Fréttablaðið - 17.12.2012, Side 52

Fréttablaðið - 17.12.2012, Side 52
17. desember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 36 Leikarinn Hugh Jackman var í löngu viðtali við þáttinn 60 mínútur síðastliðinn sunnudag. Ástæða viðtalsins er frumsýning myndarinnar Les Misérables en þar leikur ástralski sjarmörinn eitt aðalhlutverkanna. Jackman brast í grát í miðju við talinu er talið barst að fjöl- skyldunni og föður hans, sem ól hann og bræður hans upp ein- samall. Hann sagði að eina ráðið sem faðir hans hefði gefið honum í gegnum tíðina væri að taka fjölskylduna alltaf fram yfir framann, eitthvað sem leikarinn hefur reynt að tileinka sér hingað til. Jackman hefur verið giftur Deborra-Lee Furness í 16 ár og á með henni tvö börn. Móður leikarans yfirgaf fjöl- skylduna þegar Jackman var einungis átta ára gamall en leikarinn fullyrðir í viðtalinu að hann sé búinn að fyrirgefa henni og reynir að hitta hana núna einu sinni á ári. Ástralinn fer með hlutverk Jean Valjean í Les Misérables og þurfti að halda líkamanum í góðu formi á meðan á tökum stóð. „Líkam- inn er eitt af verkfærum mínum í vinnunni eins og röddin og tilfinn- ingarnar. Þess vegna hef ég ekk- ert á móti því að mæta í ræktina.“ Hugh Jackman setur fj öl- skylduna í fyrsta sæti Leikarinn Hugh Jackman brast í grát í viðtali við 60 mínútur er hann var spurður um fj ölskylduna. FJÖLSKYLDUMAÐUR Hugh Jack- man ásamt eiginkonu sinni til 16 ára, Deborra-Lee Furness, á frumsýningu Les Misérables í New York um helgina. NORDICPHOTOS/GETTY Nú styttist í að tónlistar veislan Hátt í Höllinni verði haldin í Laugar dalshöll, eða miðvikudags- kvöldið 19. desember. Fram koma Ásgeir Trausti, Hjálmar, Jónas Sigurðsson, Valdimar, Moses Hightower og Kiriyama Family. Allir þessir flytjendur, fyrir utan Hjálma, gáfu út nýjar plötur núna fyrir jólin sem hafa hlotið góðar viðtökur. Ásgeir Trausti hefur slegið í gegn með sinni fyrstu plötu Dýrð í dauðaþögn, Hjálmar hafa ekki spilað hér á landi í nokkurn tíma, hljómsveitin Valdimar sendi frá sér sína aðra plötu á dögunum, Moses Hightower gerði slíkt hið sama og Kiriyama Family hefur hitt í mark með lögunum Week- ends og Heal. Uppselt er í stúku á tónleikana en enn eru eftir miðar í stæði. Mið- arnir fást á Midi.is. Styttist í tónleikana Hátt í Höllinni Margir af vinsælustu fl ytjendum Íslands koma fram. MÆTA Í HÖLLINA Hluti af þeim tónlistarmönnum sem spila í Laugardalshöll. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Opna – Velja – Njóta EINSTÖK GJÖF FYRIR ALLA sími 577 5600 info@oskaskrin.is www.oskaskrin.is Óskaskrín henta fullkomlega í harða pakka fyrir þá sem vilja upplifa og njóta, þá sem velja sjálfir, þá sem eiga allt. Það er einfalt að velja rétta gjöf – gefðu upplifun í öskju, gefðu Óskaskrín. PI PA R\ TB W A • S ÍA ÞUNGAROKKAÐ FRAM Á NÓTT Fjandinn Kice Metalfest-tónlistarhátíðin fór fram á Gauknum á föstudag. Frönsku þungarokkssveitirnar L‘Esprit Du Clan og Hangman‘s Chair stigu á stokk ásamt íslensku sveitunum Momentum, Dimmu, Angist, Moldun og Ophidian I. TÓNLEIKAGESTIR Símon Þórólfsson og Elín Arnórsdóttir voru á meðal gesta. BOLIR Í BAKGRUNNI Jóhann Örn Sigurjónsson og Hörður Ólafsson brostu við boli merkta sveitinni Momentum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VINALEG Þorbjörg Dexter mætti á tón- leikana ásamt Steinari Ólafssyni. HEILSAÐ AÐ HÆTTI ROKKARA Kristinn Gíslason, Elvar Örn Hermannsson og Þorsteinn Kolbeinsson voru vígalegir á svip.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.