Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 40
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 32
HANDBOLTI „Þetta var frábært. Tveir sigurleik-
ir í röð. Ég verð að viðurkenna að það er orðið
dálítið langt síðan ég upplifði það,“ sagði Óskar
Bjarni Óskarsson þegar Fréttablaðið sló á þráð-
inn til hans í Danmörku í gær. Karlaliðið vann
dramatískan eins marks sigur á Tvis Holstebro
þann 27. desember og kvennaliðið vann stórsigur
gegn Álaborg þremur dögum síðar.
Desembermánuður var í meira lagi skrautleg-
ur hjá Óskari Bjarna og félögum hjá Viborg. For-
ráðamenn félagsins tilkynntu að karlaliðið yrði
ekki sent til keppni í efstu deild á næstu leiktíð
og Óskar Bjarni tók í kjölfarið við kvennaliðinu
sem er á töluvert hærri stalli en karlaliðið.
„Þetta var sérstaklega gott fyrir strákana.
Desember hefur verið erfiður og sterkt að
enda á sigri gegn sterku liði Tvis,“ segir Óskar
Bjarni. Liðið hafði tapað þremur leikjum í röð
enda mikil meiðsli í herbúðum liðsins.
„Miðjumaður og vinstri skytta hafa verið
meidd meira eða minna í allan vetur. Svo var
fyrirliðinn, hægri skyttan, ekkert með í desemb-
er auk þess sem vinstri hornamaðurinn meidd-
ist fyrir Tvis-leikinn,“ sagði Óskar Bjarni sem
hægt og rólega hefur dregið sig út úr þjálfara-
hlutverkinu hjá karlaliðinu. Aðstoðarþjálfari
hans og þjálfari B-liðs félagsins hafa tekið við
en Óskar Bjarni verður þeim áfram til halds og
trausts.
Óskar Bjarni viðurkennir að hann hafi reikn-
að með flótta hjá leikmönnum félagsins.
„Það er búið að tala við marga af okkar leik-
mönnum. Ég bjóst við því að við myndum missa
markahæsta leikmanninn okkar því það voru
mörg lið að tala við hann,“ segir Óskar og bendir
á að leikmenn geti ekki skipt um lið innan Dan-
merkur eftir áramótin.
„Við erum því að halda öllum leikmönnum og
leikmenn að snúa aftur úr meiðslum. Ef menn
þjappa sér saman gæti karlaliðið orðið enn
sterkara.“
Krafa um árangur
Ólíkt því sem Óskar Bjarni fann fyrir með karla-
liðið er skýr krafa um árangur hjá kvennaliðinu.
„Strákarnir og stelpurnar eru á hver á sínum
enda spýtunnar. Krafan hjá strákunum er að
þeir gefi allt í þetta og spili með hjartanu. Menn
gera sér grein fyrir því hvar mannskapurinn
stendur. Að mínu mati var pressan of lítil,“ segir
Óskar Bjarni.
„Stelpurnar hafa reyndar ekki unnið deild-
ina undanfarin tvö ár en að sjálfsögðu er pressa
á árangur. Þetta er allt annað dæmi. Þeir vilja
vera í Meistaradeildinni og til að komast þang-
að verður liðið að vera í öðru hvoru af tveimur
efstu sætunum,“ segir Óskar Bjarni.
Kvennaliðið deilir efsta sætinu með nýkrýnd-
um bikarmeisturum Midtjylland. Liðin eru tap-
laus en gerðu jafntefli í viðureign sinni. Sex stig-
um á eftir kemur meistaraliðið frá því í fyrra,
Randers.
„Ég á eftir að skoða liðin fram og til baka enda
ekki orðinn sérfræðingur í kvennaboltanum,“
segir Óskar Bjarni en minnir á að Randers hafi
komist upp úr riðli sínum í Meistaradeildinni en
Viborg hafi hafnað í fjórða sæti.
Hlé hefur verið gert á karlaboltanum vegna
HM á Spáni en konurnar halda ótrauðar áfram
leik í janúar. Óskar Bjarni er spenntur fyrir
framhaldinu.
„Það er hægt að hafa fleiri æfingar með stelp-
unum. Strákarnir eru flestir í vinnu eða skóla.
Stelpurnar geta nánast alla daga æft tvisvar á
dag sem er mjög spennandi.“ - ktd
Góð lok á erfi ðum desember
Árið 2012 hlaut góðan endi hjá handboltaþjálfaranum Óskari Bjarna Óskarssyni hjá Viborg í Danmörku.
MESSAR NÚ YFIR KONUNUM Óskar Bjarni verður á fullu með kvennalið Viborg á meðan karlalandsliðið leikur á
HM. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FRJÁLSAR Ásdís Hjálmsdóttir mun
fljúga á milli Íslands og Luzern í
Sviss til æfinga á nýju ári. Ytra
mun hún æfa undir handleiðslu
Írans Terry McHugh en hér heima
verður Einar Vilhjálmsson henni
til halds og trausts.
„Það hefur verið ákveðinn
þreifingartími í gangi þar sem
hún hefur verið að fylgja eftir og
þróa samstarf við Terry McHugh,
indælisdreng sem ég þekki frá
fyrri tíð,“ segir Einar Vilhjálms-
son en Íslandsmet hans í spjót-
kasti, 86,80 metrar frá árinu 1992,
stendur enn.
Einar þekkir ágætlega til
McHugh sem er fremsti spjótkast-
ari sem Írar hafa alið. McHugh
keppti á fernum Ólympíuleikum
frá 1988 til 2000 en 82,75 metra
kast hans í London árið 2000 er
írskt met.
„Já og hann kom meira að segja
í Laugardalinn til þess að æfa
með okkur Sigurði Einarssyni á
sínum tíma. Hann var að ná þeirri
stöðu að verða besti Írinn og við
Sigurður að brillera. Hann tjaldaði
í Laugardalnum og mætti á æfing-
ar með okkur í nokkurn tíma yfir
sumarið,“ segir Einar sem ber
McHugh vel söguna.
„Svo hittum við hann af og til á
mótum í Evrópu. Hann er voðalega
indæll, traustur og góður náungi.
Hún er í góðum höndum þannig.
Ég bind miklar vonir við þetta allt
saman,“ segir Einar.
Ein vika ytra í mánuði
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins stefnir Ásdís að því að
verja einni viku við æfingar ytra
og fylgja eftir æfingaáætlun hér
heima. Þar verður Einar í mikil-
vægu hlutverki.
„Ég er boðinn og búinn að
aðstoða hana eins og þarf,“ segir
Einar sem minnir á að enn eigi
eftir að ganga frá málunum í smá-
atriðum.
„Þetta er grófa hugmyndin
en það er ansi mikill munur
að vera á uppbyggingar-
tímabili, undirbúnings-
tímabili fyrir keppnis-
tímabil og fara svo inn á
mælt æfingatímabil og
svo aðalkeppnistímabil-
ið sjálft. Þetta kallar allt
á mismunandi samskipti
íþróttamanns og þjálfar-
ans og það á eftir að
stilla þessu saman.“ Eftirminnilegt ár
Árið 2012 var eftirminnilegt fyrir
Ásdísi Hjálmsdóttur. Afrekskonan
kastaði 62,77 metra í fyrsta kasti
sínu í undankeppni spjótkasts-
keppninnar á Ólympíuleikunum
í London. Hún tryggði sig inn í
úrslitin um leið og hún setti nýtt
Íslandsmet. Hún hafnaði í ellefta
sæti í úrslitunum og varð í öðru
sæti í kjöri íþróttafréttamanna á
Íþróttamanni ársins á dögunum.
Einar segir Ásdísi vera í góðum
höndum McHugh en einnig sé um
að ræða gott tækifæri fyrir Írann.
„Þarna fær hann tækifæri með
glæsilegan íþróttamann,“ segir
Einar sem hlakkar sjálfur til verk-
efnisins.
„Það er virkilega gaman og
spennandi að fá að vera hluti af
þessu teymi. Hvert mitt hlutverk
verður í smáatriðum verður tím-
inn að leiða í ljós,“ segir Einar sem
lýst vel á komandi ár hjá Ásdísi.
„Þetta fer svona virkilega vel af
stað á nýju ári og það eru heilmik-
il tækifæri í Ásdísi Hjálmsdóttur
næstu fjögur árin,“ segir Einar.
kolbeinntumi@365.is
Ásdís Hjálmsdóttir heldur til Sviss
Írinn Terry McHugh verður næsti þjálfari spjótkastskonunnar Ásdísar Hjálmsdóttur. Ásdís hefur verið án þjálfara síðan í september er
samstarfi hennar og Stefáns Jóhannssonar lauk. Stefnt er að því að Ásdís dvelji eina viku í mánuði við æfi ngar í Luzern í Sviss.
HORFIR TIL RÍÓ Ásdís Hjálmsdóttir keppti á Ólympíuleikunum 2008 í Peking og í London síðastliðið sumar. Þrjú og hálft ár eru
í leikana í Ríó en þá verður kastkonan á 31. aldursári FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Landsliðsmarkvörður-
inn Aron Rafn Eðvarðsson er á
góðum batavegi eftir flensu sem
hélt honum frá æfingum með
íslenska landsliðinu á milli jóla
og nýárs sem og æfingaleikjunum
tveimur gegn Túnis.
„Líðanin er orðin fín. Maður
er búinn að liggja uppi í rúmi öll
jólin. Ég naut matarins en ekkert
meira en það,“ segir Aron Rafn,
sem er þegar farinn að taka á því.
Hafnfirðingurinn hefur æft
síðustu þrjá daga og segir allt á
réttri leið.
„Ég hef verið að skokka, verið
á snerpu- og lyftingaæfingum.
Aðeins að sjokkera líkamann og
sjá í hvernig standi ég er,“ segir
Aron Rafn sem á í harðri sam-
keppni um sæti í lokahópnum
sem fer til Spánar.
„Það er kannski erfitt að missa
af leikjunum gegn Túnis. Þá
fer ég kannski aftar í goggun-
arröðina. Ég verð bara að sýna
mig þegar við mætum aftur til
æfinga,“ segir Aron Rafn en
fyrsta æfing eftir fjögurra daga
frí verður í fyrramálið. -ktd
Aron Rafn
orðinn frískur
GEFST EKKI UPP Aron Rafn ætlar að
gera allt til þess að komast í lokahópinn
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LÍST VEL Á MCHUGH Einar
Vilhjálmsson er bjartsýnn á
samstarfið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FREMSTUR ÍRA
Terry McHugh er
fremsti spjótkastari
Írlands fyrr og síðar.
NORDICPHOTOS/GETTY
SPORT