Fjarðarpósturinn - 03.12.1987, Page 6
6
FJARÐARPÓSTURINN
Sofus Berthelsen:
Gamlar myndir
og fleira
Fjarðarpóstinum hefur borist
bréf frá Sofusi Berthelsen þar
sem hann þakkar blaðinu fyrir
fyrri birtingar á efni sem hann
hefur sent. í bréfinu segir Sofus
svo m.a.
“Vegna fyrirspurnar um
gamlar myndir, þá sendi ég
ykkur eina, en því miður veit ég
ekki nöfnin á bömunum nema
strákinn minn, Bjöm Birgir, sem
er fjórði frá vinstri í annarri röð.
Kennarinn er Pálmi á Hring-
braut 79.”
Þessi mynd Sofusar birtist hért
með og em lesendur blaðsins
beðnir að íhuga hvortþeir þekkja
andlitin og þá vinsamlega að
koma því skriflega á framfæri
við blaðið.
En Sofus lét ekki þar við sitja
að senda blaðinu þessa mynd
heldur sendi hann einnig kvæði,
tvö erindi, er hann nefnir Öldrun.
Öldrun.
Nú fækka sífellt höfuðhárin
heilsan dvín og líka árin
æskublóma ég fæ ei léðan.
Gróið er heilt um hjartasárin
ég hverf að lokum sáttur héðan.
Ég dey ekki frá digrum sjóði
þó dauðinn mig í burtu bjóði
enginn veit hvar loks við lendum.
En ég mun kannski í litlu ljóði
lifa hjá mínum afkomendum.
Fjarðarpósturinn þakkar
Sofusi sendinguna og minnir á,
að ef einhverjir Hafnfirðingar
luma á eldra myndefni, sem
gaman væri að birta, þá stendur
Fjarðarpósturinn því opinn.
Við útsýnisskífuna á Ásfjalli
Nú er auðveldara fyrir þá mörgu sem lagt hafa leið sína á Ásfjall
í sumar og haust að átta sig á örnefnum og kennileitum.
Eins og Fjarðarpósturinn gat um á sínum tíma þá var það Rótarý-
klúbbur Hafnarfjarðar sem stóð að því að setja upp útsýnisskifuna
en nokkrir félaganna gengu fram fyrir skjöldu og sáu um fra-
kvæmdina.
Útsýni er mjög fagurt af Ásfjalli í góðu veðri og það er vel þess
virði að leggja þangað leið sína. Þetta er hæfileg gönguleið á góð-
viðrisdögum jafnt vetur sem sumar og hæfir allri fjölskyldunni
ungum sem gömlum.
ALMANAK HJÁLPARSVEITARINNAR
Út er komið almanak Hjálpar-
sveitar skáta í Hafnarfirði, 14. árið
í röð. Að þessu sinni var reynt að
vanda sérstaklega til þess, þar sem
margir voru óánægðir með síðasta
almanak. Áætlað er að dreifa
almanakinu i öll fyrirtæki og stofn-
anir í bænum um miðjan desember-
mánuð, en þau munu einnig liggja
frammi í Sparisjóði Hafnarfjarðar
við Strandgötu og útibúi Spari-
sjóðsins við Reykjavíkurveg.
Vonumst við til að Hafnfirðingar
kunni að meta þetta framtak og að
almanakið nýtist þeim sem best allt
næsta ár.