Fréttablaðið - 03.12.2012, Side 18
FÓLK|
B
yrgi af alls kyns stærðum og
gerðum hafa verið smíðuð í
gegnum tíðina fyrir fólk til að
forða sér í undan hættum af
ýmsu tagi.
SPRENGJUSKÝLI
(E. BOMB SHELTER)
Sprengjuskýli eru hvers konar byrgi
sem vernda fólk fyrir áhrifum sprengja.
Mismunandi tegundir af skýlum vernda
gegn mismunandi árásum og styrk
sprengja. Til dæmis eru loftvarnar-
byrgi (e. air-raid shelter) hönnuð til
að vernda fólk gegn sprengjum sem
varpað er úr flugvélum á stóru svæði.
Þessi byrgi voru algeng í seinni heims-
styrjöldinni.
Sérstök skýli eru til sem vernda fólk
fyrir geislavirkni (e. fallout shelter).
Þau eru með sérstaklega þykka veggi
sem eru gerðir úr efni sem ætlað er
til að hindra geislavirkni frá ofanfalli
sem verður eftir að kjarnorkusprengja
fellur. Mörg þannig skýli voru byggð
á tímum kalda stríðsins til að vernda
borgara.
Enn önnur gerð af sprengjuskýlum
(e. blast shelter) verndar gegn hefð-
bundnari sprengjum. Megintilgangur
þeirra er að veita vörn fyrir höggbylgj-
um og þrýstingi. Þessi skýli eru bæði
ætluð til verndar almennum borgurum
og notuð í hernaði.
STORMSKÝLI
(E. STORM SHELTER)
Stormskýli eða stormkjallari er
neðanjarðarbyrgi sem er hannað til
að vernda fólk frá óveðri, sérstaklega
hvirfilbyljum. Stormkjallararnir eru
algengir í miðríkjum Bandaríkjanna
og suðausturhluta landsins þar sem
hvirfilbyljir eru tíðir.
Skýlin eru neðanjarðar og byggð úr
steypu, múrsteinum og sérstaklega
styrkt með járni til verndar. Storm-
skýlin eru yfirleitt ekki tengd íbúðar-
húsum vegna þess að það er ekki talið
öruggt. Dæmigert stormskýli fyrir eina
fjölskyldu er byggt það nálægt heimili
hennar að auðvelt er að komast þang-
að í neyðartilvikum en ekki svo nálægt
húsinu að húsið eða brak úr því geti
fallið ofan á hurð skýlisins þannig að
fólkið lokist þar inni. Af sömu ástæðu
eru hurðir skýlanna yfirleitt hafðar í
hallandi stöðu frekar en alveg láréttar.
Þá er auðveldara að opna þær þótt
brot eða brak sé ofan á þeim.
ÖRYGGISKLEFI
(E. PANIC ROOM)
Öryggisklefar eru sérstök rammgirt
herbergi á heimilum eða í fyrirtækjum
sem eru ætluð til að veita skjól eða
vera felustaður fyrir íbúana þegar inn-
brot, hvirfilbylur eða önnur ógn steðjar
að. Slíkir öryggisklefar eru yfirleitt
búnir einhvers konar samskiptatækjum
svo hægt sé að vera í sambandi við lög-
regluyfirvöld.
Einföldustu öryggisklefarnir eru
nokkurs konar skápar með sérstaklega
útbúnum lásum og hurðum sem eiga
að þola barsmíðar og fleira. Í sumum
húsum eru göng eða einhvers konar
útgangur úr öryggisklefanum á þaki
hússins.
Dýrari tegund öryggisklefa, sem eru
byggðir í húsum frægra kvikmynda-
stjarna og ríkisbubba, hafa sérstaklega
styrkta veggi og hurðir. Oft er stál og
skothelt gler notað í þá klefa. Sumir
þeirra hafa sérstakt loftræstikerfi og
símatengi.
Í kvikmyndinni Panic Room frá árinu
2002 með Jodie Foster í aðalhlutverki
flýr aðalpersóna myndarinnar og dóttir
hennar í öryggisklefa hússins þegar
þjófar brjótast inn á heimilið og verður
það þeim til bjargar.
HEIMILI
■ ÍRSK HÖNNUN
Írski textílhönnuðurinn Claire-
Anne O‘Brien hefur hannað hús-
gagnalínu úr breskri ull. Línan
nefnist Olann og samanstendur
aðallega af stólum, bekkjum og
kollum. Ullin er fléttuð og hnýtt
og fyrirmyndin veðihnútar og
fléttaðar bastkörfur.
Húsgögnin eru ekki fyllt með
pólýester og svampi eins og
algent er heldur kókoshnetu-
trefjum, ull og fjöðrum.
Pastellitir eru nokkuð áber-
andi hjá hönnuðinum en einnig
karrýgult og appelsínugult.
FLÉTTAÐIR
ULLARKOLLAR
Veiðihnútar og
bastkörfur innblástur
ATHVARF Neðanjarðar
sprengjuskýli í Lettlandi
frá tímum kalda stríðsins.
ÖRUGGUR STAÐUR
TIL AÐ VERA Á
GOTT SKJÓL Alls kyns öryggisskýli eru víða nauðsynleg til verndar gegn vá
af hvers kyns tagi. Sprengjur, stormur og innbrotsþjófar geta ógnað öryggi
fólks og gott að hafa stað til að flýja á þegar hættur steðja að.
KALT STRÍÐ Skýli frá
sjöunda áratugnum sem
ætlað var til verndar gegn
kjarnorkusprengingu.
Þess konar skýli voru vel
útbúin og ætluð til að
íbúar gætu verið þar í
töluverðan tíma.
NORDIC PHOTO/GETTY
Þessi auglýsing er kostuð af:
SKEMMTUN SEM SKIPTIR MÁLI
Í OPINNI DAGSKRÁ Á STÖÐ 2
HÉR FÆRÐU RAUÐU NEFIN:
Hagkaup, Bónus, MP banki,
Te og Kaffi, Domino’s.
www.unicef.is