Fréttablaðið - 09.11.2012, Qupperneq 30
4 • LÍFIÐ 9. NÓVEMBER 2012
10.00 Þar sem ég er B mínus týpan vakna
ég upp úr klukkan tíu. Ég vakna alls
ekki við klukku því þá fá frumurnar
mínar, þessi 70 billjón stykki, sjokk.
Síðan fer ég yfir drauma næturinnar
því draumarnir eru oft að vara mann
við næstu dögum.
10.30 Set músík á og dansa morgundansinn. Spila
hressandi tónlist sem kemur mér í
stuð eins og til dæmis fótboltalagið
Gerum okkar gerum okkar besta og
Simply the best með Tinu. Ég syng
með hástöfum – það kemur mér
í gírinn. Ég er ekkert sérstaklega
svöng á morgnana en elska pipar-
kökur þessa dagana. Það má þegar
maður er fullorðinn, er það ekki?
11.00 Klukkan ellefu byrj-ar símatíminn. Það er
verið að panta fyrirlestra, skemmt-
anir eða biðja um ráð. Það eru svo
margir sem eiga um sárt að binda
og þurfa að spjalla við Siggu sína.
Svo fer ég með Sigrúnu, sætu dótt-
ur minni, á Gló í Hafnarfirði og fæ
mér alltaf hráfæði, það er ávana-
bindandi. Þetta er gott yin/yang. Ég
byrja á óhollu og fæ mér svo hollt.
13.00 Ég fer síðan með rosalega fallegt fjólu-
blátt efni sem ég keypti í gær í Tvill
til Láru vinkonu sem hannar undir
nafninu Lögbrot. Hún er snillingur en
hún mælir og saumar draumadress-
ið á mig fyrir föstudag því þá er ég
skartgripamódel fyrir Inga í SiGN.
Sýningin er á Hótel Natura Reykja-
vík. Þessi kjóll verður líka notað-
ur á sunnudaginn í Eymundsson á
Skólavörðustíg klukkan 17.30 en
þar verður útgáfupartí á nýju bókinni
minni, TÖFRAÐU FRAM LÍFIÐ, sem
var að detta í búðir í dag. Bókin er
sjálfstætt framhald af bókinni ORÐ
ERU ÁLÖG. Amen fyrir því.
17.00 Gómsætur hryggur eldaður í nýja ofnin-
um mínum. Það er gaman að hafa
hrygg á virkum dögum, það má!
20.00 Öll fjölskyldan saman. Ég, Pétur og
Guðbjörn, synir mínir, og dóttir mín
Sigrún. Það er mikið hlegið og haft
gaman.
24.00 Ég fer seint að sofa, prjóna morgundag-
inn í huganum og sendi þakklæti út
í alheiminn og býð veröldinni góða
nótt.
Annasamur dagur hjá Siggu Kling
Sindri Sindrason bankar upp á hjá Agli Ólafssyni tónlistarmanni, sem býr í fallegu, gömlu
húsi í miðbæ Reykjavíkur, í sjónvarpsþættinum Heimsókn sem er á dagskrá Stöðv-
ar 2 annað kvöld strax að loknum kvöldfréttum. Fjölskylda Egils flutti í húsið fyrir
rúmum þrjátíu árum en þá átti að rífa það enda talið ónýtt. Sem betur fer var
það ekki gert enda meðal fallegustu húsa í bænum.
EGILL ÓLAFS HEIMSÓTTUR
Inni í þessu herbergi er Egill öllum stundum og þarna verður tónlistin til.
Flest húsgögn í húsinu eru erfðagripir frá foreldrum bæði Egils og Tinnu.
Á morgun er 10.11.12
10+11+12=33% afsl af öllum vörum í dag og morgun
Áður 24.990
nú 16.740
Mussur áður 16.990
nú 11.380
Kjóll áður 24.990
nú 16.740
Mussa áður 14.990
nú 9.990