Fréttatíminn - 28.10.2011, Blaðsíða 12
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s *Í flokki bak við eyra heyrnartækja sem búa yfir þráðlausri tækni og hljóðstreymingu
Minnstu heyrnartæki í heimi*
Opið hús
Á morgun kynnum við ...
Laugardaginn 29. október verður opið hús hjá Heyrnartækni frá 12 - 16.
Komdu og kynntu þér Intiga - minnstu heyrnartæki í heimi!
Fríar heyrnarmælingar. Kaffi og ljúffengar kökur.
Gott veður skiptir minna máli fyrir frístundaheimili Voga-
skóla nú en áður eftir að það fékk meira pláss innan veggja
skólans. Börn á neðri mynd tengjast ekki fréttinni. Mynd/Hari
Milljónum getur munað á afskriftum
fasteignaskulda samkvæmt svokallaðri
110%-niðurfellingarleið eftir því hvort
bankar styðjast við verðmat samkvæmt
fasteignamati eða á mati á markaðsvirði
eigna. Fasteignasali telur að Landsbank-
inn og Íslandsbanki styðjist oftast við
fasteignamat en aðrir noti nær eingöngu
verðmat. Hann bendir einnig á að staða
lána sé fest við áramót en ekki sé skil-
greint hvenær miða eigi við virði fast-
eignarinnar.
„Verðmæti fasteigna á höfuðborgar-
svæðinu hefur nú þegar hækkað um tæp
7 prósent að meðaltali frá áramótum
fram í september. Það veldur því að
eign sem metin var á tuttugu milljónir í
janúar 2011 er nú metin á 21,4 milljónir
eða 1,4 milljónum meira. Þetta þýðir að
lánadrottinn þarf að afskrifa minna en
hann hefði þurft að gera um áramótin
eða ef hann hefði miðað við fasteignamat
sem gildir allt árið,“ segir Sigurbjörn
Skarphéðinsson, löggiltur fasteignasali.
Hann hefur ritað grein sem lesa má á
vefsíðu Fréttatímans. Þar tekur hann
dæmi: Sé íbúð metin á tuttugu millj-
ónir en skuldir á henni séu 25 milljónir
fengjust þrjár milljónir niðurfelldar sé
stuðst við fasteignamat en 1,46 milljónir
sé stuðst við markaðsvirðið: „Það er aug-
ljóst að ekki er um að ræða neina sann-
girni í þessu.“
Sigurbjörn bendir einnig á að verðmat
íbúðar geti verið misjafnt. „Ég hef séð
dæmi þar sem eign var metin af tveimur
aðilum og munaði 4,3 milljónum króna á
hærra og lægra verðmati eignarinnar.“
Á heimasíðu Hagsmunasamtaka
heimilanna benda samtökin fólki á að
láta reyna á að stuðst verði við mat hjá
Fasteignamati ríkisins (FMR).
Skuldir heimila 110%-leiðin miSárangurSrík eftir reikningSleiðum
Milljóna mismunun við niðurfellingu skulda
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatiminn.is
Hvað kostar íbúðin? Fasteignaverð hefur
hækkað um að jafnaði um sjö prósent á árinu.
Börnin fimmtíu of mörg
á frístundaheimilinu
Bráðabirgðaniðurstaða er fengin vegna frístundaheimilisins við Vogaskóla og nefnd verið skipuð til að leysa
málið til framtíðar. Þetta er ekki eina frístundaheimili borgarinnar sem börnunum starfar hætta af, kvikni í.
Borgin ætlar ekki að auka eftirlit frá því sem nú er.
fríStundaheimili BráðaBirgðaniðurStaða fram að áramótum
e inungis þrjátíu börn að hámarki mega nú vera í kjallara frístundaheimilis
Vogaskóla, þar sem áður voru
áttatíu börn. Þau mega ekki
koma inn á skrifstofur starfs-
manna, þar sem engar löglegar
útgönguleiðir eru komi upp
eldur. Frístundaheimilið fær
afnot af skólastofum eftir að
almennri kennslu lýkur. Þetta
er bráðabirgðaniðurstaða til ára-
móta þar sem Slökkvilið höfuð-
borgarinnar setti skólanum
stólinn fyrir dyrnar og ætlaði að
loka heimilinu yrði ekki bætt úr
eldvörnum.
Áttatíu og eitt barn, þar af
átta fötluð, var skráð í vistun
á frístundaheimilinu, þar sem
lofthæð er einungis 2,17 metrar
og ólögleg. Löglegar útgöngu-
leiðir vantaði og einungis 75
fermetrar voru ætlaðir til megin-
hluta starfseminnar. Börnin
voru oftast í leik úti við en upp
kom sú staða að þau þurftu öll
að hafast við í kjallaranum, til
dæmis væri veður vont. „Það er
búið að fækka börnum á þessu
heimili um helming og þau hafa
verið flutt í kennslustofur upp
á efri hæðir. Búið er að tryggja
flóttaleiðir og öll rými sem ekki
hafa verið talin með nógu góðum
flóttaleiðum hafa verið tekin úr
notkun,“ segir Sigrún Björns-
dóttir, upplýsingafulltrúi hjá
Reykavíkurborg. Nefnd vinni að
framtíðarlausn sem eigi að liggja
fyrir um áramót.
Annað vanbúið heimili
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
fékk ábendingu um tvö önnur
frístundaheimili sem grunur lék
á að væru vanbúin eldvörnum.
Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri
forvarnarsviðs slökkviliðsins,
segir ekki endanlega búið að
vinna úr gögnum eftir heim-
sóknir þangað. Forstöðumönn-
um heimilanna hafi ekki verið
greint frá niðurstöðunum og því
geti hann aðeins sagt að annað
heimilanna, sem er í Hvassaleit-
isskóla, virðist í lagi en á hinu,
í Laugarnesskóla, sé lofthæð
að hluta of lág eða rétt um tveir
metrar.
Sigrún segir árlegt eftir-
lit standa yfir þessa dagana og
þannig brugðist við þessum tíð-
indum. „Eldvarnareftirlitið met-
ur tíðni og þörf slíkra skoðana.“
Reykjavíkurborg sé ekki kunn-
ugt um frístundaheimili sem
séu vanbúin varðandi eldvarnir
nema í Vogaskóla. „Ef það koma
fram athugasemdir þá eru þær
lagfærðar í samráði við forvarna-
deild slökkviliðsins.“ Skólahús-
næði borgarinnar er tekið út
áður en það er tekið í notkun af
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
sem og Eldvarnareftirliti.
Bjarni segir oft misbrest á því
að lokaúttekt fari fram á hús-
næði og oft séu úttektirnar gerð-
ar eftir teikningu. Í tilfelli Voga-
skóla hafi það verið gert og ekki
tilgreint í þeim hve lofthæðin var
lág. Þá taki slökkviliðið skólana
út um haust og þá jafnvel áður
en starfsemi frístundaheimila sé
hafin og því ekki alltaf skriðið
um hvern krók og kima þeirra.
Þeim hafi því yfirsést ástandið í
Voga- og Laugarnesskóla. Borg-
aryfirvöldum beri þó að haga
starfi sínu eftir reglum.
Áttatíu og
eitt barn,
þar af átta
fötluð,
var skráð
í vistun á
frístunda-
heimilinu,
þar sem
lofthæð er
einungis
2,17 metrar
og ólögleg.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
12 fréttir Helgin 28.-30. október 2011