Fréttablaðið - 17.12.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 17.12.2012, Blaðsíða 42
17. desember 2012 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 26 „Í nokkur ár hefur það staðið til að endurútgefa ritverkasafn Sverris Kristjánssonar sagnfræðings og þjóðlífsfrásagnir hans úr bóka- flokknum Íslenzkir Örlagaþættir og loks létum við verða af því,“ segir Guðrún Sverrisdóttir hjúkrunarfræð- ingur, dóttir Sverris. „Í jólabókaflóðinu má því finna endur útgefna bók úr riti eftir Sverri, „Bóndinn á Brúnum“ í ræðu og riti, ásamt tveimur geisladiskum með upplestri hans sjálfs sem fylgja. Við systkinin, Sigurjón og ég, og barna- barn hans, Ægir Einarov, sáum sjálf um útgáfuna og vildum með þessum hætti minna á og minnast gamals ræðu- og ritsnillings.“ Sverrir fjallaði í ritum sínum jafnan um sögur fyrri kynslóða og menn og málefni líðandi stundar. „Hann hreifst jafnt af Heinrich Heine og Jóni Sig- urðssyni,“ segir Guðrún. „Hann fjallaði um sögu 19. aldar, verkalýðs- mál, rithöfunda og skáldamál, stjórn- og þjóðfélagsmál. Í skrifum hans og ævisöguþáttum birtust ógleyman- legar mannlífsmyndir af gengnum kynslóðum. Skrif hans lýstu sérstöku næmi á örlög fólks.“ Guðrún segir tilgang þeirra með útgáfu bókarinnar ekki síst hafa verið að miðla ritsnilld föður hennar. „Sverrir var snillingur orðsins og vald hans á íslenskri tungu skilaði sér í ritverkum hans. Hann var líka sérlega góður upplesari. Upplestur hans á Passíusálmunum er öllum ógleymanlegur sem heyrðu.“ Sverrir flutti einnig fjölda erinda í útvarp sem Guðrún segir ekki hafa vakið minni hrifningu. „Fyrir erindi sín í ríkisútvarpinu var Sverrir þjóð- þekktur og virtur útvarpsmaður. Það geislaði af honum í íslensku þjóðlífi. Hann var allra manna fróðastur og skemmtilegastur. Ungir sem aldnir, háir sem lágir löðuðust að honum. Hann féll frá langt um aldur fram en eftir hann liggur fjöldi birtra og óbirtra ritverka.“ Sverris er ekki síst minnst fyrir hans hlut í bókaflokknum Íslenskir örlagaþættir sem þeir Tómas Guð- mundsson skáld hófu sameiginlega útgáfu á 1965. Alls urðu bækurnar tíu talsins, nutu mikilla vinsælda og seldust bækurnar, sem eru í dag ófáanlegar, upp um hver jól, að sögn Guðrúnar. En hvað varð til þess að þau drifu í þessari útgáfu núna? „Fyrr á þessu ári hitti ég ungan prest sem kannaðist ekki við manninn, Sverri Kristjáns- son sagnfræðing,“ segir Guðrún. „Þá sá ég að það var tímabært að endurvekja nafn hans og skrif. Íslenskt mál er á miklu undanhaldi með enskublönduðum slettum, sér- staklega úr tölvuleikjamáli ung- linganna. Það þarf í raun að fá einhverja vakningu um íslenska mál- rækt – talað mál og skrifað. Mér finnst upplestrar föður míns eiga fullt erindi inn í skólastofur æskulýðsins okkar.“ fridrikab@frettabladid.is TÍMAMÓT Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar eiginkonu, dóttur og systur, VIGDÍSAR SIGURBJÖRNSDÓTTUR iðnhönnuðar, Fitjasmára 4, Kópavogi, sem lést 14. október sl. og var jarðsett frá Digraneskirkju 25. október. Guðmundur Jens Bjarnason Katrín Kristjana Karlsdóttir Sigurbjörn Víðir Eggertsson Karl Georg Sigurbjörnsson Ágústa Amalía Sigurbjörnsdóttir Óli Freyr Kristjánsson VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann www.kvedja.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG HÁLFDÁNARDÓTTIR Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili Akranesi, áður Háholti 3, lést sunnudaginn 9. desember síðastliðinn. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 21. desember kl. 14.00. Ólafur H. Þórarinsson Sigríður B. Ásgeirsdóttir Þórgunna Þórarinsdóttir Kristín S. Þórarinsdóttir Unnþór B. Halldórsson Þórunn R. Þórarinsdóttir Kristján Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÞÓRUNN ALDA BJÖRNSDÓTTIR frá Kirkjulandi, Vestmannaeyjum, síðar Meistaravöllum 9, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 9. desember, verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 18. desember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Líkn Vestmannaeyjum. Lára Halla Jóhannesdóttir Páll Sigurðarson Birna Valgerður Jóhannesdóttir Jóhann Ingi Einarsson Guðbjörg Ásta Jóhannesdóttir Adolf Bjarnason Ágústa Ágústsdóttir Brynjólfur Jóhannesson María Björg Filippusdóttir ömmu- og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, PÁLMI ÞÓR PÁLSSON Hraunholti, Garðabæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut, sunnudaginn 2. desember síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju miðvikudaginn 19. desember klukkan 13.00. Soffía Friðgeirsdóttir Gunnar Þór Pálmason Ida Surjani Þórhildur Pálmadóttir Hjörtur Hreinsson Haukur Örvar Pálmason Kristín Haraldsdóttir Sunna Guðný Pálmadóttir Brynjar Þór Sumarliðason og barnabörn. Snillingur orðsins Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur lét eft ir sig mikið af rituðu máli, bæði birtu og óbirtu. Nú hafa börn hans og barnabarn gengist fyrir útgáfu á sagnaþættinum Bóndinn á Brúnum. Bókinni fylgja tveir geisladiskar með upplestri Sverris sjálfs. ÓGLEYMANLEGUR Guðrún Sverrisdóttir segir föður sinn, Sverri Kristjánsson, hafa verið allra manna fróðastan og skemmtilegastan. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Og nú, þegar Sverrir Kristjánsson er á brott genginn, er fölara í garði íslenzkra mennta og mannvits. En þó enginn komi Sverrir Kristjánsson aftur, þá veit söguþjóðin áreiðanlega að sú varða menningarhefðar og þjóðlegrar reisnar, sem sagnfræð- ingurinn átti drjúgan þátt í að hlaða, má aldrei hrynja eða hverfa. Vilmundur Gylfason Úr minningargrein um Sverri Sverrir Kristjánsson (7. febrúar 1908– 26. febrúar 1976) var íslenskur sagnfræðingur, þýðandi og rithöfundur. Ritsafn hans kom út árið 1981 í fjórum bindum. Sverrir var sonur Bárðar Kristjáns Guð- mundssonar verkamanns og Guðrúnar V. Guðmundsdóttur. Hann varð stúdent frá MR 1928 og nam síðan sagnfræði við háskólann í Kaupmannahöfn og um skeið í Berlín. Eftir að hann kom heim frá námi vann hann sem kennari í Reykjavík í nokkur ár. Þá starfaði hann við rannsóknir og skrásetningu bréfa og skjala í Ríkisskjalasafni Dana, Bókhlöðu konungs og National Museum 1956-1958. Sverrir samdi ótal bækur um sagnfræðileg efni og þýddi bæði leikrit og skáldsögur. Æviferill Sverris TEIKNING EFTIR ÖRLYG SIGURÐSSON Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR bókasafnsfræðingur, Akranesi, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða, þann 14. desember. Útförin fer fram fimmtudaginn 20. desember kl. 14. Bragi Níelsson Árni Bragason Röðull Bragason Arinbjörg Kristinsdóttir Baldur Bragason Margrét Bragadóttir Sighvatur K. Pálsson barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.