Fréttablaðið - 17.12.2012, Qupperneq 2
17. desember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Brynjólfur, af hverju stafa
óvinsældir stafafurunnar?
„Sjálfsagt stenst stafafuran ekki
stórtæka sveppinn.“
Brynjólfur Jónsson skógræktarfræðingur
bendir á að íslensk stafafura sé góður
jólatrjákostur, sérstaklega þegar átusveppur
leggst á útlendan normannsþin.
SPURNING DAGSINS
FÓLK Ef marka má númera-
standinn í pósthúsinu í Austur-
stræti eru frímerkjasafnarar
burðarás í starfsemi Íslands-
pósts. Þar eru tveir valkostir í
boði þegar númer er tekið fyrir
þjónustu; almenn þjónusta og frí-
merkjasafnarar.
Vilhjálmur Sigurðsson, forstöðu-
maður frímerkjasölu hjá Íslands-
pósti, segir að mest úrval sé fyrir
frímerkjasafnara í Austur stræti,
enda margir ferðamenn þar á
ferð. Frímerkja söfnurum fari hins
vegar fækkandi.
„Því miður er lítið um endur-
nýjun í þessu hobbýi, enda hefur
unga kynslóðin önnur áhuga-
mál eins og tölvur og tölvuleiki,“
segir Vilhjálmur. Þá sé miklu
minna af pósti með frí merkjum
í umferð og fyrirtæki farin að
vélstimpla umslög. „Fyrst og
síðast söfnuðu menn þessu af því
að þetta var á öllum umslögum
áður fyrr.“
Íslandspóstur rekur þó enn sér-
staka frímerkjadeild. Frímerkja-
salan varð til 1930 og þar starfa
tíu manns við að gefa út frí-
merki og selja til safnara í yfir
85 löndum. Íslensk frímerki eru
sérstaklega vinsæl í Þýskalandi.
Reynt hefur verið að blása lífi í
áhuga á frímerkjum með Merki-
lega klúbbnum, en í honum eru
nú á bilinu 600 til 700 börn.
„Við gefum út upplýsingablað
í 13 þúsund eintökum, þannig að
það er enn áhugi fyrir þessu. Það
fer þó sennilega að síga á seinni-
hlutann hvað þessa uppfinn-
ingu frá 1840, sem frímerkið er,
varðar.“ kolbeinn@frettabladid.is
„Þetta er mjög vinsælt, en þetta er náttúru-
lega lúxusvara og það þarf að borga meira
fyrir frímerkið,“ segir Ágústa Hrund Stein-
arsdóttir, forstöðumaður markaðsdeildar
Íslandspósts, en hægt er að láta prenta
frímerki eftir fjölskyldumyndum eða hvaða
myndum sem verða vill. „Þetta gefur extra
„töts“ á umslagið og gerir það persónulegra.
Það er merkilegt að vera á frímerki.“
Fyrirtækið hefur boðið upp á þessa
þjónustu í nokkur ár og Ágústa segir að
vinsælast sé að setja fjölskyldumyndir á
frímerkin, eða myndir af gæludýrum. Þá
er einn viðskiptavinur duglegur að setja
myndir af formúlubílum á frímerkin, að
sögn Ástu. „Þá kom beiðni um að fá mynd
af Hitler á frímerki, en það var ekki leyft.“
Vildi Hitler á frímerki en fékk ekki
ÁGÚSTA HRUND
STEINARSDÓTTIR
Formúlubílar, börn
og dýr á frímerkin
Sex milljónir íslenskra frímerkja eru gefnar út á hverju ári. Eru vinsæl hjá söfn-
urum víða um heim. Frímerkjasafnarar fá sérstaka þjónustu í pósthúsinu í Austur-
stræti, en þeim hefur fækkað mikið. Nú er hægt að láta búa til sitt eigið frímerki.
EGYPTALAND, AP Stuðningsmenn Mohammeds Morsi
Egyptalandsforseta fullyrtu í gær að ný stjórnar-
skrá hefði verið samþykkt í fyrri umferð þjóðarat-
kvæðagreiðslu á laugardaginn.
Sjö egypsk mannréttindasamtök segja þó eftir-
liti með kosningunum hafa verið ábótavant. Þess
vegna verði að endurtaka fyrri umferðina og
gæta þess að sömu mistök verði ekki gerð í seinni
umferð, sem haldin verður 22. desember.
„Eru kosningar sem haldnar eru án fullnægjandi
eftirlits dómsyfirvalda, með takmörkuðum öryggis-
ráðstöfunum og öllu því ofbeldi og lögbrotum sem
við höfum orðið vitni að leiðin til stöðugleika eða
leikur að örlögum landsins?“ spurði Mohammed el
Baradei, einn þekktasti leiðtogi umbótahreyfingar-
innar í landinu, á Twitter-síðu sinni.
Nærri tvö ár eru liðin síðan uppreisn almennings
gegn stjórn Hosni Mubarak hófst í Egyptalandi, í
beinu framhaldi af sams konar mótmælum í Túnis.
Morsi tók við forsetaembættinu síðastliðið sumar
og hefur reynt að hraða afar umdeildum stjórnar-
skrárbreytingum. - gb
Sjö mannréttindasamtök í Egyptalandi vilja endurtaka kosningu:
Ný stjórnarskrá sögð samþykkt
ATKVÆÐI TALIN Egyptar greiddu atkvæði í fyrri umferð um
stjórnarskrá á laugardaginn. NORDICPHOTOS/AFP
EVRÓPUMÁL Viðræður munu hefjast
um tvo kafla, efnahags- og pen-
ingamál og byggðastefnu, á ríkja-
ráðstefnu Íslands og ESB sem fer
fram í Brussel á morgun, þriðju-
dag. Þetta herma heimildir Frétta-
blaðsins en þá er einnig útlit fyrir
að viðræðum ljúki með bráða-
birgðasamkomulagi í kaflanum um
samkeppnismál.
Ríkjaráðstefnan á morgun er sú
sjötta í röðinni og ef þróun mála
verður með þessum hætti hafa
viðræður hafist um 23 kafla af 33
og bráðabirgðasamkomulag náðst
um ellefu. Samningsferlið gengur
þannig fyrir sig að ESB-ríkin skila
rýniskýrslu þar sem íslensk löggjöf
er metin með tilliti til lagabálks
ESB. Íslensk stjórnvöld og ESB
leggja svo fram samningsafstöðu í
hverjum kafla fyrir sig.
Af hálfu Íslands liggur afstaða
fyrir í 28 köflum og munu því
fjórir kaflar standa út af eftir
þessa ríkjaráðstefnu ef fram fer
sem horfir.
Viðræður hafa ekki enn hafist
í veigamestu köflunum, það er
sjávar útvegi og landbúnaði, en ESB
hefur ekki enn skilað rýniskýrslu
um sjávarútveginn. - þj
28 kafl ar í
samningsferli Íslands og
Evrópusambandsins eru
afgreiddir þannig að afstaða
Íslands liggur fyrir.
Sjötta ríkjaráðstefna Íslands og Evrópusambandsins hefst á morgun:
Tveir kaflar teknir til umræðu
HAFNARFJÖRÐUR Bæjarráðs-
fulltrúar Samfylkingar og Vinstri
grænna segja ekki grundvöll til
að fara í viðræður um sam einingu
við Kópavog og Garðabæ þar sem
bæjarstjórn Garðabæjar hafi
þegar hafnað hugmyndinni.
Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins sögðu miður að um leitan
Kópavogs um viðræður hefði
verið hafnað án frekari skoðunar
í hópi fulltrúa í Hafnarfirði. Í
bæjar ráði Kópavogs tók fulltrúi
VG í svipaðan streng. - gar
Hafnarfjörður og Garðabær:
Sameinast ekki
Kópavogi í bráð
SAFNARAR OG HINIR Frímerkjasafnarar fá sérstaka þjónustu í pósthúsinu við
Austurstræti, sem og í höfuðstöðvum Íslandspósts. Um 13 þúsund manns fá sent
upplýsingablað um frímerki frá fyrirtækinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐURKENNING Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti í gær
verðlaun og viðurkenningar í ratleik Forvarnardagsins. Athöfnin fór
fram á Bessastöðum að viðstöddu fjölmenni. Verðlaunahafarnir eru
grunn- og framhaldsskólanemendur frá Akranesi, Neskaupstað og
Reykjavík.
Forvarnardagurinn er haldinn árlega að frumkvæði forseta Íslands.
Dagurinn byggir á niðurstöðum íslenskra rannsókna sem sýna hvaða
ráð duga best til að koma í veg fyrir að ungmenni neyti fíkniefna. - sm
Forseti veitti viðurkenningar í tilefni forvarnardagsins:
Verðlaun afhent á Bessastöðum
VERÐLAUNAHAFAR Aðalheiður Aðalsteinsdóttir úr Breiðholtsskóla, Daníel Eldar
Jónsson úr Heiðarskóla í Leirársveit og Þorvaldur Marteinn Jónsson úr Nesskóla
ásamt forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, á Bessastöðum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
PALESTÍNA Salaam Fayyad, for-
sætisráðherra Palestínu, hefur
hvatt samlanda sína til að snið-
ganga vörur frá Ísrael í mót-
mælaskyni við að ísraelsk stjórn-
völd neita að láta af hendi skattfé
sem venja er að Palestína hljóti.
Ísraelsk stjórnvöld hættu við að
láta féð af hendi eftir að stuðn-
ingur við málstað Palestínu-
manna varð víðtækari á alls-
herjar þingi Sameinuðu þjóðanna
í síðasta mánuði.
Palestínumenn hafa hingað til
nýtt peningana til að greiða laun
opinberra starfsmanna.
- sm
Ísrael heldur að sér fé:
Vilja sniðganga
ísraelskar vörur
VÍSINDI Tegund gerla sem uppgötv-
aðist í vatni tuttugu metra undir
yfirborði íshellunnar á Suður-
skautslandinu gæti varpað ljósi á
líf á öðrum hnöttum.
Aðstæður í heimkynnum þessa
lífvera eru ólíkar öllu öðru hér á
jörð. Sólarljóss nýtur ekki, súrefni
er af afar skornum skammti og
seltumagn er afar hátt. Þess vegna
þurfa gerlarnir að draga fram lífið
á annan hátt, og er talið að ákveð-
in efnahvörf myndi þá orku sem
til þarf. Eru aðstæðurnar taldar
líkjast því sem gæti verið á Mars
og víðar í sólkerfinu, sem gefur
von um að örverur finnist þar. - þj
Líf á öðrum reikistjörnum?:
Gerlar gefa von
um upplýsingar