Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 03.12.1987, Page 15

Fjarðarpósturinn - 03.12.1987, Page 15
FJARÐARPÓSTURINN 15 EINARS SAGA ÞORGILSSONAR KEMUR ÚT í NÆSTU VIKU fyrirtæki hans haft í bænum. Einar var sem kunnugt er stór atvinnurek- andi hér í bæ, og auk þess í hópi þeirra bæjarfulltrúa sem lögðu grunninn að bæjarfélaginu. Jafn- framt var Einar Alþingismaður um tíma og flutti sem slíkur fyrstur manna frumvarp um að Hafnar- fjörður yrði sérstakt kjördæmi. Auk þess að vera ævisaga Einars Þorgilssonar er bókin merk heimild um útgerð og verslun í heila öld, svo og um Hafnarfjörð og bæjarlífið á þessum tíma. Vísnakvöld Norrænu félögin í Hafnarfirði og Garðabæ efna til vísnakvölds í Gaflinum mánudaginn 7. desember kl. 20.30 Hinn þekkti finnski trúbador Mikki Perkoila, syngur finnsk þjóðlög og eigin lög og leikur undir á gítar og kantele. Veriö velkomin Norrænu félögin Meðal þeirra bóka sem bókaút- gáfan Skuggsjá gefur út nú fyrir jólin er HAFNARFJARÐAR- JARLINN — Einars saga Þorgils- sonar, skráð af Ásgeiri Jakobssyni. Eflaust munu Hafnfirðingar fagna sérstaklega útkomu þessarar bókar, svo sterk itök hafði Einar og . GARDINUR TIL SOLU Góðarstofugardínurtil sölu í grænum og gráum lit. Selst ódýrt. Uppl. í síma 52694. ____________________________' Gömul og ónotuö lyf. Á liðnu vori var tilkynnt að apó- tekin í Hafnarfirði tækju við fyrnd- um lyfjum og lyfjum sem hætt er að nota af einhverjum ástæðum og safnast því upp á heimilum. Viðbrögð voru nokkur en þó þykir ástæða til að gera nýtt átak og reyndar brýna fyrir fólki að safna ekki lyfjum upp á heimilum en skila þeim í apótek til förgunar. Lyf sem liggja ónotuð geta bæði valdið rangri lyfjatöku og slysum. Átak þetta er gert að frumkvæði Heilsugæslu Hafnarfjarðar og er tekið við lyfjum til förgunar í Hafn- arfjarðar Apóteki og Apóteki Norðurbæjar. Nokkur önnur heilsuumdæmi gera samskonar átak nú á aðventu þ.á.m. í Garðabæ og á Seltjarnarnesi. Að lokum skal undirstrikað að eyðing lyfja þarf að fara farm með faglegum hætti með brennslu en ekki með þvi að henda þeim í sorpi eða skola niður í vöskum eða sal- ernum. Hér er því einnig um um- hverfisverndarátak að ræða. SPARISJOÐANNA »ÖRUGGUR og verðtryggður reikningur með raunvöxtum ttVEXTIR trompreiknings og verðtrygging er borin saman við sérstaka trompvexti á 3ja mánaða fresti og þú færð þau kjör sem hærri eru EKKERTúttektargjald Í8 ÞUgripur til peninganna hvenær sem þú þarft á þeim að halda því Trompreikningurinn er alltaf laus Heilsgæsla Hafnarfjarðar Apótekin í Hafnarfirði

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.