Fréttatíminn - 28.10.2011, Blaðsíða 2
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatiminn.is
Turninum | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi
Sími 575 7500 | www.veisluturninn.is
500 aðkomubörn á Selfossi
Snorrabrautin tekur stakkaskiptum í framtíðinni. Hún þykir hættuleg.
Umferðaröryggi Lög brotin á SnorrabraUt og hún hættULeg gangandi vegfarendUm
Ætla að fækka akreinum um tvær á Snorrabraut
Stefnt er að því að fækka ak-
reinum á Snorrabraut um eina í
hvora átt og setja upp hjólreiða-
stíga. Tvö banaslys gangandi
vegfarenda hafa orðið á Snorra-
braut á síðustu árum. Fimm-
tugur karlmaður lést í desember
2009 og eldri kona í mars 2005.
Íbúar eru uggandi og halda úti
Facebook-síðunni Dauðagildran
Snorrabraut.
Stefán Agnar Finnsson, yfir-
verkfræðingur á umhverfis- og
samgöngusvið borgarinnar,
segir breytingarnar á undir-
búningsstigi og til umræðu í
kerfinu. Enn eigi eftir að bera
hugmyndina undir íbúa Snorra-
brautar og óljóst hvenær göt-
unni verði breytt. Framkvæmdir
séu hluti af þriggja ára hjólreiða-
áætlun borgarinnar sem hún
stefnir „á að komast af stað
með.“
„Við höfum hvorki gert ráð
fyrir að bílastæðum fækki eða
fjölgi,“ segir Stefán. „En það
kostar talsvert að umbylta göt-
unni svona.“
Í skýrslu Rannsóknarnefnd-
ar umferðarslysa (RNU) fyrir
árið 2010, sem kom út í sept-
ember, stendur að umferðarlög
séu brotin á Snorrabraut, því
bílastæði séu of nálægt gang-
brautum. Einnig er bent á að
rannsóknir erlendis sýni að
mörg slys verði á gangandi veg-
farendum þar sem þeir þurfi að
þvera fjórar akreinar til að kom-
ast leiðar sinnar. „Að mati RNU
þarf Reykjavíkurborg að skoða
heildstætt hvernig hægt er að
bæta öryggi gangandi vegfar-
enda við Snorrabraut.“
M
yn
d/
H
ar
i
Skólpmengun í Fossvogsdal
mengUnarSLyS rottUeitUr í foSSvoginUm
Eitrað var í
ofanvatns-
lagnir og voru
eiturkubbar
sem fyrir voru
í lögnunum
klipptir niður
og látnir í frá-
rennsli í stað
þess að safna
þeim saman og
farga á við-
eigandi hátt
eins og gera
skal en bæði
þessi atriði eru
brot á verklags-
reglum.
Úr bréfi Heilbrigðis-
eftirlits Reykjavíkur.
Blóðið storknar ekki, dýrum
blæðir út og þau drepast
Meindýraeyðar Reykjavíkurborgar brutu verklagsreglur með þeim afleiðingum að rottueitur barst
í Fossvogsdalinn. Starfsmenn Kópavogsbæjar hafa vaktað Fossvogslæk síðan um miðjan septem-
ber og tínt upp eitrið. Rottueitur drepur bæði menn og dýr sé þess neytt í miklum mæli.
S tarfsmenn Kópavogsbæjar hafa tínt upp rottueitur í kubbum á stærð við tennisbolta úr Fossvogslæk
frá því um miðjan september. Starfs-
menn Meindýravarna Reykjavíkur brutu
verklagsreglur þegar þeir áttu að skipta
um eitur í skólplögnum borgarinnar,
hentu gamla eitrinu niður í brunnana og
settu einnig rottueitur í ofanvatnsbrunna
– sem á ekki að gera.
Guðborg Guðjónsdóttir, sérfræðingur í
klínískri eiturefnafræði við Eitrunarmið-
stöð Landspítalans, segir rottueitrið auka
blæðingarhættu hjá mönnum og öðrum
spendýrum sem þess neyta. „Fólk fær
fyrst húðblæðingar og svo storknar ekki
blóðið í því,“ segir hún en að það eigi við
borði fólk eitrið til langs tíma. Hægt sé
að gefa börnum og öðrum mótefni borði
fólk eitrið einu sinni. „Innbyrði fólk mjög
mikið eitur getur það haft alvarlegar
afleiðingar,“ segir hún. „Þetta er ekki
skemmtilegur dauðdagi - dýrum blæðir
út.“
Kópavogsmenn vakta lækinn
Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópa-
vogsbæjar, segir að það hafi verið fyrir
árvekni starfsmanna Kópavogsbæjar
sem upp komst um mistökin hjá starfs-
mönnum Reykjavíkurborgar, en Foss-
vogslækur er á sveitarfélagsmörkum
Reykjavíkur og Kópavogs. Starfsmenn
Kópavogsbæjar hafi vaktað svæðið dag-
lega frá því um miðjan september.
„Þá girtu þeir svæðið af og tíndu upp
alla rottueiturskubbana sem fundust. Síð-
an þá hafa af og til fundist kubbar í tjörn í
læknum, sem er við útrásina í Reykjavík,
nú síðast 25. október.“ Arna segir málið
litið alvarlegum augum.
Á síðasta bæjarráðsfundi Kópavogs
óskaði Gunnar I. Birgisson, Sjálfstæðis-
flokki, eftir því að upplýst yrði hve margir
eiturkubbar hefðu fundist í Fossvogsdal
og hverjar afleiðingarnar væru. Sam-
kvæmt heimildum Fréttatímans var það
látið í hendurnar á sumarstarfsmönnum
Reykjavíkurborgar að koma rottueitrinu
fyrir í skólpveitukerfi borgarinnar. Talið
er að þeir hafi fyrir mistök sett rottueitr-
ið í ofanvatnsbrunna við Fossvogsdalinn.
Brutu verklagsreglur
Í bréfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
til Heilbrigðiseftirlits Kópavogs- og
Hafnarfjarðar kemur fram að verklags-
reglur sem meindýraeyðar eigi að fara
eftir þegar eitrað sé í frárennsli hafi verið
brotnar. Heilbrigðiseftirlitið hafi því farið
fram á að eiturkubbarnir yrðu fjarlægðir
úr ofanvatnsbrunnum og að framvegis
verði ekki sett eitur í þá.
„Þetta er allt afstaðið,“ segir Ómar
F. Dabney, meindýraeyðir hjá borginni.
„Það er alvarlegt þegar svona kemst
eitur í frárennslið en sem betur fer upp-
götvaðist það tímanlega og ekkert tjón
hlaust af.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Ekki aðeins rottueitur fannst í Fossvogs-
læknum við eftirlit heldur fannst einnig
skólp í settjörnum. Saurkólígerlamengun
fannst í þeim við mælingar sem og önnur
merki um skólpmengun.
Í bréfi Heilbrigðiseftirlits Reykja-
víkur til Heilbrigðiseftirlits Kópavogs
og Hafnarfjarðar segir að unnið sé með
Orkuveitu Reykjavíkur, við að finna
rangar tengingar skólpröra í Fossvogi.
Haldið verði áfram þar til húsaskólp finn-
ist ekki í settjörnum Fossvogsdals.
Dauður mávur
og rottueitur.
Tvær vankaðar
dúfur sáust
einnig við
lækinn. Talið
er að fuglarnir
hafi nartað í
rottueitrið.
Blása haustrallið af um helgina
Haustrall Hafrannsóknarstofnunar verður blásið af um
helgina ef undirmenn áhafna hafrannsóknarskipanna
verða enn í verkfalli. Haustrallið er annað tveggja
mikilvægustu rannsóknarleiðangra stofnunarinnar.
„Afleiðingarnar eru þær að við fáum ekki mat á stærð
margra þeirra nytjastofna sem við veitum veiðiráðgjöf
fyrir,“ segir Þorsteinn Sigurðsson hjá Hafró. „Meginreglan
er sú að eftir því sem við vitum minna eigum við að fara
með varkárari hætti í nýtinguna,“ svarar hann því hvort
kvótinn verði skorinn niður. Rannsóknir á ungloðnu séu í
uppnámi. Ekki verði hægt að gefa upp upphafskvóta fyrir
2012-2013. Verkfallið hefur staðið yfir í mánuð. Jónas
Garðarsson hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur segir engan
fund í sjónmáli. „Þeir verða að ganga að verðlistanum og
þá er hægt að fara á sjó.“- gag
Fimm hundruð ungmenni og
leiðtogar frá öllu landinu verða
um helgina á Selfossi á árlegu
Landsmóti æskulýðsfélaga
kirkjunnar. Hipp hopp, sushi- og
kökugerð og skemmtanir bíða
ungmennanna. Ingó veðurguð
syngur í sundlaugarpartíi og Ari
Eldjárn skemmtir á kvöldvöku.
„Þema mótsins er samt kærleikur
og Japan,“ segir Sigríður Rún
Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri
Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar.
Safnað verði fé í samstarfi í samstarfi við japönsku góðgerðarsamtökin Hearts of
Gold. Ungliðahreyfinging Hjálparstarfs kirkjunnar verður hjá Krónunni að safnar fé.
„Þau ætla að skrifa nöfn fólks á japönsku og búa til origami-hluti, sem er japönsk
pappírslist,“ segir hún. „Hjálpa á börnum sem misstu foreldra sína í jarðskjálftunum í
Japan fyrr á árinu og í flóðunum sem fylgdu á eftir.“ - gag
Gjaldþrotahrina
fyrirtækja
Alls voru 172 fyrirtæki tekin
til gjaldþrotaskipta í septem-
ber sem er þrisvar sinnum
fleiri en í sama mánuði í
fyrra þegar þau voru 57.
Jafnframt hefur fjöldi gjald-
þrota fyrirtækja í einum
mánuði aðeins tvívegis áður
verið meiri, en það var í
mars síðastliðnum þegar 214
fyrirtæki lögðu upp laupana
og í maí þegar þau voru 175,
að því er Hagstofa Íslands
greinir frá. Alls hafa 1.122
fyrirtæki orðið gjaldþrota á
fyrstu níu mánuðum ársins
samanborið við 680 á sama
tímabili í fyrra. Jafngildir
það 65% aukningu milli ára.
Um metár er að ræða en í
fyrra urðu alls 982 fyrirtæki
gjaldþrota. Líkt og verið
hefur á síðustu misserum
urðu gjaldþrotin í september
flest í byggingarstarfsemi og
mannvirkjagerð, alls 43. - jh
Landsmótsbörn safna fé á Glerártorgi á Akur-
eyri í fyrra.
2 fréttir Helgin 28.-30. október 2011