Fréttablaðið - 17.12.2012, Page 48

Fréttablaðið - 17.12.2012, Page 48
17. desember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 32 Sérframleiðum bursta eftir þínum þörfum. • • Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ. Sími 480-0030 · www.burstagerdin.is GEFÐU JÓLAPAKKA STÖÐVAR 2 JÓLAPAKKINN INNIHELDUR ÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 AUK ÞESS SEM MASTERCHEF SVUNTA FYLGIR FRÍTT MEÐ Þú færð jólapakka Stöðvar 2 í verslunum Hagkaups í Skeifunni, Garðabæ, Smáralind og Kringlunni. Jólapakkinn gildir frá 23 des. 2012 til 3. feb. 2013 TÓNLIST ★★★ ★★ Foldarskart Schola cantorum Foldarskart er nafnið á geisladiski með Schola cantorum. Á honum er að finna nokkrar íslenskar kórperlur af sumartónleikaröð kórsins. Þetta eru lög eins og Hjá lygnri móðu, Trú mín er aðeins týra, Nú sefur jörðin sumar- græn o.s.frv. Schola cantorum er einn af frambærilegustu kórum landsins. Hörður Áskelsson stjórnar honum og gerir það fallega. Söngurinn er til- finningaþrunginn og hástemmdur en líka gæddur viðeigandi léttleika eins og t.d. í Hættu að gráta Hringaná og Undir bláum sólarsali. Jafnvægið á milli ólíkra radda er gott, kraftur- inn í söngnum er grípandi. Auðvitað hefur maður heyrt flest þessi lög mörgum sinnum áður. Það er ekkert hér sem kemur á óvart, vekur sérstaka athygli. Helst er það Afmorsvísa Snorra S. Birgissonar sem kemur með ferskleikann inn í dagskrána. En meira að segja hún hljómar eins og tónlist úr grárri forneskju. Sem er ekkert verra. Það er einhver nostalgía sem svífur yfir vötnunum hér, ljúf eftirsjá, gamall en sígildur sjarmi. Þetta eru falleg lög sveipuð ljóma fortíðarinnar – og þau renna ljúflega niður. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Skemmtilegur geisladiskur með hugljúfri tónlist. Grípandi kraft ur Hjónakornin Orlando Bloom og Miranda Kerr íhuga nú skilnað eftir tveggja ára hjónaband. Þetta fullyrðir blaðið Star og hefur það eftir ónafngreindum heimildum. Sögusagnir um skilnaðinn milli leikarans og fyrir sætunnar hafa verið á sveimi í nokkurn tíma. Kerr hefur verið í New York undan farið ásamt tveggja ára syni þeirra á meðan Bloom er staddur í tökum á nýrri kvikmynd í Suður- Afríku. „Þau eru skilin á borði og sæng, búa ekki saman og eru að ákveða næstu skref,“ segir heimildar- maður blaðsins en einnig kemur fram að ástæða skilnaðarins ku vera mikil vinna leikarans. Kerr sást láta vel að leikaranum Leonardo DiCaprio á næturklúbbi í New York í vikunni en hann er þekktur fyrir að vera mikið fyrir undirfatafyrirsæturnar. Íhuga skilnað BÚIÐ SPIL? Sögusagnir eru á sveimi um skilnað stjörnuparsins Miröndu Kerr og Orlando Bloom. NORDICPHOTOS/GETTY HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2012 Uppákomur 11.00 Askasleikir kíkir í heimsókn á Þjóðminjasafn Íslands. Aðgangur er ókeypis. 12.34 Fjölbreytt menningardagskrá er í boði á Jóladagatali Norræna hússins. Uppákomur hvers dags eru gestum huldar þar til gluggi dagatalsins verður opnaður í upphafi atburðarins. Listamaðurinn Hugleikur Dagsson gerði dagatalið í ár. Tónlist 21.00 Sigurður Guðmundsson leikur á aðventutónleikum Malarinnar á Malar- kaffi á Drangsnesi. Aðgangseyrir er kr. 2.000. 21.00 Hljómsveitin 1860 heldur tón- leika á Café Rosenberg. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.