Fréttablaðið - 17.12.2012, Qupperneq 4
17. desember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
BANDARÍKIN Adam Lanza var með
nógu mikið af skotfærum til að
myrða mun fleiri börn en hann
gerði á föstudagsmorgun, þegar
hann réðist inn í Sandy Hook-
barnaskólann í smábænum New-
town í Connecticut.
Hann svipti sig lífi þegar
fyrstu lögregluþjónarnir birtust
eftir að hafa myrt tuttugu börn
í tveimur skólastofum. Öll voru
þau á aldrinum sex til sjö ára.
Tólf þeirra voru stúlkur en átta
drengir.
Hann myrti einnig sex konur,
þar á meðal skólastjórann
Dawn Hochsprung og skólasál-
fræðinginn Mary Sherlach. Vitni
segja þær báðar hafa reynt að
stöðva árásarmanninn.
Tvö barnanna létust á sjúkra-
húsi stuttu eftir árásina. Ein
manneskja liggur særð á sjúkra-
húsi og hefur rætt við lögreglu.
Lanza notaðist við hálfsjálf virkan
hríðskotariffil en hafði einnig tvær
skammbyssur meðferðis.
Árásin gekk hratt yfir og flest
fórnarlömbin urðu fyrir fleiri en
einu skoti. Allt að ellefu byssu-
kúlur fundust í sumum líkanna.
Í fyrstu var talið að árásar-
maðurinn væri Ryan Lanza, 24 ára
bróðir hins tvítuga Adams Lanza,
en sá misskilningur stafaði af því
að lögreglan fann skilríki Ryans á
líki bróður hans í skólanum.
Áður en Adam réðst inn í skól-
ann byrjaði hann á því að myrða
móður sína, Nancy Lanza, á heim-
ili þeirra. Foreldrar Adams skildu
árið 2008 og bjó hann hjá móður
sinni, sem var með töluvert safn
af skotvopnum á heimilinu. Hún
er sögð hafa haft mikinn áhuga
á byssum og reglulega farið með
syni sína á skotæfingar.
Faðir Adams, Peter Lanza, frétti
ekki af gjörðum sonarins fyrr en
hann kom heim til sín að loknum
vinnudegi þar sem blaðamenn biðu
hans.
Í fjölmiðlum voru í fyrstu mis-
vísandi frásagnir af því hvort það
hefði verið faðir hans eða móðir
sem Adam myrti. Þá reyndist ekk-
ert hæft í því að móðir hans hefði
verið kennari við skólann.
Adam Lanza þótti afar einrænn
og klaufalegur í samskiptum við
fólk, en hafði aldrei komist í kast
við lögin eða orðið til vandræða í
skóla. Hann fékk góðar einkunnir,
einkum í vísindagreinum, en átti
það til að loka sig af eða láta sig
hverfa og var þá oft kallað í móður
hans til að ræða við hann.
Enn hafa engar skýringar
fengist á því hvað honum gekk til
með því að myrða börn og konur
í barnaskóla. Þeir sem þekktu
til hans segja ekkert hafa bent
til þess að hann væri ofbeldis-
hneigður. Flestar skotárásir í
bandarískum skólum síðustu ára-
tugina hafa verið framdar af hlé-
drægum einförum, sem ekki þóttu
líklegir til slíkra voðaverka.
gudsteinn@frettabladid.is
Aldrei komist í kast við lög
Enn er fátt vitað um tilefni fjöldamorðanna í Newtown á föstudag. Árásarmaðurinn Adam Lanza var með skil-
ríki bróður síns á sér. Móðirin hafði mikinn áhuga á skotvopnum og fór reglulega með syni sína á skotæfingar.
Barnamorðin í Connecticut hafa enn á ný vakið upp heitar deilur um
byssueign almennings í Bandaríkjunum. Slíkar deilur vakna jafnan í kjölfar
fjöldamorða af þessu tagi, sem hafa orðið æ tíðari síðustu ár og áratugi.
Sterk hreyfing hefur verið fyrir því í Bandaríkjunum að það sé stjórnar-
skrárvarinn réttur hvers manns að eiga skotvopn til að verja sig. Þessi
hópur telur að lausnin á þessum vanda sé að fleira fólk fái sér byssur.
Þannig sagði Louie Gohmert, þingmaður Repúblikanaflokksins, í viðtali við
Chris Wallace á sjónvarpsstöðinni Fox: „Chris, ég vildi að hún hefði verið
með M4 á skrifstofunni sinni,“ og átti þar við skólastjórann í Sandy Hook-
barnaskólanum.
Nú virðast þingmenn beggja flokka hins vegar ætla að láta reyna á hvort
þingið muni loks samþykkja hertar reglur um byssueign. Tveir öldunga-
deildarþingmenn, þau Joe Lieberman og Dianne Feinstein, segja kominn
tíma á að banna almenna sölu stærri skotvopna, sem ætluð eru í hernað.
Demókratinn Feinstein ætlar að leggja fram frumvarp þess efnis í byrjun
þings á næsta ári og reiknar með stuðningi Baracks Obama forseta.
Borgarstjórinn í New York, repúblikaninn Mike Bloomberg, hvetur
einnig til þess að „þetta brjálæði“ verði stöðvað og skorar á stjórnvöld
að setja strangar reglur um byssueign. Hann segir að áhrif samtaka
byssu eigenda í bandarískum stjórnmálum séu gífurlega ofmetin: „Það er
kominn tími til þess að forsetinn taki forystuna í þessu máli.“
Umdeild krafa um almenna byssueign
SORG Í NEWTOWN Fjöldi manns hefur komið með blóm til minningar um hina
látnu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ADAM LANZA Það var hinn tvítugi
Adam Lanza sem framdi morðin, ekki
24 ára gamall bróðir hans, Ryan.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Björt Ólafsdóttir mun
leiða lista Bjartrar framtíðar í
Reykjavíkurkjördæmi norður í
komandi þingkosningum. Hún
hefur sagt af sér formennsku í
Geðhjálp vegna framboðsins.
Framboðslistar Bjartrar fram-
tíðar í Reykjavíkurkjördæmunum
tveimur liggja fyrir, en Róbert
Marshall alþingismaður mun
leiða lista flokksins í Reykjavík
suður. Þetta staðfesti Atli Fannar
Bjarkason, framkvæmdastjóri
flokksins, við Fréttablaðið í gær.
Óttarr Proppé verður í 2. sæti í
Reykjavík suður og Heiða Kristín
Helgadóttir í 2. sæti í Reykjavík
norður. - bþh
Framboð Bjartrar framtíðar:
Björt og Róbert
leiða í Reykjavík
JAPAN, AP Shinzo Abe fær annað
tækifæri til að stjórna Japan
eftir að flokkur hans, Lýðræðis-
legi demókrataflokkurinn, hlaut
þingmeirihluta í kosningum sem
haldnar voru um helgina.
Abe var forsætisráðherra á
árunum 2006 til 2007 en síðan þá
hafa sex forsætisráðherrar setið
í Japan. Abe heitir því að standa
harður gegn Kínverjum í deilum
ríkjanna um yfirráð yfir smá-
eyjum í hafinu á milli þeirra. - gb
Hægrimenn sigra í Japan:
Abe kominn
með meirihluta
SHINZO ABE Fær annað tækifæri til að
stjórna í Japan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
227,2685
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,26 126,86
203,66 204,66
165,1 166,02
22,124 22,254
22,41 22,542
18,88 18,99
1,5083 1,5171
193,95 195,11
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
14.12.2012
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
MARKAÐUR
NETHYL 2, ÁRBÆ
ÓDÝR LEIKFÖNG
OG GJAFAVARA
LÍMMIÐAR ...................................... 100 KR
GJAFAPAPPÍR ................................. 100 KR
JÓLA- OG GJAFAPOKAR .............. 100 KR
GAMLA GÓÐA MÚSÍKIN ...... 500-700 KR
MIKIÐ ÚRVAL OG GOTT VERÐ
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 11-22 TIL JÓLA
SÍMI 869-1522
Erum á Facebook
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Miðvikudagur
Vaxandi austanátt, strekkingur eða
hvasst sunnan til.
BJARTVIÐRI verður sunnanlands í dag og á morgun en snjókoma eða slydda norðan
til. Á miðvikudag vex vindur um sunnanvert land með rigningu en á sama tíma verður
væntanlega úrkomulaust á norðanlands.
0°
9
m/s
0°
9
m/s
-3°
6
m/s
1°
7
m/s
Á morgun
Fremur hæg norðlæg átt víða en hel-
dur meiri vindur á Vestfj örðum.
Gildistími korta er um hádegi
5°
1°
5°
3°
1°
Alicante
Aþena
Basel
20°
17°
5°
Berlín
Billund
Frankfurt
4°
4°
9°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
5°
3°
3°
Las Palmas
London
Mallorca
23°
9°
18°
New York
Orlando
Ósló
10°
26°
1°
París
San Francisco
Stokkhólmur
10°
15°
1°
0°
5
m/s
3°
20
m/s
0°
8
m/s
1°
8
m/s
-1°
6
m/s
0°
7
m/s
-5°
6
m/s
-1°
1°
-1°
0°
0°
STJÓRNSÝSLA Umhverfisráðherra hefur fram-
lengt frest til að sækja um undanþágu frá
ákvæðum nýrrar byggingarreglugerðar.
Fresturinn átti að renna út um áramót en
nú verður hægt að fá undanþágu til 15. apríl
næstkomandi.
Nýja byggingarreglugerðin tók gildi í
febrúar síðastliðnum, og voru þar gerðar
talsverðar breytingar á kröfum sem gerðar
eru til húsbygginga. Ákvæði í reglu gerðinni,
sem hagsmunaaðilar segja að myndu hækka
byggingarkostnað um nærri 10 prósent að
jafnaði, hafa verið afar umdeild, eins og
Fréttablaðið hefur greint frá.
Ný og uppfærð reglugerð hefur nú tekið
gildi þar sem breytingar hafa verið gerðar
til að koma til móts við óskir hagsmuna-
aðila meðal annars um einangrun og rýmis-
stærðir.
Markmiðið með því að framlengja frestinn
til að fá undanþágu frá reglugerðinni er að
gefa frekara ráðrúm til samráðs við hags-
munaaðila, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá umhverfisráðuneytinu.
Mikið álag hefur verið á byggingarfulltrúa
sveitarfélaganna undanfarið þar sem margir
hafa sótt um að fá undanþágu áður en heim-
ild til þess átti að falla úr gildi um áramót. - bj
Umhverfisráðherra framlengir heimild til undanþágu frá byggingarreglugerð:
Tíminn verður notaður í frekara samráð
HÚSBYGGING Mikið álag hefur verið á byggingarfull-
trúa sveitarfélaga þar sem frestur til að fá undan-
þágu frá nýrri byggingarreglugerð átti að renna út um
áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON