Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 46
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 38 „Ég veit ekkert hvaða síða þetta er og ég tengist henni ekki neitt,“ segir ljósmyndarinn Rebekka Guðleifs dóttir, en mynd eftir hana er notuð í leyfisleysi á vefsíðu Norden Voyager- afsláttarkortsins. Umrætt afsláttarkort er á vegum Norræna félagsins og á vef- síðunni má sjá margar smámyndir, en ein þeirra er sjálfsmynd ljósmyndarans. Rebekka segir að líklega hafi myndin verið tekin ófrjálsri hendi af Flickr-ljósmyndavefnum, þar sem hún hýsir mynda- safn sitt. „Ég er búin að lenda ítrekað í þessu og þetta er orðið mjög þreytt,“ segir Rebekka, en hún íhugar að hafa samband við Myndstef, samtök myndhöfundarréttarhafa á Íslandi. Árið 2007 komst Rebekka í heimsfréttirnar þegar myndir hennar voru teknar af vefsvæði Flickr og fjölfaldaðar ólöglega til endursölu. „Það skapaðist mikil umræða um höfundar rétt á ljósmyndum á inter netinu og ég fór í viðtal hjá BBC, en ég fékk aldrei neinar bætur eða neitt slíkt. Sá sem var að þessu lét sig bara hverfa.“ - hva Þetta er orðið mjög þreytt Myndir ljósmyndarans Rebekku Guðleifs- dóttur eru ítrekað notaðar í leyfi sleysi. NOTUÐ ÁN LEYFIS Rebekka prýðir vefsíðu afsláttar- kortsins Norden Voyager. LEITAR RÉTTAR SÍNS Rebekka íhugar að hafa sam- band við Myndstef. „Það hefur ekki beint verið þema hjá okkur að hafa lítið að gera,“ segir knattspyrnukonan Greta Mjöll Samúelsdóttir, en Greta og systir hennar, Hólmfríður Ósk, halda tónleika í Smáranum hinn 4. janúar næstkomandi. Systurn- ar skipa dúettinn SamSam en þær vöktu fyrst athygli fyrir sex árum þegar þær sungu lagið Ó, María í Söngkeppni framhaldsskólanna. Systurnar hafa nú sameinað krafta sína að nýju, en Greta hefur undanfarin ár lagt stund á fjölmiðlafræði í Boston og þær systur því ekki náð að vinna eins mikið í tónlistinni og þær hefðu vonað. „Við höfum reynt að nýta allan þann tíma þegar við hitt- umst til að syngja og spila saman en það getur verið erfitt þegar við búum hvor í sinni álfunni,“ segir Greta. Hún útskýrir að Hólmfríður sjái alfarið um að semja lögin en að þær hafi sent einhverja texta sín á milli. „Ég átti það líka til að spila á úkúlele í Boston, taka það upp og senda Hófí og spyrja hana álits. Svo þegar ég kom heim um páskana fórum við bara beint í stúdíó og tókum upp allt sem ég þurfti að gera og svo fór ég bara aftur út.“ Greta segir þær ætla að spila frumsamið efni á tónleikunum í bland við þekkt lög sem þær klæða í nýjan búning. „Þetta verða mestmegnis lögin okkar en inn á milli tökum við einhver lög sem við fílum og þekkjum og breytum þeim svolítið. Við tökum til dæmis eitt lag með Kanye West á úkúlele og svona.“ Tónleikarnir fara fram í veislu- sal Breiðabliks í Kópavoginum og er það engin tilviljun. „Við eigum að sjálfsögðu augljósa tengingu við Smárann og nýtum öll sam- bönd sem við höfum,“ segir Greta, en foreldrar þeirra, Ásta B. Gunn- laugsdóttir, fyrrum landsliðskona í knattspyrnu, og Samúel Örn Erlingsson íþróttafréttamaður, eru miklir Blikar. Hólmfríður Ósk er í mastersnámi í lýðheilsu- fræðum en starfar að auki sem stundakennari í grunnskólanum í Grindavík. Greta Mjöll er útskrif- uð úr fjölmiðlafræði og vinnur um þessar mundir að meistaraverk- efni sínu í stafrænni fjölmiðlun en samhliða spilar hún knattspyrnu með Breiðabliki og er nú alfarið flutt heim frá Bandaríkjunum. „Núna getum við loksins farið að spila saman á ný. Það eru spenn- andi tímar fram undan.“ kristjana@frettabladid.is Spila Kanye á úkúlele Systurnar Greta Mjöll og Hólmfríður Ósk Samúelsdætur skipa dúettinn SamSam. SAMEINAÐAR Á NÝ Systurnar Greta Mjöll og Hólmfríður Samúelsdætur halda tónleika í Smáranum þann 4. janúar næstkomandi. MYND / HANNA GESTSSDÓTTIR NÝÁRSHEITIÐ „Ég set mér yfirleitt engin nýársheit. En ætli ég reyni ekki að vera duglegri að skipuleggja mig og hætta að fresta hlutunum á nýju ári.“ Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir, Retro Stefson „Þetta var brjáluð eldskírn. Allt út í blóði og ógeði,“ segir Saga Garðarsdóttir leikkona um frumsýningu Macbeth í Þjóðleikhúsinu á annan í jólum. Verkið er það fyrsta sem hún frumsýnir í atvinnuleikhúsi en hún útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands í vor. „Það var ótrúlegur heiður að fá að frum- sýna Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins ástralska Benedicts Andrews,“ segir Saga. Hún fer með hlutverk aðalsmannsins Lenoffs. Áður hafði hún stokkið inn í hlutverk elgsins í Dýrunum í Hálsaskógi. Hvernig er að fá aðeins að leika karl- kyns eða kynlausar persónur? „Mér finnst það bara skemmtilegt. Ég hef verið að leika unga og velvilj- aða drengi. Það er orðið svolítið mín týpa. Ég yrði mjög hörundsár ef Pétur Pan væri settur upp án mín,“ segir hún. „Í Dýrunum í Hálsaskógi ætlaði ég að leika kvenkyns elg en þegar ég fór í jakkafötin, setti upp hattinn og gráa hárið varð ég ósjálfrátt að gömlum karlelg með djúpa rödd.“ „Guðjón Pedersen var samt svo hugrakkur að setja mig í kvenhlutverk í næsta verki,“ segir hún og á við leikritið Fyrirheitna landið. „Ég fékk meira að segja að æfa mig í að leika stelpu og kyssa gamla karla um daginn við tökur á þættinum Hæ Gosi.“ Auk hermannsins leikur hún tré í Macbeth. „Við leikum heilan skóg saman og mér finnst það heiður að leika jafn rótgróna leikhúspersónu og tré.“ - hþt Leikur unga og velviljaða drengi Saga Garðarsdóttir fer með nokkur hlutverk í Macbeth í Þjóðleikhúsinu. FYRSTA FRUMSÝNINGIN „Það var ótrú- legur heiður að fá að frumsýna Macbeth eftir Shakespeare,“ segir Saga en hún leikur aðalsmann og tré. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI www.enskafyriralla.is Skipuleggjum einnig námsferðir til Englands fyrir hópa og einstaklinga. Enskuskóli Erlu Ara Enskuskóli Erlu Ara auglýsir enskunám í Hafnarfirði fyrir byrjendur og lengra komna. Á hverri önn sækja um 200 nemendur enskunám í skólanum, langflest konur á aldrinum 40 ára og eldri. Við bjóðum upp á: 10 getustig með áherslu á tal. Styrkt af starfsmenntasjóðum. Skráning í síma 8917576 og erlaara@gmail.com Þú ert velkominn í heimsókn og tekur ákvörðum eftir fyrsta tíma hvort þú viljir taka þátt. Ferðaskipuleggjandi Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.