Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2013 3Heilsuhótel Íslands ● Smákvillar hverfa og sálin endurnærist, líkaminn léttist og húðin sléttist við dvöl á Heilsuhóteli Íslands í Reykjanesbæ, að sögn Sifjar Sigfúsdóttur, markaðs- og samskiptastjóra í Háskóla Íslands. Hún hefur tvívegis nýtt sér þjónustu hótelsins ásamt eiginmanni sínum. „Ég heillaðist af þeirri hugmynd strax frá upphafi að hér á landi væri til heilsuhótel þar sem hægt væri að huga að mataræði og hreyfingu á sama tíma. Fólk þarf heldur ekki til Austurlanda til að íhuga og endurnæra sálina, við höfum hér okkar hreina loft og hreina vatn ásamt fínni aðstöðu,“ segir Sif Sigfúsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri á félagsvís- indasviði Háskóla Íslands. Hún hefur tvívegis nýtt sér þjónustu Heilsuhótels Íslands á Reykja- nesi ásamt eiginmanni sínum. „Það gerir líkamanum mjög gott að hreinsa út allan sykur og kol- vetni, sleppa kaffi og auðvitað aukaefnum í mat, eins og við gerðum á hótelinu, þannig að dvölin virkaði mjög vel á okkur en við höfðum ekki áður prófað að taka þetta allt út í einu. Við sjáum það alltaf betur og betur hvað mataræði stjórnar andlegu jafnt sem líkamlegu jafnvægi. Á sunnudögum er einungis neytt safa og þeir eru allir ný- pressaðir. Svo er haldinn vatns- dagur þar sem eingöngu er drukkið vatn og te. Allt hefur þetta mjög góð áhrif á líkamann. Þess á milli borðum við salöt og mikið grænmeti. Það er eins og líkaminn losi sig við eitur- efni sem hafa safnast upp, húðin hreinsast og appelsínu húð hverf- ur, maður fær eiginlega nýtt tækifæri sem er líka ný byrj- un.“ Sif segir hótelið í alla staði vera mjög fínt og þægilegt og hún segir gaman að dvelja þar, njóta þess að fara í sauna, líkamsrækt, hitaklefa, slaka á, fara í göng- ur snemma á morgnana, teygjur og slökun eftir gönguna, borða hollan mat og drekka holla safa. „Þetta er tími sem hver og einn á fyrir sig og ræktar eigin lík- ama og sál. Ég veit að hóteldvöl- in hefur kveikt ljós hjá mörgum og verið fólki stökkpallur inn í breyttan lífsstíl til frambúðar.“ Dvöl á Heilsuhóteli Íslands ólík öllu sem ég hef prófað „Ég veit að hóteldvölin hefur kveikt ljós hjá mörgum og verið stökkpallur inn í breyttan lífsstíl til frambúðar,“ segir Sif Ólafur Ísleifsson missti hátt í tíu kíló á tveimur vikum. Hagfræðingurinn Ólafur Ísleifs- son tók þá ákvörðun að sækja um dvöl á Heilsuhótelinu í sumar og sér ekki eftir því. „Allar mínar væntingar upp- fylltust og ég er mjög ánægður með þann árangur sem ég náði.“ Ólafur dvaldi á hótelinu í tvær vikur og missti hátt í tíu kíló. „Ég upplifði það mjög sterkt að þarna gekk ég inn í þrautprófað plan sem snýst um skynsamlegt mataræði, hreyfingu og hvíld.“ Ólafur segir auk þess mikla náttúrufegurð á Reykjanesinu sem margir láta fram hjá sér fara. „Mér fannst gaman að ganga um Keflavík, Njarðvík, Sandgerði og Garðinn og skoða vitana og söfnin í kring,“ segir Ólafur og dregur kosti hótelsins saman. „Þarna er um að ræða skilvirka dagskrá og andrúmsloftið er létt og skemmti- legt. Aðbúnaðurinn er til fyrir- myndar og umhverfið áhugavert.“ Ólafur segir dvölina hafa fram- kallað hugarfarsbreytingu hjá sér. „Eins og ég upplifi þetta þá eru nokkrar grundvallarreglur sem þarf að fara eftir. Það er að sneiða hjá hvítum sykri, hvítu hveiti og temja sér hófsemi.“ Endurheimti fataskápinn eftir skemmtilega dvöl á Heilsuhótelinu Dvölin á Heilsuhótelinu stóðst fyllilega væntingar Ólafs og segir hann náttúrufegurðina og umhverfið í kring ánægjulegan bónus. Sigvør Laksá, umboðsmaður Eivarar Pálsdóttur, nýtur hvíldarinnar á Heilsuhóteli Íslands og kemur aftur og aftur. „Þetta er orðinn hluti af mínum lífsstíl. Ég var ekki dæmigerð- ur gestur Heilsuhótelsins heldur var ég fyrst bara að fylgja systur minni. Eftir tíu daga dvöl í fyrsta sinn kom þó ekki annað til greina en að koma aftur. Ég fann mikinn mun á mér. Ég léttist um tólf kíló og þau hafa ekki komið aftur,“ út- skýrir Sigvør Laxá frá Færeyj- um en hún lauk sinni þriðju dvöl á Heilsuhóteli Íslands í sumar. Hún segir fyrstu heimsóknina hafa breytt heilsu sinni til hins betra. „Ég hef aldrei verið mjög þung en mátti þó léttast um tíu til fimm- tán kíló. Ég var hins vegar farin að finna fyrir ýmsum kvillum, svo sem stífleika í höndum og fótum, sem ég hélt að væru bara fylgi- kvillar aldursins. Þessir kvillar hurfu allir á meðan á dvölinni stóð.“ Sigvør sinnir annasömu starfi sem umboðsmaður eins frægasta tónlistarmanns Færeyja, Eyvar- ar Pálsdóttur. Norðurlandabú- ar eru stór hluti gesta Heilsuhót- els Íslands. Nú fjölmenna Færey- ingar á hótelið enda stutt að fljúga milli landanna. „Fiskisagan flýg- ur hratt í Færeyjum. Við systurn- ar vorum bara tvær fyrst en núna sækir fjöldi Færeyinga hótelið í hverjum mánuði,” segir Sigvør. Færeyingar fjölmenna á Heilsuhótelið „Ég var ekki dæmigerður gestur Heilsu- hótelsins heldur var ég fyrst bara að fylgja systur minni. Eftir tíu daga dvöl í fyrsta sinn kom þó ekki annað til greina en að koma aftur,“ segir Sigvør Laksá, umboðsmaður Eyvarar Pálsdóttur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.