Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.12.2012, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 17.12.2012, Qupperneq 62
17. desember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 46 Raftónlistarmaðurinn og upptöku- stjórinn Sveinbjörn Thorarensen er tilnefndur til Íslensku tónlistar- verðlaunanna í ár í flokki upp- tökustjóra ársins. Tilnefninguna hlýtur hann ásamt Styrmi Hauks- syni fyrir plötuna Retro Stefson. Sveinbjörn, sem gengur undir listamannsnafninu Hermigervill, segir árið sem er að líða hafa verið annasamt. Ásamt því að stýra upptökum á nýrri plötu Retro Stefson stýrir hann upp- tökum á væntanlegri plötu tónlistar mannsins Berndsen og sinnir eigin tónlistarsköpun þegar tími gefst til. „Það er búið að vera brjálæðis- lega mikið að gera hjá mér í ár. Ég vinn líka í eigin tónlist og sem tónlist fyrir kvikmyndir, auglýs- ingar og iPhone-leiki. Mín tónlist hefur þó setið svolítið á hakanum því hin verkefnin fá forgang, en ég ætla að reyna að bæta úr því á nýju ári,“ segir Sveinbjörn. Hann kemur fram á tónleik- unum Síðasti sjens ásamt Retro Stefson þann 30. desember. Tón- leikarnir fara fram í Vodafone- höllinni og hefjast klukkan 21. „Þetta verður geðveikt stuð enda er þetta síðasti séns til að sletta úr klaufunum á þessu ári. Ég byrja kvöldið og svo tekur Retro Stef- son við. Ég er samt orðinn hluti af sveitinni þannig ég fæ ekkert að hvíla mig eftir mitt sett.“ Aðspurður segist Sveinbjörn búast við húsfylli um kvöldið og þykir honum trúlegt að það slái við gamlárskvöldi hvað skemmtun varðar. „Ég hvet alla til að mæta, þetta verður aðalpartýkvöld ársins.“ - sm Annasömu ári að ljúka hjá Hermigervli Sveinbjörn Thorarensen er tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna eft ir heldur annasamt tónlistarár. ANNASAMT ÁR Sveinbjörn Thorar- ensen, eða Hermigervill, lofar geðveiku stuði í Vodafone-höllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Samúel J. Samúelsson Big Band hefur sent frá sér sína fjórðu hljóm- plötu, 4 hliðar, og er hún að sjálf- sögðu uppfull af sjóðandi og hryn- heitri tónlist. Hún er undir áhrifum frá níg- erísku afróbíti, eþíópískum djassi, brasilískum sambatöktum, banda- rísku funki og stórsveitardjassi. Því er blandað saman við ís lenska veð- ursveiflu og þrjósku eyjaskeggja. „Þetta er héðan og þaðan í þeim stíl sem ég hef verið að fást við. Þetta er afróskotin músík og það er farið víða. Þarna eru eþíópísk, bras- ilísk og nígerísk áhrif. Svo var ég í Gíneu í janúar og það hafði áhrif á þetta,“ segir forsprakkinn Samúel, sem fór þangað ásamt konu sinni. „Við vorum í dansskóla í tvær vikur og í brúðkaupi líka. Þetta var svaka ævintýri.“ Nafnið 4 hliðar er tilvísun í tvö- falda vínilútgáfu plötunnar sem kemur út eftir áramót. „Tíma- lengdin passaði akkúrat á tvær vínilplötur og þaðan kom titillinn. Þetta hefði orðið ógeðslega löng plata á geisladiski og ég þoli ekki svona langar plötur sjálfur.“ Geisla- diskurinn er því einnig tvöfaldur og er nýkominn í búðir. Útgáfutónleikar verða í Gamla bíói fimmtudaginn 20. desember. „Við ætlum að spila alla plötuna og allt bandið verður mætt,“ segir Samúel en átján hljóðfæraleikarar eru í Big Bandinu. - fb Sjóðandi og hrynheitt afróbít Stórsveit Samúels J. Samúelssonar hefur gefi ð út sína fj órðu plötu, 4 hliðar. 4 HLIÐAR Samúel J. Samúelsson Big Band hefur sent frá sér plötuna 4 hliðar. MYND/GUÐMUNDUR KRISTINN JÓNSSON „Það er Sigurjón digri með Stuð- mönnum. Ég er að læra það á bassa því að Tómas Tómasson er uppá- haldsbassaleikarinn minn.“ Ari Eldjárn spéfugl. MÁNUDAGSLAGIÐ „Ég var þriggja ára þegar mamma fór í Eurovision en man mjög vel eftir því að hafa reynt að herma eftir dansinum fyrir framan sjón- varpið. Þetta var í fyrsta skipti sem ég horfði á keppnina en hef verið mikill aðdáandi síðan,“ segir dansarinn Þórey Birgisdóttir. Þórey komst í sex manna úrslit í danskeppninni Dans, Dans, Dans á RÚV á dögunum. Hún á ekki langt að sækja danshæfileikana. Móðir hennar, Hlíf Þorgeirsdóttir, var einn af dönsurunum sem lituðu atriði Páls Óskars við lagið Minn hinsti dans í Euro vision 1997. „Mér fannst ótrúlega töff að mamma mín væri að taka þátt í Eurovisi- on. Ég rifja þetta upp í tíma og ótíma og hún er oft ekkert rosalega hress með það. Hún segir að þó að þetta hafi verið mjög skemmtilegt þá sé þetta ekki endilega eitthvað sem hún vilji auglýsa mikið,“ segir Þórey hlæjandi. Minn hinsti dans átti ekki miklu fylgi að fagna í keppninni árið 1997 og lenti hópurinn í síðasta sæti. Margir segja þó atriðið hafa breytt gangi keppninnar til framtíðar. Klæðnaður Páls Óskars og dans- aranna vakti hvað mesta athygli en öll voru þau klædd í leður og skildi klæðnaður stúlknanna afar lítið eftir fyrir ímyndunaraflið. „Mamma á gallann niðri í geymslu og ég hef einu sinni prófað að fara í hann. Hann passaði á mig svo það er aldrei að vita nema ég taki hann upp ef rétt tækifæri gefst,“ segir Þórey og hlær. Hún er mikill Euro- vision-aðdáandi og segist hafa það að markmiði að dansa í keppninni einn daginn. „Ef ég næ því ekki ætla ég að minnsta kosti að verða áhorfandi í sal,“ segir hún. Þórey hefur tekið þátt í Dans, Dans, Dans í tvígang en segist ekki eiga von á að skrá sig til leiks í þriðja sinn. „Ég er að útskrifast af listdansbraut í MH í vor og er að skoða framhaldið. Mér finnst lík- legt að ég fari út að læra eða reyni að komast í ungmennadansflokk í haust,“ segir hún spennt. Það er þó nóg fram undan hjá henni þangað til, því jafnframt því að vera í skól- anum er hún líka í Listdansskóla Íslands og tekur þátt í uppfærslu Borgarleikhússins á Mary Poppins. „Æfingarnar á Mary Poppins eru alveg á fullu núna og ég var til dæmis að læra að steppa í dag. Það var geðveikt skemmtilegt,“ segir Þórey að lokum. tinnaros@frettabladid.is Passar í leðurgallann hennar mömmu Dansaranum Þóreyju Birgisdóttur þótti mamma sín töff í Eurovision árið 1997. MÆÐGUR Mæðgurnar Hlíf og Þórey eru báðar dansarar sem hafa komið fyrir augu þjóðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.