Fréttablaðið - 03.12.2012, Page 10
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
MEINDL
GÖNGUSKÓR
GÆÐI Í GEGN
ÚRVALIÐ ER Í ÚTILÍF.
Hvað kemur þú mörgum stórborgum undir tréð í ár?
22.900 kr.
Verð frá
Flug fram og til baka ásamt sköttum og gjöldum
Gjöf á heimsmælikvarða
WOW gjafakortið er einstök jólagjöf og gildir sem flugmiði fram og til baka með
möguleika á tengiflugi um allan heim.
Þú færð WOW gjafakortið á wow.is.
Höfðatún 12 105 Reykjavík 590 3000 wow@wow.iswww.wow.is
HART BARIST Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Sigmundur og Höskuldur takast á.
Þeir vildu báðir verða formaður flokksins árið 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, hafði auðveldan
sigur í kosningu um efsta sætið á
lista flokksins í Norðausturkjör-
dæmi á tvöföldu kjördæmisþingi í
Mývatnssveit á laugardag.
Sigmundur, sem er sitjandi þing-
maður Reykvíkinga, hlaut tæp 63
prósent atkvæða í efsta sæti listans
en þingmaðurinn Höskuldur Þór-
hallsson um 35 prósent. Þegar
þetta varð ljóst ákvað Höskuldur
að gefa kost á sér í annað sætið
og hlaut þar örugga kosningu, eða
um 67 prósent atkvæða. Sjö sóttust
eftir öðru sætinu á listanum.
Höskuldur kveðst sáttur við
niðurstöðuna. „Ég er bara mjög
ánægður með þá kosningu sem ég
fékk í fyrsta sætið. Þetta er tölu-
vert meira en ég gerði mér vænt-
ingar um í ljósi þess að ég var að
keppa við formann flokksins,“
sagði hann í samtali við Vísi í gær.
Kosningin í fyrsta sætið hafi
verið mjög viðunandi. „En ég get
ekki verið annað en mjög glaður
með þá yfirburðakosningu sem ég
fékk í annað sætið.“
Sigmundur Davíð var líka hæst-
ánægður og kveðst ekki hafa
áhyggjur af því að erfitt verði að
vinna með Höskuldi eftir kosning-
arnar. „Þvert á móti. Ég hef rætt
við Höskuld og það er allt í góðu
á milli okkar. Við stóðum í þessari
kosningabaráttu saman og það fer
vel á með okkur,“ sagði Sigmundur
Davíð við Vísi. - sh
Höskuldur Þórhallsson sáttur við annað sætið:
Sigmundur lagði
Höskuld auðveldlega
1. Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son alþingismaður, Reykjavík
2. Höskuldur Þór Þórhallsson
alþingismaður, Akureyri
3. Líneik Anna Sævarsdóttir
skólastjóri, Fáskrúðsfirði
4. Þórunn Egilsdóttir, odd-
viti, bóndi og verkefnisstjóri,
Vopnafirði
5. Hjálmar Bogi Hafliðason kenn-
ari, Húsavík
6. Guðmundur Gíslason háskóla-
nemi, Fljótsdalshéraði
Sex efstu
SVEITARSTJÓRNIR Fjárhagsáætlun
Kópavogs fyrir árið 2013 var sam-
þykkt í bæjarstjórn í síðustu viku.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Lista
Kópavogsbúa og Framsóknarflokks
segir aðhald í rekstri einkenna fjár-
hagsáætlunina en á sama tíma sé
haldið uppi öflugu þjónustustigi
með hag barnafjölskyldna að leið-
arljósi. Fulltrúar Samfylkingar og
VG segja álögur á fjölskyldufólk í
bænum hækka.
Meirihlutinn segir breyting-
ar á þjónustugjöldum innan verð-
lagsbreytinga. „Áætlunin er breið
sátt um að minnka álögur á fólk-
ið í bænum og
byggja upp sam-
félag þar sem
byggt er á frum-
kvæði og elju-
semi, hvetja til
uppbyggingar og
athafna, en ekki
eingöngu boðið
upp á niðurdrep-
andi og íþyngj-
andi álögur sem
taka mátt frá einstaklingum og fjöl-
skyldum af öllum stærðum og gerð-
um,“ bókaði meirihlutinn.
Á framkvæmdaáætlun bæjarins á
næsta ári er meðal annars bygging
leikskóla í Austurkór, sambýli fatl-
aðra í Austurkór, hjúkrunarheimilis
í Boðaþingi og reiðskemmu á Kjóa-
völlum.
„Sérstök gæluverkefni meirihlut-
ans eru sett í forgang svo sem bygg-
ing stærstu reiðhallar á Íslandi,
glæsibygging Skógræktarfélagsins
í Guðmundarlundi, jólaskreytingar
og árshátíð fyrir starfsfólk bæjar-
ins. Bæjarfulltrúar meirihlutans
telja þau verkefni mikilvægari en
að koma til móts við þá bæjarbúa
sem höllustum fæti standa,“ segir í
bókun Samfylkingar og VG. - gar
Fjárhagsáætlun var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs:
Breið sátt um minni álögur
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON