Fréttatíminn - 28.10.2011, Qupperneq 8
Lóð undir álkapla -
verksmiðju á Reyðarfirði
Félagið ALUCAB hefur fengið lóð undir álkaplaverk-
smiðju á Reyðarfirði. Til stendur að kaupa verksmiðju
til landsins í heilu lagi, að því er fram kom í fréttum
Ríkisútvarpsins. Í héraðsblaðinu Austurglugganum
segir að Seyðfirðingar óttist að verksmiðjan sem
flytja á til Reyðarfjarðar sé sú sama og þeir hafa
lengi reynt að flytja til Seyðisfjarðar. Þar sagði að
undirbúningur að álkaplaverksmiðju hefði staðið á
Seyðisfirði í fjögur ár en þar bundu menn vonir við að
slík verksmiðja skapaði allt að 50 ný störf, spornaði
gegn fólksflótta og bætti stöðu bæjarsjóðs. Til stóð
að kaupa verksmiðjuna frá Noregi og nýta að hluta
húsnæði Síldarvinnslunnar. Sumir fjárfestar töldu
hins vegar vænlegra, að því er fram kemur í fréttinni,
að verksmiðjan risi við álverið á Reyðarfirði. Þaðan
koma álvírarnir sem stendur til að fullvinna. - jh
Jazzmessa Söngsveitarinnar Fílharmóníu
Fyrstu tónleikar starfsárs Söngsveitarinnar Fílharmóníu verða í Norður-
ljósasal Hörpu næstkomandi sunnudag, 30. október kl. 20. Fyrir hlé verður
flutt Jazzmessa fyrir kór og jazzkvartett eftir litháíska tónskáldið Vytautas
Miškinis. Eftir hlé verður flutt tónlist eftir bandaríska tónskáldið George Gers-
hwin. Hann er ekki síst þekktur fyrir að hafa blandað saman klassískri tónlist
og jazz á áhrifaríkan hátt. Einsöngvarar eru Valdís G. Gregory og Einar Clau-
sen. Þrír píanistar koma fram á tónleikunum, Guðríður St. Sigurðardóttir, Árni
Heiðar Karlsson og Daði Sverrisson. Þorgrímur Jónsson spilar á kontrabassa
og Matthías Hemstock á slagverk. Stjórnandi er Magnús Ragnarsson. - jh
M örg samtök og stofnanir fylgjast með því sem kirkjan er að gera. Því að kirkjan er þó lengra komin
í meðferð sinni á verklagsreglum og siðum
gegn kynferðisbrotum en margir aðrir, seg-
ir Magnús E. Kristjánsson sóknarprestur.
„Stofnanir, almenningur, fjölmiðlar og aðrir
þurfa að varpa ljósi á málaflokkinn. Ekki
með látum eða tilfinningasemi, heldur verð-
ur að tryggja að allir séu öruggir og að ekki
sé rými fyrir svona siðleysingja til að at-
hafna sig [innan veggja þeirra],“ segir hann.
„Ef við eigum börn viljum við að þau
séu alls staðar örugg. Við viljum að
konur séu alls staðar öruggar og við
viljum að ungir drengir og hver sem
er séu alls staðar öruggir. Við viljum
á vettvangi kirkjunnar vinna að því að
fólki líði vel.“
Magnús er formaður nefndar sem
kirkjuþing skipaði í sumar eftir birt-
ingu rannsóknarskýslunnar um kyn-
ferðisbrot Ólafs Skúlasonar biskups
og viðbragða kirkjunnar manna við þeim.
Hann mun kynna starf nefndarinnar á
kirkjuþingi í nóvember; hvaða atriðum sé
hægt að bregðast við strax með reglum og
gjörðum gegn kynferðisbrotum og hvaða
atriði þurfi góða umræðu. „Þess vegna mun-
um við leggja til að nefndin starfi í eitt ár til
viðbótar.“
Ræðir við Guðrúnu Ebbu
Nefndinni er ekki aðeins ætlað að móta við-
brögð þjóðkirkjunnar við kynferðisbrotum
heldur á hún einnig í viðræðum við Guðrúnu
Ebbu Ólafsdóttur um umgjörðina í þessum
málum og fébætur. En fagráð kirkjunnar
brást þegar hún leitaði til þess og sagði frá
því að hún hefði sem barn verið nídd kyn-
ferðislega af föður sínum, Ólafi Skúlasyni.
Viðræðurnar áttu að halda áfram í þessari
viku. „Þessu samtali er ekki lokið,“ segir
Magnús.
Hann segir nefndina hafa gefið sér góð-
an tíma til að ræða við starfsfólk sem vinni
að kynferðisbrotamálum. „Kirkjan er hluti
af þessu samfélagi og við teljum því mjög
gott að eiga gott samstarf við allt það frá-
bæra fólk sem hefur verið brautryðjendur
í að bæta úr ýmsu hvað varðar þessi mál.“
Guðrún Ebba, sem hafi tekið þátt í að stofna
Drekaslóð og sitji í stjórn samtakanna Blátt
áfram, sé því ein þeirra.
Hann óttast ekki um framtíð kirkjunnar,
hún standi sterkari eftir það lærdómsferli
sem hún sé í. „Já, maður stendur alltaf sterk-
ari á eftir þegar maður er búinn að takast á
við vandamál, þótt þau séu erfið, og koma
þeim í góðan og eðlilega farveg. Ég er ekki
hræddur um að sannleikurinn skemmi fyrir
einum eða neinum.“
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Þjóðkirkjan Magnús E. kristinsson prEstur
Siðleysingjar fái ekki rými
til athafna innan kirkjunnar
Formaður nefndar sem vinnur úr rannsóknarskýrslu kirkjunnar vegna kynferðisbrota Ólafs
Skúlasonar biskups vill að nefndin starfi í ár í viðbót. Hann kynnir á Kirkjuþingi hvaða úrbætur
kirkjan getur gert strax. Aðrar þurfi frekari skoðun.
Rúmlega 4.200 úr kirkjunni á einu ári
Alls sögðu 4.242 sig úr þjóðkirkjunni milli áranna
2010 og 2011 og hafa aldrei jafn margir sagt sig úr
henni milli ára. Þjóðskrá ætlar ekki að gefa upp
fjölda þeirra, sem sagt hafa sig úr kirkjunni frá því að
Guðrún Ebba Ólafsdóttir veitti Sjónvarpinu viðtal um
reynslu sína af kynferðisofbeldi föður síns, fyrr en um
mánaðamótin.
Hagstofan birtir tölur um úrsagnir úr þjóðkirkjunni
frá árinu 1998 og hefur fólki fækkað hlutfallslega ár
frá ári. Árið 1998 voru rétt tæp 90 prósent í þjóð-
kirkjunni. Í ár er hlutfallið tæp 78 prósent. - gag
Guðrún Ebba Ólafs-
dóttir hefur með
Elínu Hirst ritað bók
um reynslu sína en
hún var beitt kyn-
ferðisofbeldi af föður
sínum. Hún aðstoðar
kirkjuna sem er að
búa til verklags-
reglur og leiðir svo
siðleysingjar og
barnaníðingar fái
ekki þrifist þar.
Karl Sigur-
björnsson
biskup sat
í rúmt ár á
bréfi Guð-
rúnar Ebbu
til kirkjuráðs.
Hann harmar
mistökin.
TILBOÐ ELDSNEYTI STAÐIRMITT N1LÍFIÐDEKK
NÁÐU ÞÉR Í
NÝJA N1 APPIÐ
Með nýja N1 appinu geturðu keypt eldsneyti með
símanum þínum, skoðað færslur og punktastöðu,
kynnt þér N1 tilboðin, fundið næstu N1 stöð á korti
og jafnvel réttu dekkin eftir bílnúmerinu þínu. Vertu
með á nótunum og appaðu þig í gang með N1!
HELGARBLAÐ
Fékkstu ekki Fréttatímann heim?
Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar-
svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita
með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is
Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is
8 fréttir Helgin 28.-30. október 2011