Fréttablaðið - 17.12.2012, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 17.12.2012, Blaðsíða 20
17. desember 2012 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 20 Það að vera aðstandandi sjúklings með heila bilun er ekki hlutverk sem maður undirbýr sig undir. Það virðist einhvern veginn hafa læðst upp að okkur og allt í einu höfum við þetta óumbeðna stóra hlutverk á okkar herðum. Það eru til mörg afbrigði af heilabilun og trúlega eru engir tveir sjúk- lingar eins þótt allir hafi einhver grunneinkenni sem vísa okkur veginn. Þetta hefur ekki verið auðrataður vegur en við systkinin höfum verið að fikra okkur eftir honum undanfarin ár. Nú eru liðin nokkur ár síðan faðir okkar fór að sýna einkenni sem í fyrstu flokkuðust undir ellihrörnun en síðar kom í ljós að voru fyrstu einkenni Lewy Body Disease, sem á skyldleika að rekja til Parkinsons og Alzheimer. Eftir fyrstu greiningu kemur aðlögunartími aðstandenda, afneitun og reiði og öll önnur stig sorgarinnar. Þetta er nefni- lega eins og sorgarferli. Pabbi okkar eins og við þekkjum hann hefur breyst mikið og er allt- af að týnast meira inn í þennan heim sjúkdómsins. Við þurfum að læra heilmargt um sjúkdóminn og þennan nýja einstakling sem kemur þarna í ljós. Á þessu lær- dómsferli okkar höfum við notið liðsinnis heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem rutt hafa braut- ina og erum við óendanlega þakk- lát fyrir þá hjálp. Ber þar fyrst að nefna Minnismóttökuna á Landa- koti en þar er samankomin mikil viska og reynsla í frábæru starfs- fólki sem vinnur við þröngan kost. Þangað leituðum við eftir ábend- ingu og tilvísun frá heimilislækni föður okkar sem hefur einnig stutt okkur vel. Á Landakoti fengum við okkar fyrstu kennslustundir og ábendingar um heimalær- dóm. Þetta er nefnilega mikið heimalærdómur, við verðum að vera dug- leg að finna okkur upplýs- ingar sjálf og miðla okkar á milli. Dagþjálfun En í þessu sjúkdóms- ferli pabba okkar í dag er eitt atriði sem, að okkar mati, hefur alveg bjargað okkur. Það er Drafnar- hús í Hafnar firði, dagþjálfun sem Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimersjúklinga rekur, FAAS. Nú eru nokkrir mánuðir síðan hann fékk þar pláss og þótt fyrstu dagarnir á undan hafi verið erfiðir og reynt vel á þolrifin er hann oft- ast ljómandi glaður og ánægður að mæta í „vinnuna“ á hverjum degi. Og allir hinir ná að hvílast, ekki síst móðir okkar sem borið hefur hitann og þungann af þessu ferli. Það að hann er glaður segir okkur að sjálfsögðu að honum líður vel þarna og þvílíkur léttir sem það er fyrir aðstandendur að hafa þetta öryggi. Við getum ekki hugsað þá hugsun til enda hvar við værum í dag ef ekki hefði komið til þetta dásamlega hús með þessu frábæra, rólega, hlýja fólki sem þarna er að vinna mikið hugsjónastarf. Það er erfitt fyrir okkur, sem stöndum heilbrigð á hliðar- línunni, að setja okkur inn í heim þess heilabilaða. Við vitum ekk- ert hvernig hugsun og skynjun er hjá svona veikum einstaklingi. Við skiljum ekki hvernig engin rök- hugsun kemur út eða fer inn, að okkar mati. Því er ákaflega mikil- vægt að viðmót fólks til sjúkling- anna breytist ekki. Þótt okkur finnist oft faðir okkar sýna þroska á við 5 ára barn á hann enn skilið að við komum fram við hann af virðingu og sýnum þolinmæði. Starfsfólk Drafnarhúss á nóg af þolinmæði, hlýju og tíma, það er aðdáunarvert og okkur hinum til fyrirmyndar. Heima er best Stefna heilbrigðisyfirvalda í dag er að allir séu heima sem lengst og í samræmi við þá stefnu hefur heimahjúkrun verið efld. Sam- starf á milli ríkis og sveitafélaga hefur verið samræmt og þar fléttast inn ýmis þjónusta eins og matar sendingar, akstur og aðstoð við ræstingu og önnur umönnun. Þetta er alveg góðra gilda vert ef þjónustan stendur undir því. Við hljótum flest að geta verið sammála um að heima er best og sjálfstæði er okkur mikilvægt. Að sama skapi er gott að vita af því að þjónustan er til staðar ef á þarf að halda. Það gefur augaleið að starf- semi eins og þessi er aldrei rekin með peningalegum hagnaði og það er ekki hægt að sýna fram á „jákvæðar tölur“ á blaði. En hagn- aðurinn mælist í þjónustunni sem er rekin þarna og ánægju vist- manna og fjölskyldna þeirra, það verða því miður aldrei tölur á blaði. Þessar línur eru settar á blað til að reyna að sanna fyrir ykkur að sá hagnaður er svo rosa- lega dýrmætur að við megum undir engum kringumstæðum tapa honum. Þjónusta við Alzheimersjúklinga Fyrir skömmu kom fram fín tillaga á Alþingi. Ef til- lagan yrði að lögum myndi það þýða að ef jóladag bæri upp um helgi myndi vinn- andi fólk fá frídag næsta virka dag á eftir (sama gild- ir um annan í jólum, nýárs- dag, 17. júní og 1. maí). Tillagan er viðleitni til þess að gera fólki kleift að njóta t.d. jólanna betur, með því að eiga aðeins lengra frí. Tillagan er líka viðleitni til að gera landið okkar eilítið fjölskyldu- vænna, viðleitni til þess að fólk geti frekar notið lífsins. Það er gott og eðlilegt að eiga frí. Samtök atvinnulífsins, SA, eru ekki hrifin af tillögunni og því að almenningur fái þá frídaga sem ber upp á helgi. Nei segja sam tökin! Slíkt myndi þýða „0,53% hækkun launakostnaðar“ fyrir fyrirtæki, eins og segir í frétt Morgun blaðsins um málið og umsögn samtakanna um tillöguna. Og samtökin vilja ekki að þingið sé að skipta sér af málinu, þar sem frídagar séu hluti kjarasamninga. Skoðum það aðeins nánar. Alþingi er löggjafinn á Íslandi og getur gert hvaða dag sem er að frídegi. Flókn- ara er það ekki því lög Alþingis eru yfir alla samninga hafin. Frí dagar sem samið er um í kjarasamn- ingum eru viðbót við þá frídaga sem Alþingi skilgreinir. Vinnum að meðaltali lengur Svo er það hitt með hækkun launa- kostnaðar. Fyrst staðreyndir: Ísland er eitt vinnusamasta samfé- lag á Norðurlöndum. Við á Íslandi unnum árið 2008 að meðaltali átta stundum meira á viku en fólk gerði í Noregi, fjórum stundum meira en í Svíþjóð og sex stundum meira en í Danmörku. Þessum langa vinnu- tíma fylgja ýmis neikvæð áhrif. Í alþjóðlegri rannsókn sem var gerð fyrir nokkrum árum kom í ljós að í engu öðru þátttöku- landi rannsóknarinnar voru fleiri sem sögðust koma of þreyttir úr vinnu nokkrum sinnum í mánuði (eða oftar) til að sinna heimilinu. Þátttökulöndin voru fjölmörg; öll Norðurlandaríkin, mörg önnur Evrópulönd, Bandaríkin, Ástralía, Nýja-Sjáland og fleiri til. Langar vinnustundir hafa án efa mikið um þetta að segja. Samtök atvinnulífsins eru mót- fallin því að gera samfélagið ör- lítið fjölskylduvænna með því að veita örlítið fleiri frídaga – og það vegna þess að það myndi hækka launakostnað um 0,53%. Einn tvö- hundraðasta! Raunar væri upplagt að ganga miklu lengra en tillagan leggur til. Það væri tilvalið að stytta vinnu- vikuna rækilega, til dæmis með styttingu niður í 30-32 stundir. Með því yrði Ísland eitt fjölskylduvænsta samfélag í vestrænum heimi. Samtök atvinnulífsins hafa greinilega ekki hagsmuni fjöl- skyldnanna né fólksins í landinu í huga – þvert á móti styðja sam- tökin hvers kyns stöðnun í þeim efnum. Hunsum skilaboð Samtaka atvinnulífsins og fjölgum óhrædd frídögum. Við getum vel unnið minna. Og raunar miklu minna en ágæt tillaga Róberts Marshall felur í sér. Andvíg fjölskyldu- vænna samfélagi HEILBRIGÐISMÁL Brynja Dadda Sverrisdóttir aðstandandi ➜ Við vitum ekkert hvernig hugsun og skynjun er hjá svona veikum einstaklingi. Við skiljum ekki hvernig engin rökhugsun kemur út eða fer inn, að okkar mati. Því er ákafl ega mikilvægt að viðmót fólks til sjúklinganna breytist ekki. ➜ Alþingi er lög- gjafi nn á Íslandi og getur gert hvaða dag sem er að frídegi. Flóknara er það ekki því lög Alþingis eru yfi r alla samninga hafi n. SAMFÉLAGSMÁL Guðmundur D. Haraldsson BS í sálfræði og meðlimur í Lýðræðisfélaginu Öldu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.