Fjarðarpósturinn - 01.11.1984, Page 6

Fjarðarpósturinn - 01.11.1984, Page 6
6 FJARÐARPÓSTURINN ÁGREININGUR UM MINNISMERKI Fegrunarnefnd leggur fram tillögur að minnismerki um fyrstu almenningsrafveitu landsins. Fegrunarnefnd Hafnarfjarðar. Fegrunarnefnd Hafnarfjarðar, en í henni eiga sæti Sjöfn Magnús- dóttir, Helga Guðmundsdóttir og Sigríður Magnúsdóttir, hafði um það frumkvæði nú í haust að gerðar voru tillögur að minnismerki um fyrstu almenningsrafveitu landsins. Sú var gerð af Jóhannesi Reykdal árið 1904, þannig að í ár eru liðin 80 ár frá því aö Lækurinn var virkjað- ur og rafljós lýstu upp tilveru Hafnfirðinga. Minnismerkjatillögurnar voru unnar af Guðmundi Gunnlaugs- syni, arkitekt. Ætlun fegrunar- nefndar var að ná samstöðu með rafveitunefnd og bæjarráði um val einnar tillögunnar, staðsctningu minnismerkisins og alla fram- kvæmd. En málið tók nokkuö aöra stefnu en því var ætluö. Til þess að rekja það á sem hlutlausastan hátt, birtir Fjarðarpósturinn hér úrdrætti úr bréfaskriftum, greinargerðum og fundargerðum varðandi minnis- merkismálið, en það liggur nú i lág- inni og óvíst er hvenær þaö verður tekið upp að nýju. Fegrunarnefnd sendi rafveitu- nefnd bréf 3. ágúst sl. þar segir m.a.: „Hamarskotslækur. — Lækur- inn í Hafnarfirði hefur alltaf verið eitt af áhugamálum fegrunarnefnd- ar. Nú á þessu ári eru 80 ár liðin frá því, er hugvitsmaðurinn Jóhannes Reykdal virkjaði lækinn. í tilefni af þeim tímamótum finnst nefndinni viðeigandi að merkja staðinn og upplýsa þannig almenning um það stórkostlega brautryðjendastarf, er þar átti sér stað. Arktekt Guðmundur Gunn- laugsson, gerði meðfylgjandi til- lögur i sjálfboðavinnu, fegrunar- nefnd að kostnaðarlausu. Með þessu bréfi, óskar fegrunar- nefndin eftir vinsamlegri samvinnu við rafveitunefnd og biður um álit á meðfylgjandi tillögum!1 Og þann 8. ágúst sendir fegrunar- nefnd bæjarráöi bréf og þar segir m.a.: „Fegrunarnefnd Hafnarfjarðar sendir hér með afrit af bréfi til Raf- veitunefndar Hafnarfjarðar, ásamt tillögum að minnismerki um fyrstu almenningsrafveitu á íslandi" „Það er eindregin ósk nefndar- innar að bæjarráð sjái til að máli þessu verði framfylgt" Bæjarráð samþykkti þann 28. september sl. aö beina því til raf- veitunefndar, að hún skili umsögn um erindi fergunarnefndar. Meö þessari samþykkt bæjarráös var boltanum varpað til rafveitu- nefndar og henni gert að kynna sér minnismerkjatillögur fegrunar- nefndar og skila um þær skriflegri umsögn. Eftir hægan aðdraganda tók raf- veitunefnd málið fyrir á fundi 22. október sl. í fundargerö þess fundar kennir ýmissa grasa. Brynjólfur lagði fram tillögu: Formaður rafveitunefndar, Brynjólfur Þorbjarnarson, lagði fram tillögu ásamt greinargerð, en í henni segir m.a.: „Um það hefur ekki verið deilt, að veigamiklar og sögulegar ástæð- ur lægju nú til, að þessa merka atburðar verði minnst með myndar- legurn hætti við þau tímamót sem framundan eru. 1 þessu samandi hefur undirritaður bent á, að stefna beri að því að efnt verði til opin- berrar samkeppni um gerð tákn- ræns minnismerkis og tengist sú ákvörðunartaka þeim merka at- burði er Hamarskotslækurinn var virkjaður fyrir 80 árum. Að mati undirrtaðs verður að telja verulegan greinarmun á að gjöra samning við einstakling úti i bæ til að leysa slíkt verkefni ókeypis af hendi, eins og nú virðist hafa komið fram hugmyndir um að gjöra. Eða hinsvegar, að bjóða verkið út til almennrar samkeppni með tilheyrandi skilyrðum eins og venja er til hjá því opinbera. Til að minnismerki af því tagi er hér um ræðir njóti sín, og túlki um leið réttan tilgang sinn — verður að telja mikilvægt að því sé valinn staður á vel opnu svæði þar sem vítt sést tii, en ekki á innilokuðum stað við þröngar götur eða i húsasund- um. Undirritaður telur að æskilegasti staður á Lækjarsvæðinu sé valinn miðsvæðis milli hinna tveggja virkjunarstaða sent eru fyrir hendi við austurbakka Lækjarins, fram- an við Rafha!1 í tillögu Brynjólfs segir m.a.: „...auglýst verði samkeppni um gerð reisulegs minnismerkis (symbóls) sem sett verði upp mið- svæðis á Lækjarsvæðinu jafnframt og í tengslum við umrædd timamót. Skorar rafveitunefnd á hæstvirta bæjarstjórn að hún taki ákvörðun varðandi uppbyggingu og frágang Lækjarsvæðisins, þar sem skipulag þess er nú í stórum dráttum fyrir hendií* Félagar Brynjólfs í rafveitu- nefndinni, Sveinn Guðbjartsson og Garðar Steindórsson, lögöu fram sameiginlega tillögu, en í lienni segir m.a.: „Rafveitunefnd fagnar þeim áhuga sem bæjarráð hefur sýnt þessu máli með því að óska um- sagnar á hugmyndum, sem Guð- mundur Gunnlaugsson hefur gert. Hafi bæjarráð áhuga á að þessi leið verði farin við val á minnisvarða, mælir rafveitunefnd með því að meðfylgjandi hugmynd verði út- færð nánar. Æskileg staðsetning væri á horni Austurgötu og Lækjargötu." (Til glöggvunar er hér átl við til- lögu nútner 4) Þá var gengið til atkvæða og fékk tillaga Brynjólfs 1 atkvæði en til- laga Sveins og Garöars 2 atkvæði. Að atkvæðagreiðslunni lókinni hófust bókanir: Garðar Steinþórsson bókaði: Garðar Steindórsson bókaði m.a.: „Ég get ekki undir neinum kring- umstæðum fallist á tillögu Brynjólfs Þorbjarnarsonar, eins og hún er fram sett, því þar er farið langt úr fyrir það erindi, sem um- sagnar er óskað um. Ég tel það ekki í verkhring rafveitunefndar að skora á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún taki ákvörðun um uppbygg- ingu og frágang Lækjarsvæðisins né annarra staða í bænum. Með því væri nefndin að fara út fyrir sitt valdsvið. Ég vil lýsa furðu minni á því hve mikill ágreiningur, um ekki stærra mál er innan þess flokks sem Brynjólfur Þorbjarnarson er full- trúi fyrir og þykir miður að sá ágreiningur skuli kominn inn á borð rafveitunefndar"

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.