Fréttablaðið - 25.01.2013, Qupperneq 2
25. janúar 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
EFNAHAGSMÁL Auknar opinberar
álögur hafa hækkað hér verðbólgu
síðustu ár um fimm til sex pró-
sent, samkvæmt áætlun hagdeild-
ar Alþýðusambands Íslands.
„Ríki og sveitarfélög hafa á síð-
ustu árum aukið álögur á heim-
ilin með ítrekuðum hækkunum
á gjaldskrám og neyslusköttum.
Þessar hækkanir skila sér beint
út í verðlag og valda aukinni verð-
bólgu,“ segir í tilkynningu ASÍ í
gær.
„Frá árinu 2008 hefur opin-
ber þjónusta hækkað um ríflega
35 prósent auk þess sem auknar
álögur á eldsneyti, áfengi og tóbak
hafa valdið um þriðjungshækkun
á þessum vörum á tímabilinu.“
Fram kemur í umfjölluninni
að áhrifum af álögum opinberra
aðila á verðlag megi skipta ann-
ars vegar í beinar hækkanir á
gjaldskrám og hins vegar í ýmsa
neysluskatta sem leggjast á verð
vöru og þjónustu. Meðal aukinna
álaga sem áhrif hafa til hækkun-
ar á verðbólgu eru nefndar hækk-
anir sveitarfélaga á leikskóla- og
vistunargjöldum, stóraukin sorp-
hirðu- og holræsagjöld, hækk-
un á virðisaukaskatti og sérstak-
ar álögur á eldsneyti, tóbak og
áfengi.
„Opinberir aðilar hafa í upp-
hafi þessa árs enn aukið álögur
sem leitt hafa til hækkana á flest-
um þeim liðum sem hér er fjallað
um,“ segir hagdeild ASÍ. - óká
Gestur, færðu ekki gestahlut-
verk í myndinni?
„Að sjálfsögðu, glöggt er gests
augað.“
Gestur Valur Svansson hefur selt Hollywood-
stjörnunni Adam Sandler handrit að
bíómynd sem ber vinnuheitið The Last
Orgasm.
KJARAMÁL Björn Zoëga, for-
stjóri Landspítalans, segist nú
hafa umboð frá stjórnvöldum til
að semja við hjúkrunarfræðinga
spítalans. Slíkt mun kosta ríkis-
sjóð hundruð milljóna króna.
RÚV sagði frá þessu í gærkvöldi.
Rúmlega 250 hjúkrunarfræð-
ingar sögðu upp á Landspítalanum
í nóvember. Stjórnendur spítal-
ans hafa sagt að aukafjárframlag
þurfi frá ráðuneytinu til að hækka
launin. Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra sagði á Alþingi
í gær að aukaframlög væru til
umræðu þótt engar tölur hefðu
verið nefndar. - bþh
Hefur umboð til samninga:
Aukafjárfram-
lög í augsýn
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
dæmt þrítugan Ísfirðing í fimm
mánaða fangelsi fyrir að taka
myndir af fjórtán ára stelpum
þar sem þær lágu naktar í ljósa-
bekk. Það er sama refsing og
maðurinn hlaut í héraði.
Maðurinn tók samtals 96 ljós-
myndir af stúlkunum tveimur án
þeirra vitundar og geymdi þær
í tölvu sinni. Hann er sakfelld-
ur fyrir blygðunarsemisbrot og
vörslu barnakláms.
Hann hlaut árið 2008 eins
mánaðar skilorð fyrir að dreifa
nektar myndum af íslenskri
stúlku í heimildarleysi. - sh
Dæmdur í annað sinn:
Myndaði 14 ára
stelpur í ljósum
SAMGÖNGUR Eigendur ökutækja
sem urðu fyrir skemmdum vegna
malbiksblæðinga á þjóðvegum síð-
ustu daga fá tjón sitt bætt, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
Vegagerðinni.
Vegagerðin hefur samið við sitt
tryggingafélag, Sjóvá, um að bæta
tjón á ökutækjum „sem sannanlega
má rekja til framangreindra blæð-
inga dagana 18.-23. janúar“.
Vegagerðin segir ákvörð-
un þessa tekna þrátt fyrir að
orsök blæðinganna liggi ekki
nákvæmlega fyrir. Hún hafi ekki
fordæmis gildi.
Vegagerðin biður vegfarendur
velvirðingar á ástandinu sem skap-
aðist og óþægindum sem það olli.
Þeim sem hafa orðið fyrir tjóni
af þessum völdum er bent á að hafa
samband við Sjóvá og fylla þar út
tjónaskýrslu.
Vegagerðin býður ökumönnum
þeirra ökutækja sem eru verulega
óhrein af völdum tjörunnar að fá
beiðni fyrir þrifum á næstu starfs-
stöð Vegagerðarinnar. - þj
Vegagerðin biðst velvirðingar á skemmdum sem urðu á þjóðvegunum og ollu tjóni á ökutækjum:
Vegagerðin bætir tjón vegna tjörublæðinga
TJÖRUKLESSUR Vegagerðin mun bæta
það tjón sem varð á ökutækjum vegna
tjörublæðinganna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Vegagerðin segir að tjörublæðing
úr malbiki hafi þekkst um langt
skeið en ástandið nú sé óvenju
slæmt. Notkunn repjuolíu og
lífolíu í bundið slitlag á 40-45
km kafla á árunum 2010-
2011 er sögð vera meginorsök
blæðinganna. Olían hefur ekki
þolað tíðar veðrabreytingar. Sýni
úr malbikinu hafa verið send
erlendis til frekari rannsóknar.
➜ Olían þolir ekki
veðrabreytingar
Kostnaðarliður Hækkun 2008-2012 Vísitöluáhrif
Leik- og grunnskólar 35-36% 0,3-0,4%
Sorphirða, holræsi og vatn 50% / 60% / 32% 0,63%
Rafmagn og hiti 66% 1,4%
VSK úr 24,5% í 25,5% 0,2%
Áfengi og tóbak 30%* 0,7-0,8%
Bensín og olíur 32%* 1,2-1,3%
Heilbrigðisþjónusta 34% 0,5%
*Hækkun sem rekja má til hækkana á opinberum álögum
Heimild: Hagdeild ASÍ
Áhrif hins opinbera á verðlag 2008-2012
Hagdeild ASÍ gagnrýnir skattahækkanir ríkis og sveitarfélaga:
Hið opinbera eykur verðbólgu
MALÍ Íbúar í bænum Mopti í Malí hafa gripið til vopna og búið sig undir
áhlaup íslamskra uppreisnarmanna.
Þessi 120 þúsund manna bær með blómlegum ferðamannaiðnaði er
einungis fimmtíu kílómetrum frá borginni Konna, sem vígamenn tengdir
Al Kaída náðu á sitt vald 10. janúar.
Árásin á Konna varð til þess að Frakkar, fyrrverandi nýlenduherrar
Malí, gripu inn í með loftárásum og nú hefur sljákkað mjög í uppreisnar-
öflunum. - sh
Íbúar Mopta í Malí hafa vopnbúist af ótta við Al Kaída:
Óttast áhlaup uppreisnarmanna
REIÐUBÚINN Þessi Moptabúi, Sadou að nafni, er einn fjölmargra sem er með vopn
við höndina ef til þess kæmi að uppreisnarmenn réðust á bæinn. NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAGSMÁL Íbúum búsettum
á Íslandi fjölgaði um alls 2.010
á fyrstu ellefu mánuðum ársins
2012. Íbúum í Reykjavík fjölgaði
um 815 og íbúum í öðrum sveitar-
félögum höfuðborgarsvæðisins
um samanlagt 1.015 á tímabilinu.
Íbúum á landsbyggðinni fjölgaði
um 180.
Þetta leiðir nýuppfærð
íbúaskrá Þjóðskrár í ljós en stofn-
unin gefur 1. desember ár hvert
út lögbundna íbúaskrá fyrir
sveitar félög landsins. Liggur
skráin meðal annars til grund-
vallar skiptingu fjármuna úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og þá
miðast kosningaréttur íslenskra
ríkisborgara sem hafa átt lög-
heimili erlendis við skrána.
Íbúum fjölgaði í 41 af 75
sveitar félögum landsins en
fækkaði í 34. Hlutfallslega fjölg-
aði íbúum mest í Eyja- og Mikla-
holtshreppi á Vesturlandi eða
um 18,18%. Þar búa nú 156 ein-
staklingar. Íbúum fækkaði hins
vegar mest í Kjósarhreppi eða um
7,27%. Þar búa nú 204.
Flóahreppur, Svalbarðsstrand-
arhreppur, Tálknafjarðarhreppur
og Bolungarvík voru í hópi ann-
arra sveitarfélaga þar sem íbúum
fjölgaði hlutfallslega mikið.
Íbúum fækkaði aftur á móti hlut-
fallslega mikið í Kjósarhreppi,
Ásahreppi, Sandgerði, Breiðdals-
hreppi og Skorradalshreppi.
Sé einungis litið á stærstu
sveitar félög landsins fjölgaði
íbúum hlutfallslega mikið í Kópa-
vogi og Garðabæ en fækkaði í
Skagafirði og í Ísafjarðarbæ.
magnusl@frettabladid.is
Íbúum fjölgar mest í
Kópavogi og Garðabæ
Landsmönnum fjölgaði um ríflega tvö þúsund á fyrstu ellefu mánuðum ársins
2012. Þar af fjölgaði íbúum á höfuðborgarsvæðinu um 1.830 og íbúum á lands-
byggðinni um 180. Íbúum fjölgaði sérstaklega mikið í Kópavogi og Garðabæ.
KÓPAVOGUR Mest fjölgun íbúa varð í Kópavogi á síðasta ári miðað við heildar-
fjölda íbúa sveitarfélagsins. Samtals fjölgaði þeim um 474 íbúa sem samsvarar
1,52%. Mest fólksfækkun var í Skagafirði þar sem íbúunum fækkaði um 17 eða
0,42%. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sveitarfélag Íbúar 1. jan 2012 Íbúar 1. des 2012 Breyting
Reykjavíkurborg 118.814 119.629 +815 = 0,69%
Kópavogur 31.205 31.679 +474 = 1,52%
Hafnarfjörður 26.486 26.763 +277 = 1,05%
Akureyri 17.875 17.956 +81 = 0,45%
Reykjanesbær 14.137 14.232 +95 = 0,67%
Garðabær 11.283 11.450 +163 = 1,48%
Mosfellsbær 8.854 8.950 +96 = 1,08%
Árborg 7.783 7.833 +50 = 0,64%
Akranes 6.592 6.636 +44 = 0,67%
Fjarðabyggð 4.600 4.621 +21 = 0,46%
Seltjarnarnes 4.313 4.332 +19 = 0,44%
Vestmannaeyjar 4.194 4.219 +25 = 0,60%
Skagafjörður 4.024 4.007 -17 = -0,42%
Ísafjarðarbær 3.755 3.744 -11 = -0,29%
Borgarbyggð 3.470 3.482 +12 = 0,35%
Mannfjöldaþróun í sveitarfélögum
SPURNING DAGSINS