Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 4
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
ALÞINGI Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir, þingmaður Vinstri hreyf-
ingarinnar
– græns fram-
boðs lét af þing-
mennsku um ára-
mótin.
Ólafur Þór
Gunnarsson,
læknir og bæjar-
fulltrúi í Kópa-
vogi, tekur sæti
Guðfríðar.
Guðfríður sagði
formlega af sér
þingmennsku á
gamlársdag með
bréfi til forseta
Alþingis.
Hún hefur
verið formaður
umhverfis- og
samgöngunefnd-
ar Alþingis frá
haustdögum 2011
en var áður for-
maður þingflokks VG og formaður
félags- og tryggingamálanefndar
þingsins.
Guðfríður Lilja hættir:
Ólafur Þór
tekur sætið
GUÐFRÍÐUR
LILJA GRÉTARS-
DÓTTIR
ÓLAFUR ÞÓR
GUNNARSSON
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
LÖGREGLUMÁL Sérsveit ríkislög-
reglustjóra var kölluð að heima-
húsi í Hafnarfirði árla á nýárs-
morgun vegna vopnaðs manns.
Tilkynnt hafði verið um slags-
mál og þegar lögregla mætti á
staðinn kom á daginn að maður
í húsinu var vopnaður hagla-
byssu. Sérsveitin handtók mann-
inn og var hann vistaður í fanga-
geymslu. Haglabyssan reyndist
óhlaðin, en á staðnum fannst
einnig riffill og eru bæði vopnin
nú í vörslu lögreglu. - sh
Sérsveitin tók haglabyssu:
Afvopnaður í
Hafnarfirði
232,8427
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,68 129,30
206,99 207,99
169,45 170,39
22,710 22,842
22,995 23,131
19,729 19,845
1,4914 1,5002
197,55 198,73
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
28.12.2012
STJÓRNMÁL Endurmeta þarf störf láglauna-
stétta og fjölmennra kvennastétta í kom-
andi kjarasamningum. Þetta sagði Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra í áramóta-
ávarpi sínu í sjónvarpinu á gamlárskvöld.
Hún hvatti aðila á vinnumarkaði til að
halda friðinn og sættast á bætt kjör þeirra
sem lakast standa.
Jóhanna vék einnig að endurskoðun
stjórnarskrárinnar og sagði að niðurstöður
þjóðaratkvæðagreiðslunnar í október hefðu
verið afgerandi.
„Þjóðin kallar eftir breytingum á grunn-
reglum samfélagsins. Málið er nú í höndum
Alþingis og ábyrgð þess gagnvart almenn-
ingi er mikil. Það er einlæg von mín að
alþingismönnum auðnist nú að ná saman
um breytingar á stjórnskipan landsins
fyrir komandi alþingiskosningar.“
Jóhanna áréttaði að hún teldi landið á
réttri leið þrátt fyrir deilur og átök.
„Þó sumum finnist á stundum að
firringin frá 2007 sé aftur farin að skjóta
upp kollinum er það mikilsverður árang-
ur, að slík ógn við heiðarleg og sanngjörn
samfélagsleg gildi á erfiðara uppdráttar og
mun færri bandamenn en á árunum fyrir
hrun.“ - sh
Jóhanna Sigurðardóttir hvetur aðila vinnumarkaðarins til að halda friðinn í komandi kjarasamningum:
Endurmeta þarf láglauna- og kvennastörf
KALLAÐ EFTIR BREYTINGUM 2007-ógnin á færri banda-
menn nú, segir Jóhanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANDARÍKIN Tæknilegir örðuleikar
urðu til þess að frestur til að kjósa
um kvikmyndir ársins til Óskars-
verðlaunanna var framlengdur um
einn sólarhring.
Þetta var í fyrsta sinn sem hin
svokallaða Akademía gat kosið um
myndirnar á netinu, en sumir virt-
ust ekki geta skráð sig inn á síðuna
og mörgum fannst kerfið flókið, að
sögn BBC. Að öllu óbreyttu verður
tilkynnt um tilnefningarnar hinn
10. janúar næstkomandi.
Alls eru sex þúsund meðlimir í
Akademíunni. Meðalaldur félaga
er 62 ár og um 14 prósent eru yngri
en fimmtíu ára. - sv
Óskarsakademían í vanda:
Gat ekki kosið
DANMÖRK Margrét Þórhildur
Danadrottning gerði samskipta-
síðuna Facebook að umfjöllunar-
efni í nýárs-
ávarpi sínu í
gær. Drottn-
ingin varaði við
notkun síðunn-
ar, þá sérstak-
lega hjá ungu
fólki, þar sem
því hætti til að
reyna að búa
sér til „full-
komið líf“ á síð-
unum og hætti
þá að sýna sitt rétta andlit.
Þetta ræddi Margrét í ljósi
þess að mannleg samskipti eru
í auknum mæli að færast yfir á
netið og sagði að með því yrðu
þau yfirborðslegri og ekki eins
raunveruleg.
Þess má geta að þrjár Face-
book-síður eru tileinkaðar Mar-
gréti Þórhildi: Ein aðdáendasíða,
einn hópur og ein persónuleg í
hennar nafni sem stofnuð var í
mars síðastliðnum. - sv
Þrjár síður um Margréti:
Drottning varar
við Facebook
MARGRÉT
ÞÓRHILDUR
STJÓRNARSKRÁ Frumvarpið að
nýrri stjórnarskrá felur í sér
umbyltingu á stjórnkerfi landsins,
að mati Ólafs Ragnars Grímsson-
ar, forseta Íslands. Hann telur að
djúpstæðar deilur um efni þess séu
ekki vænlegar til árangurs og ná
þurfi sátt um mikilvægustu atrið-
in. „Ella yrði farið úr öskunni í eld-
inn,“ sagði forsetinn í nýársávarpi
sínu í gær.
Ólafur varði nálega helmingi
ávarpsins í umfjöllun um stjórnar-
skrármálið. „Því er miður að nú um
áramótin blasir við að umræðan
um nýja stjórnarskrá er á ýmsan
hátt komin í öngstræti,“ sagði hann.
„Lítil sem engin umræða hefur
orðið um hið nýja stjórnkerfi sem
tillögurnar fela í sér, hvernig sam-
spili Alþingis, ríkisstjórnar og for-
seta yrði háttað.“
Forsetinn sagði að með því að
leggja niður ríkisráð hefði þjóð-
höfðinginn og ríkisstjórn engan
formlegan samráðsvettvang leng-
ur, ráðherrar sem hlotið hefðu
brautargengi í kosningum til þings
yrðu sviptir málfrelsi á Alþingi,
„einstaklingum yrði auðveldað að
ná þingsetu í krafti fjölmiðlafrægð-
ar“, dregið yrði úr áhrifum flokka
og hlutur landsbyggðar rýrður.
Þá gagnrýndi hann mjög að
frumvarpið gerði ráð fyrir stór-
auknum völdum forseta og for-
sætisráðherra. „Forsætisráðherra
fengi agavald yfir ráðherrum ann-
arra flokka og gæti einn rekið þá
alla; virðist sem tillögumenn telji
að helsti galli íslenskrar stjórn-
skipunar á undanförnum áratugum
hafi verið að forsætisráðherrar – og
reyndar forseti líka – hefðu þurft
enn meiri völd.“
Þetta sagði hann að „yrði tilraun
um stjórnkerfi sem ætti sér engan
líka á Vesturlöndum.“
Ólafur Ragnar sagði að nú væri
reynt að gera mikla gagnrýni
fræðimanna á frumvarpið tor-
tryggilega. „Slíkur málflutningur
minnir því miður á skollaeyrun
sem ýmsir skella við rannsóknum
á hlýnun jarðar,“ sagði hann. „Var
ekki helsti lærdómur hrunsins að
taka ætti meira mark á þeim sem í
krafti þekkingar vara við hættun-
um handan við hornið?“
stigur@frettabladid.is
Óttast að við förum
úr öskunni í eldinn
Forseti Íslands gagnrýnir frumvarp að nýrri stjórnarskrá harðlega og segir að hún
yrði „tilraun um stjórnkerfi sem ætti sér engan líka á Vesturlöndum“. Hrunið hafi
átt að kenna okkur að hlusta á viðvaranir fræðimanna. Afgreiða þurfi málið í sátt.
VILL EKKI AUKIN VÖLD Forsetanum og forsætisráðherra yrðu færð stóraukin völd
með nýju stjórnarskránni, að mati forsetans sjálfs. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Stjórnlagaráðsmaðurinn Þorvaldur Gylfason segir að vilji þjóðarinnar sé
skýr, enda hafi málið fengið eins lýðræðislega meðferð eins og hugsast
gat frá árinu 2009. Hann er ekki sammála þeirri túlkun forsetans að ný
stjórnarskrá auki völd hans.
Þá sé gagnrýni forsetans of seint fram komin, enda sé allri efnislegri
umræðu um málið lokið. „Þá er bara orðið of seint að ætla að rífa lestina
af teinunum. Lestin er komin á teinana og endir málsins er í augsýn og þá
byrja menn ekki að þrefa um efnisatriði sem þeir hefðu átt að vera löngu
búnir að vekja máls á ef þeim væri einhver alvara með því.“ - lvp
Of seint að rífa lestina af teinunum
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Föstudagur
Gengur í hvassa sunnanátt með
úrkomu.
NÝJA ÁRIÐ HEILSAR MEÐ HLÁKU því það hlýnar á landinu næstu daga. Talsverð
úrkoma fellur sunnan- og vestanlands sem rigning eða slydda og þar verður einnig
nokkuð vindasamt. Mun hægari vindur og minni úrkoma verður norðaustan til.
X°
5
m/s
1°
5
m/s
3°
4
m/s
6°
5
m/s
Á morgun
Fremur hægur vindur fram eft ir degi
en vaxandi síðdegis S- og V-lands.
Gildistími korta er um hádegi
6°
4°
6°
5°
4°
Alicante
Aþena
Basel
15°
14°
2°
Berlín
Billund
Frankfurt
6°
6°
7°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
4°
5°
5°
Las Palmas
London
Mallorca
21°
11°
14°
New York
Orlando
Ósló
1°
25°
-5°
París
San Francisco
Stokkhólmur
8°
11°
1°
3°
3
m/s
3°
5
m/s
1°
6
m/s
1°
8
m/s
0°
3
m/s
0°
1
m/s
-2°
6
m/s
3°
1°
3°
3°
3°