Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 21
GRILLAÐUR LAX Nú tekur hollustan völdin og þá er ekki úr vegi að grilla lax, til dæmis á grillpönnu, og bera fram með mintusósu. Kryddið laxinn með tandoori-kryddi, salti og pipar. Sósan er gerð úr hreinni jógúrt, fínt söxuðum mintublöðum, salti og pipar. Einfaldur en afar hollur réttur. BERJATÍNSLA Yngsti fjölskyldu- meðlimurinn á berja- markaði fyrir jólin. MYND/ÚR EINKASAFNI Jólin á Nýja-Sjálandi eru talsvert frábrugðin þeim sem við Íslend-ingar þekkjum. Þar er nú sumar og meðalhitinn í desember er um 18 gráður. Finnbogi Pálsson hefur búið þar frá árinu 1995 en hann kynntist eiginkonu sinni, Nicolu Bryant, á Íslandi þegar hún vann í frystihúsi á Patreks- firði. Saman eiga þau fimm börn og búa á norðureyjunni, í litlum bæ sem heitir Whakatane. Nicola segir jólaundirbún- ing fjölskyldunnar hefjast snemma í desember þegar jólakakan er búin til sem er ávaxtakaka. „Á aðfangadag hefst síðan fjörið fyrir alvöru. Þá förum við með börnin á berjamarkað og tínum jarðarber, brómber og hindber sem við notum í jólamatinn. Ég er síðan á síð- ustu stundu með jólagjafirnar eins og venjulega.“ Áður en börnin fara í rúmið á aðfangadag setja þau kaldan bjór og kalt vatn út á tröppur fyrir jólasveininn og hreindýrið. Stóri dagurinn byrjar snemma á jóladag. Nicola segir börnin vakna um fimm leytið á jóladagsmorgun og vekja alla fjölskylduna. Fljótlega eru gjafirnar opnaðar en þær tengjast gjarn- an útiveru og ströndinni. Jólamaturinn er borinn á borð kl. 14.30 og saman- stendur yfirleitt af kalkúni, lambakjöti og grænmeti úr garði föður Nicolu. Eftir máltíðina fer fjölskyldan yfirleitt niður á strönd og slakar á það sem eftir lifir dags. Á annan í jólum er oftast farið í bátsferð með vinum. „Við tökum matar- afgangana með frá jóladag og eyðum öllum deginum með fjölskyldumeð- limum og vinum okkar. Þetta eru ósköp notalegir dagar í sumarblíðunni hér í Nýja-Sjálandi.“ BJÓR FYRIR JÓLASVEININN SUMARJÓL Sumarið er komið á Nýja-Sjálandi þar sem fjölmargir Íslendingar búa. Þar er áhersla lögð á útiveru yfir jólin enda heitt í veðri. SÓL OG JÓL Stórfjölskyldan á Nýja-Sjálandi við bát fjölskyldunnar. MYND/ÚR EINKASAFNI Salsa Break Street Hip Hop Freestyle Brúðarvals Lady’s style Barnadansar Samkvæmisdansar Sérnámskeið fyrir hópa Börn – Unglingar – Fullorðnir Innritun og upplýsingar á dansskoli.is eða í síma 553 6645 Salsa Break Street Zumba Hip Hop Freestyle Barnadansar Argentískur Tangó Samkvæmisdansar Sérnámskeið fyrir hópa Börn – Unglingar – Fullorðnir Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553-6645 | dans@danskoli.is Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar BRÚÐKAUPSGJAFIR Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 www.tk.is - mikið af frábærum boðumtil % afs10 átturl Boltinn á Xinu 977 – alla virka daga kl. 11 - 12 KEEPING UP WITH THE KARDASHIANS E! ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.