Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.10.2011, Síða 6

Fréttatíminn - 28.10.2011, Síða 6
PIPA R\TBW A • SÍA • 112841 SUCCESS AND FAILURE IN ENGINEERING: A Paradoxical Relationship Dr. Henry Petroski, öndvegisfyrirlesari Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, flytur erindið: Dr. Henry Petroski er verkfræðingur og prófessor í byggingarverkfræði og sagnfræði við Duke-háskólann í Suður-Karólínufylki í Bandaríkjunum. Hann hefur ritað fjölda bóka um verkfræði, nýsköpun og hlutverk mistaka í verkfræðilegri hönnun. Fyrirlesturinn er í röð öndvegisfyrirlestra á aldarafmæli Háskóla Íslands og fer fram í Hátíðasal skólans, Aðalbyggingu, laugardaginn 29. október nk. kl. 14.00. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Borga frekar en að færa tunnurnar  Bankar Hrundraugur ríður Húsum Verri staða dansks banka getur haft áhrif á veð Seðlabankans Mat greiningar f yr ir tækisins Moody’s á danska bankanum FIH Erhvervsbank lækkaði fyrr í þess- um mánuði og ljóst er að staða hans hefur versnað, að því er fram kemur í danska blaðinu Jótlandspóstinum. Verri staða hans getur haft áhrif á veð sem Seðlabanki Íslands á í bank- anum eftir að hann var í íslenskri eigu um hríð. Lánshæfismat FIH færist neðar í ruslflokki, úr Ba2 í B1 á langtíma- skuldbindingum og úr B1 í B3 í hvað aðrar skuldbindingar varðar. Þá fær- ist bankinn úr D-styrkleikaflokki í E+ sem er lægsti flokkur. Niður- færsla Moody’s helgast einkum af tapi bankans á hlutabréfaeign í dönsku skartgripakeðjunni Pandora. Keðjan var skráð á markað fyrir ári. Bréf hennar hækkuðu mjög fyrst á eftir en hafa hrunið á þessu ári. Að auki veldur hátt hlutfall vandræða- lána bankans áhyggjum. Seðlabanki Íslands átti veð í 99,89% hlut í FIH-bankanum til tryggingar þrautavaraláni sem Kaupþing fékk hjá Seðlabankanum í október 2008 að fjárhæð 500 millj- ónir evra. Seðlabankinn seldi hópi fjárfesta bankann í fyrra. Söluverðið nam 670 milljónum evra. Fjárfesta- hópurinn staðgreiddi 255 milljónir evra. Greiðsla þess sem eftir stend- ur, um 415 milljónir evra eða sem svarar um 66 milljörðum íslenskra króna, ræðst af gengi bankans fram til ársloka 2015. Þegar gengið var frá sölu danska bankans sagði Már Guðmunds- son seðlabankastjóri niðurstöðuna ágæta miðað við aðstæður. Talsverð fjárhæð fengist strax í erlendum gjaldeyri, auk möguleika Seðlabank- ans að endurheimta veð sitt að fullu. Stefán Jóhann Stefánsson, upplýs- ingafulltrúi Seðlabankans, segir að lítið sé hægt að segja um það fyrr en 2014 og 2015 hvað endanlega fæst út úr danska bankanum. Það taki mið af þróun fram að því og stöðu á þeim tíma. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is Aðalstöðvar FIH-Erhvervsbank í Kaupmannahöfn. Ljósmynd/FIH Flestir þeirra sem hafa ruslatunnur sínar lengra en fimmtán metra frá götu hér í borginni hafa kosið að greiða gjald í stað þess að færa tunnurnar nær. Þetta segir Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri á umhverfis- og samgöngusviði borgar- innar. Alls voru 30% heimila með tunnurnar utan fimmtán metra línunnar og nú eru þau tæp 27%. „Já, langflestir kjósa að greiða gjaldið sem er 4.000 krónur á tunnu sé ruslið sótt á 10 daga fresti. Þessi nýja regla hefur skilað þeirri hagræðingu sem við vildum.“ Hefðu fleiri flutt tunnurnar nær götu hefði komið til uppsagna því sorphirðan væri þá hagkvæmari. - gag  FjárHagsaðstoð ungt Fólk í vanda Dettur úr skóla og lendir á bótum frá bænum a lls 75% þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð af Hafnar-fjarðarbæ eru undir þrítugu. Flestir þeirra eru á aldrinum 18 til 24 ára eða tveir af hverjum þremur. „Ungu fólki sem fær fjárhags- aðstoð hefur fjölgað eftir hrun,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, félags- fræðingur hjá Félagsþjónustunni í Hafnarfirði. „Hér áður gátu krakkar fengið vinnu með tiltölulega auðveld- um hætti dyttu þeir úr skóla en nú er það erfiðara sem er alveg nýtt fyrir- bæri fyrir okkur sem þjóð,“ segir Ingibjörg. Margt þeirra hafi enga reynslu af vinnumarkaði og engan rétt til atvinnuleysisbóta. Þeir sæki til bæjarins. „Við erum með átak í gangi að koma ungu fólki á skólastyrk, þann- ig að það fari frekar í skóla en sitji heima, en auðvitað eru alltaf ein- hverjir sem komast ekki inn í skóla eða geta ekki ákveðið hvað þeir ætla að verða.“ Í yfirliti Ingibjargar kemur fram að 105 konur og 92 karlar fengu fjárhagsaðstoð hjá bænum í ágúst. 126 þeirra eru einhleypir án barna og meirihluti þeirra karlar eða 84. Sjötíu eru einstæðir foreldrar en ein- ungis ein kjarnafjölskylda þáði fjár- hagsaðstoð. Ingibjörg segir ekki fleiri unga karla en konur þiggja aðstoð. „Hlut- fallið er alveg jafnt.“ Hins vegar séu fleiri einstæðir karlar en konur sem þurfi fjárhagshjálp. „Karlmenn ein- ir eru hópur sem verður útundan ef þeir missa fótana.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Fólk undir 24 ára aldri er meira en helmingur allra sem fær fjárhagsaðstoð í Hafnarfirði. Það flosnar úr námi, hefur enga reynslu af atvinnulífinu og á engan rétt á atvinnuleysisbótum. Ungt fólk sem dettur úr skóla og einhleypir karlar eru stærstu hópar þeirra sem fá fjárhagsaðstoð í Hafnarfirði. Myndin er sviðsett. Mynd/Hari Viðtakendur fjárhagsaðstoðar 2000-2010 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 7000 6000 5000 4000 3000 2000 1000 0 Heimild: Hagstofan 4 .6 53 4 .9 39 5. 9 71 6 .3 12 5. 61 3 4 .8 25 4 .5 79 4 .2 80 5. 0 29 5. 9 94 6 .9 10 Alls fengu rétt rúmlega 900 fleiri fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélögum í fyrra miðað við árið á undan. Frá því árið 2000 hafa á bilinu 4.280 til 6.910 sótt um fjárhagsaðstoð. Flestir í fyrra en fæstir árið 2007. Fjöldi fjölskyldna sem leita til sveitar- félaga hefur þó ekki stökkbreyst síðustu ár því árið 2003 sóttu 6.312 fjölskyldur fjárhagsstyrk til sveitarfélaga, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hins vegar má sjá að fjárhæðirnar hafa ríflega þrefaldast. Fóru úr 845 milljónum króna árið 2000 í rétt tæplega þrjá milljarða króna í fyrra. Meðalaðstoð hverrar fjölskyldu fór úr 44 þúsundum árið 2000 í rúm 100 þúsund krónur í fyrra. - gag Hjálpuðu 900 fleiri fjölskyldum milli ára Auk sveitarfélaga aðstoða hjálparsamtök þurfandi fjöl- skyldur. Hér útbúa sjálfboðaliðar Fjölskyldurhjálparinnar matarpakka. Ljósmynd/Hari Viltu læra að búa til ís? Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands stendur fyrir þremur námskeiðum í ísgerð næstu vikur. Námskeiðin eru öllum opin og henta jafnt fólki sem starfar við ísgerð sem og einstaklingum sem vilja prófa sig áfram með jólaísinn og gera hann enn ljúffengari og meira spennandi en áður, að því er fram kemur í tilkynningu skólans. Á námskeið- unum verður farið í val hráefna og þróun uppskrifta, auk þess sem þátttakendur fá að kynnast ísgerð og smakka jafnframt á afurðunum. Ísbókin, glæný bók um ís, fylgir með í þátttökugjaldi á námskeiðinu. Fyrsta námskeiðið verður haldið í Keldnaholti í Reykjavík 31. október og þau næstu verða í Sveinbjarnargerði í Eyjafirði 7. nóvember og á Húsavík 8. nóvember. Leiðbeinandi er Jón Brynjar Birgisson mjólkurfræðingur. -jh Þjóð í svartsýniskasti Svartsýni hefur aukist hjá lands- mönnum nú í október en það er svipað og gerðist á sama tíma í fyrra, að því er Væntingavísitala Gallup sýnir. Vísitalan hrapaði um 16,5 stig milli mánaða en gildi hennar stendur nú í 52,9 stigum en fór í 69,4 stig í september. Á sama tíma í fyrra féll vísitalan um nær 36 stig á milli þessara tveggja mánaða, þ.e. úr tæplega 68 stigum í 32 stig. Líklegast er, segir Greining Íslandsbanka, að þessi lækkun tengist setningu Alþingis og mótmælum þá. Síðasta árið hefur vísitalan að meðaltali mælst rúm 58 stig. Hún mælir væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins. Þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir. - jh 6 fréttir Helgin 28.-30. október 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.