi hefur ekki verið afgreitt.
LANDEYJAHÖFN Stjórnvöld munu fjárfesta í Landeyjahöfn og Herjólfi fyrir 640 milljónir króna árið 2013. Upphaflega var gert ráð
fyrir einum milljarði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
og Fréttablaðið greindi frá í gær
er upphæðin umtalsvert lægri en
gert var ráð fyrir þar. Raunar er
hún enn lægri en blaðið greindi
frá, því það sem verður fjármagn-
að með arði og eignasölu nemur
6,1 milljarði, en ekki 6,2. Þá er
heildarupphæðin ekki 10,7 millj-
arðar, líkt og blaðið greindi frá,
heldur 10,3 milljarðar.
Fjármögnun verkefnanna er
tvíþætt; annars vegar stendur
veiðileyfagjald undir verkefnum
á sviði samgangna og rannsókn-
ar/þróunar og hins vegar stendur
arður og eignasala undir eflingu
vaxtagreina.
Ekki verða settir tveir milljarð-
ar í fjármögnun Íbúðalánasjóðs
vegna leiguíbúða. „Málefni Íbúða-
lánasjóðs og þörf fyrir aukið eigið
fé eru til sérstakrar skoðunar og
verður horft til uppbyggingar
leiguíbúða í því samhengi,“ segir
í tilkynningu frá fjármálaráðu-
neytinu. kolbeinn@frettabladid.is
MOTTA Á CAMERON Í tilefni af mottu-
nóvember, sem haldinn er víða
um heim, var sett yfirvararskegg á
vaxmynd af David Cameron, forsætis-
ráðherra Bretlands, á safni Madame
Tussauds í London. NORDICPHOTOS/AFP
NÝJA-SJÁLAND, AP Vísindamenn hafa
komist að því að tveir hvalir, sem
rak á strönd við Nýja-Sjáland á
gamlárskvöld árið 2010, hafi verið
af einni fágætustu hvalategund
heims.
Í fyrstu var talið að hvalirn-
ir, fimm metra langt kvendýr og
þriggja metra langur kálfur henn-
ar, væru af annarri tegund and-
arnefja, sem algeng er í Suður-
höfum. Þeir voru því urðaðir við
fyrsta tækifæri.
Það var ekki fyrr en sýni, sem
tekin höfðu verið úr þeim, höfðu
verið rannsökuð af vísindamönn-
um sem í ljós kom að þarna hefði
verið blaðtennt andarnefja á ferð-
inni, en sú hvalategund hefur
aldrei sést á lífi.
Tvisvar áður hafa fundist beina-
grindur af þessari hvalategund, en
sáralítið er vitað um lifnaðarhætti
hennar annað en að hún hefst við
á miklu dýpi í Suður-Kyrrahafi og
nærist einkum á smokkfiski.
„Þetta er býsna stórkostlegt,“
segir Ewan Fordyce, prófessor
við Otago-háskólann á Nýja-Sjá-
landi. „Fáar, ef nokkrar, tegundir
spendýra á jörðunni eru fágætari
en þessi.“
Eftir að rannsóknir á sýnun-
um höfðu leitt í ljós sannleikann,
fóru vísindamenn á staðinn til að
grafa upp leifar dýranna. Frekari
rannsóknir hafa síðan staðfest að
þarna er þessi fágæta hvaltegund
á ferðinni.
- gb
Vísindamenn hafa rannsakað tvo hvali sem rak á land við Nýja-Sjáland árið 2010:
Einn fágætasti hvalur heims sást í fyrsta sinn
HVALREKI Á NÝJA-SJÁLANDI Árið 2010 áttuðu menn sig ekki á að þarna væri komin
ein fágætasta hvalategund heims. FRÉTTABLAÐIÐ/AP