Fréttablaðið - 17.12.2012, Síða 1

Fréttablaðið - 17.12.2012, Síða 1
FRAMKVÆMDIR „Þetta er stærsta framkvæmd sem við höfum boðið út í langan tíma,“ segir Óskar Valdimarsson, forstjóri Fram- kvæmdasýslu ríkisins sem sótt hefur um byggingarleyfi fyrir Húsi íslenskra fræða við Suðurgötu. Áætlaður byggingarkostnaður nýja háskólahússins er ríflega þrír milljarðar króna. Ríkið leggur til 2,4 milljarða. Afgangurinn kemur úr sjóðum Happdrættis Háskóla Íslands. Húsið er byggt samkvæmt verðlaunahönnun Hornsteina frá árinu 2008. „Við skrifuðum undir hönnunarsamninginn viku eftir að Geir Haarde bað guð að blessa Ísland. Þetta var pínulítið ljós í myrkrinu þá,“ segir Óskar. Að þessu verkefni meðtöldu eru fimm stórverk á leið í útboð hjá Framkvæmdasýslunni fram á vor. Hin eru fangelsi á Hólmsheiði fyrir 2,5 milljarða, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fyrir 1,5 milljarða og tvö snjóflóðaverkefni; upp á 900 milljónir króna á Siglufirði og 300 milljónir á Fáskrúðsfirði. „Þessi fimm verkefni eru yfir átta milljarðar. Það er alveg hell- ingur enda voru verktakarnir ánægðir,“ segir Óskar sem í gær kynnti þeim stöðuna fram undan hjá Framkvæmdasýslunni á fundi með Samtökum iðnaðarins. Óskar segir Hús íslenskra fræða verða boðið út um leið og fjár- lög hafi verið samþykkt. Í húsinu verður Stofnun Árna Magnús sonar í íslenskum fræðum og íslensku- skor Háskóla Íslands. Verk tíminn er ætlaður þrjú ár og raunhæft er að húsið verði tekið í fulla notkun vorið 2016. Sjálf byggingin verður spor- öskjulaga. Utan um bygginguna verður stálhjúpur og á honum verða ýmis tákn tengd handritunum, ger- semum íslensku þjóðarinnar sem geymd verða í kjallara hússins. „Jarðvatnið stendur það hátt að við vorum í vandræðum með að það færi upp á kjallaraveggina – sem við viljum alls ekki þar sem handritin eru fyrir innan. Þannig að við gerðum mjög vistvæna lausn og leiðum allt þetta jarðvatn undir Suðurgötuna og niður í Tjörn þannig að endurnar þar fái ferskara og betra vatn,“ segir Óskar. - gar FRÉTTIR FASTEIGNIR.IS17. DESEMBER 201248. TBL. Heimili Fasteignasala kynnir: Breiðahvarf, glæsilegar sérhæðir í fjórbýlishúsi afhentar fullbúnar án gólfefna. U m er að ræða fjórbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara. Aðkoma að íbúðum er um úti-tröppu frá sameiginlegu bílastæði. Sérafnota-reitur, um 40 fm, fylgir öllum íbúðum og er aðgengi frá íbúðum á annarri hæð að sérafnotareitum um úti-stiga frá veggsvölum við stofur. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallaranum.Íbúðirnar eru 185-205 fm og skiptast í þrjú rúm-góð herbergi. Þar af er hjónaherbergi með sérbaðher-bergi. Stór stofa, borðstofa og eldhús, alls rúmlega 50 fm. Þvottahús er innan íbúðar.Íbúðirnar eru einangraðar og pússaðar að innan, veggir og loft sandspörsluð og gólf vélslípuð. Veggir í kringum bað eru úr rakaþolnu gipsi en aðrir léttir veggir úr tvöföldu venjulegu gipsi. Hitakerfi er blanda af hefðbundnu ofnakerfi og hita í gólfi. Inntök vatns og rafmagns eru í inntaksrými í kjallara. Hita-kerfi er lokað kerfi, heitt neysluvatn er á forhitara. Allir veggir eru fullmálaðir í ljósum lit. Lagt er fyrir sjónvarp og síma í hverju herbergi, ísteyptar dósir fyrir halógenlýsingu á ýmsum stöðum Gólf v ðflotuð tilbúin undir gólf f er 270 cm. Guðbjörg Magnúsdóttir innanhússarkitekt sér um alla hönnun og efnisval.Lóð verður með malbikuðum bílastæðum, frá- gengin samkvæmt teikningu landslagsarkitekts en án gróðurs. Húsið er steinsteypt og einangrað á h bundinn hátt púss ð Glæsiíbúðir við Breiðahvarf Íbúðirnar eru 185-205 fm, hjónaherbergi er með sérbaðher- bergi. Suðurlandsbraut 22 | Opið mán. – fös. frá kl. 9–17 | www.heimili.is Finnbogi Hilmarsson lögg. fasteignasali Stefán Már Stefánsson sölufulltrúi Ásdís Írena Sigurðardóttir skjalagerð Ruth Einarsdóttir sölufulltrúi Bogi Pétursson lögg.fasteignasali Gústaf Adolf Björnsson lögg. fasteignasali Finndu okkur á Facebook Erla Dröfn Magnúsdóttir lögfræðingur Elín Viðarsdó r Lögg. fasteignasali Keilufell elin@fasteignasalan.is Sími: 695 8905 Vegna mikillar sölu vantar eignir á skrá Einbýli innst í botnlanga 5 herbergja, 175,6 fm Endurnýjað eldhús og bað Stór verönd Vel viðhaldin eign SKIPTI Á MINNI EIGN 39,9 m. FRÍTT VERÐMATHRINGDU NÚNA Sylvía G. Walthersdóttirsylvia@re 820 8081 Haukur Halldórsson, hdl.Löggiltur fasteignasali VIKA TIL JÓLA Það styttist óðum til jóla og líklegast hafa margir notað nýliðna helgi til skreytinga. Opið er í verslunum til tíu á kvöldin, sem margir notfæra sér. Ágætt ráð er að klára allt sem gera þarf í vikunni og nota næstu helgi til að njóta fjöl- breytts listalífs. Kammerkór Háteigskirkju heldur óskalagatónleika miðvikudaginn 19. desember í Háteigskirkju. Áhugasömum hefur gefist kostur undan- farnar vikur á að senda óskalög á Kára Allanson, organista og kórstjóra Há- teigskirkju, og nú hefur hann sett saman 17 laga söngdagskrá. Hann segir þetta vera í fyrsta skiptið sem slíkir tónleikar séu haldnir í Háteigskirkju g að til- hlökkun kórmeðlima sé mikil. „Hug- myndin að tónleiku um er fengin að láni há Eyþóri Inga Jónssyni, organista á Akureyri. Hann hefur haldið sambæri- lega orgeltónleika sem tókust mjög vel og voru virkilega skemmtilegir. Þar spil- aði hann ýmis óskalög, meðal annars LÝÐRÆÐISVÆDD TÓNLEIKAUPPLIFUN HÁTEIGSKIRKJA KYNNIR Óskalagatónleikar verða haldnir í Háteigskirkju í næstu viku. Tónleikagestir velja sjálfir lögin sem sungin eru. MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Mánudagur 16 2 SÉRBLÖÐ Fólk | Fasteignir Sími: 512 5000 17. desember 2012 296. tölublað 12. árgangur Fórnarlamba minnst Enn er fátt vitað um tilefni fjölda- morðanna í Connecticut á föstudag. Morðin hafa enn á ný vakið harðar deilur um byssueign almennings. 4 Íslensk frímerki Þýskir frímerkja- safnarar eru áhugasamir um íslensk frímerki. Hægt er að láta búa til sitt eigið frímerki á vefnum. 2 Hættulegar gönguleiðir Öryggi gangandi vegfarenda er minnst á Íslandi af öllum Norðurlöndunum. Merkingar eru oft misvísandi. 8 Stofnun um mannréttindi Unnið er að stofnun sérstakrar mann- réttinda stofnunar á Íslandi. 10 Við skrifuðum undir hönnunarsamninginn viku eftir að Geir Haarde bað guð að blessa Ísland. Þetta var pínulítið ljós í myrkrinu þá. Óskar Valdimarsson forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins. SKOÐUN „Málþóf er sjálfsofnæmi þingræðisins,“ skrifar Guðmundur Andri Thorsson. 17 MENNING Óskabörn ógæfunnar frumsýna jólasýninguna Nóttin var sú ágæt ein í kvöld. 30 SPORT Þórir Hergeirsson náði ekki að gera norska handboltalandsliðið að Evrópumeisturum í gær. 40 OPIÐ TIL Í KVÖLD DAGARTIL JÓLA L O K K A N D I Sölutímabil 5.-19. desember Sölustaðir á kaerleikskulan.is S T Y R K TA R F É L A G L A M A Ð R A O G F AT L A Ð R A Stærsta framkvæmd frá hruni boðin út Hús íslenskra fræða á að kosta rúma þrjá milljarða. Fer í útboð um leið og fjárlög hafa verið samþykkt á Alþingi. Verktakar ánægðir með útlitið, segir forstjóri Fram- kvæmdasýslunnar. Fimm stórverk fyrir átta milljarða á leið í útboð fram á vor. Bolungarvík 0° NA 9 Akureyri -1° NA 6 Egilsstaðir 0° N 8 Kirkjubæjarkl. 0° NNA 5 Reykjavík -2° NA 6 Bjart sunnanlands en snjókoma eða slydda norðan og austan til. Allhvasst með austurströndinni en annars fremur hægur vindur. 4 YS OG ÞYS Það var nóg um að vera í Kolaportinu í gær, nú þegar jólaösin nálgast hápunkt sinn þetta árið. Vöruúrvalið er gríðarlegt í Kolaportinu og hægt að kaupa ýmislegt. Þessi kaupmaður selur til dæmis myndskreyttar flíkur og ljósaskilti í öllum regnbogans litum. Markaðurinn er opinn um næstu helgi en svo ekkert fyrr en á nýju ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. 18-49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Meðallestur á tölublað, jan.-júní 2012. 92% Auglýsing í Fréttablaðinu nær til yfir 92% lesenda blaðanna Lesa bara Morgunblaðið 8% Lesa bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið 28% Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir! Lesa bara Fréttablaðið 64% ALÞINGI Forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, hittir þingflokksformenn klukkan tíu í dag þar sem reynt verður að ná samkomu- lagi um jólafrí Alþingis. Enn er ósamið um þinghlé en aðeins eru þrír dagar eftir á starfs áætlun þingsins á þessu ári. Ásta Ragnheiður ræddi við þingflokks- formenn í gær. „Ég átti óformlegt spjall við formenn og einhverjir töluðu saman. Við verðum að sjá hvað gerist klukkan tíu í fyrramálið [í dag],“ segir Ásta. Hún getur ekki útilokað að þing komi saman á milli jóla og nýárs. „Vonandi tekst okkur að klára þetta fyrir jól. Ég stefni að því.“ - kóp Fundað um þinghlé í dag: Reynt að klára þing fyrir jól ÁSTA R. JÓHANN- ESDÓTTIR BANDARÍKIN, AP Öldungadeildar- þingmaðurinn John Kerry þykir æ líklegri sem arftaki Hillary Clinton í emb- ætti utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann er yfirmaður utan ríkis- málanefndar öldungadeildar- innar og hefur ferðast mikið til Afganistans og Pakistans. Clinton hefur fyrir löngu lýst því yfir að hún ætli ekki að vera annað kjörtímabil í embættinu. Hún hefur undanfarið verið að jafna sig eftir heilahristing sem hún fékk þegar leið yfir hana á heimili hennar í síðustu viku. - gb Clinton hættir um áramótin: Kerry þykir æ líklegri arftaki JOHN KERRY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.