Fréttatíminn - 28.10.2011, Side 16
Þórkatla segir að reynsla Íslendinga
af hruninu geti haft margra ára áhrif.
„Sérstaklega vegna þess að í kjölfar
þessa stóra áfalls hafa komið fleiri
áföll. Nefna má uppsagnir. Fólk
sér að það eru ennþá erfiðleik-
ar og þrengingar. Þetta er
þunnur ís strax eftir stórt
áfall. Þegar eitthvað bjátar
á er hætta á að maður stígi
í gegn. Upplifunin verður
sú að allt sé á niðurleið og
okkur takist þetta aldrei.
Svartsýnisraddirnar ná sér
á strik.“
Meiri áhyggjur, minni
hamingja
Nú er það svart. Hamingjan
er á niðurleið og áhyggjurnar
á uppleið. Fyrir mánuði fundu
tæplega sjö prósent þjóðarinn-
ar fyrir miklum áhyggjum og/
eða lítilli hamingju. Í vikunni
voru það tæp tíu prósent. Það
er líka sveif lukennt hverjir
finna fyrir litlum áhyggjum
og mikilli hamingju. Síðustu
tvær vikur hafa fjörutíu af
hundrað ekki fundið fyrir
áhyggjum og verið hamingju-
samir en nú fækkar þeim um
tæp tvö prósentustig. Það er
samkvæmt mælingum Capacent á
andlegri líðan þar sem úrtakið er 400
manns og spurt er í hverri viku. Bent
hefur verið á að þetta sé sama þróun
og í fyrra. En obb, bobb, bobb, þegar
horft er til lengri tíma er ástandið bara
bjart, því í byrjun apríl fundu aðeins 28
prósent fyrir litlum áhyggjum og ham-
ingju og því finna tíu prósentustig fyrir
meiri hamingju og minni áhyggjum en
þá. Svona er hægt að snúa hlutunum
á hvolf.
Nú þegar rétt er búið að segja þjóð-
inni frá því að hún sé að koðna niður
undan skammdeginu fáum við fréttir
um að Íslendingar séu í öðru sæti þeirra
þjóða sem búa við hvað mesta velmeg-
un og hamingju. Það sýnir rannsókn
Efnahags- og framfarastofnunar Evr-
ópu, OECD, sem er stofnun fjörutíu
þjóða.
„Hvernig hefur þú það? “ er nafn
skýrslunnar sem sýnir að þrátt fyrir
kreppu, skuldir, lánaleysi og hreðjatak
banka á fyrirtækjum kemur landinn
vel út. Til dæmis telja 98 af 100 að þeir
þekki einhvern sem þeir geti treyst á í
neyð. Það hlutfall er hvergi hærra inn-
an OECD-ríkja. 81 af 100 Íslendingum
segist vera heilsuhraustur og 83 af 100
segja að þeir eigi ánægjulegar upplifan-
ir dagsdaglega, sem er ellefu prósentu-
stigum yfir meðaltali í OECD-ríkjum.
Þá mælist samkennd mikil í íslensku
samfélagi.
Ósanngjörn og kröfuhörð
Tekur bara enginn eftir því góða? Erum
við bara ósanngjörn í garð ráðamanna.
„Ég hef kannski ekkert voða mikið vit
á því,“ svarar Þórkatla þegar stórt er
spurt. „En ég hef fundið til með ráða-
mönnum að vera með þetta risastóra
verkefni. Ég er þeirrar skoðunar að fólk
sé alltaf að reyna að gera sitt besta þeg-
ar það fæst við stór verkefni. Kannski
erum við ósanngjörn í kröfum okkar á
hvað þetta á að ganga allt hratt og vel og
svo framvegis. Ég held að það sé mjög
vandlifað að vera við stjórnvölinn núna
af því að það er svo margt nýtt og við
höfum ekki reynslu af því hvað þarf að
gera til að fá hlutina til að virka. Þann-
ig að já – ég heyri að við séum svolítið
ósanngjörn í garð stjórnenda, þó að ég
ætli ekki að mæla gegn því að auðvitað
þurfa allir stjórnendur aðhald og í öllum
hópum þarf að vera stjórnarandstaða.
Mér hefur stundum fundist á Alþingi
að fólk sé uppteknara af því að berja
í brestina. Ég hef saknað þess að sjá
ekki fólk snúa bökum saman í að hjálpa
þjóðinni út úr þessu.“
Þórhallur tekur við: „Auðvitað bland-
ast inn í þetta pólitík. Til er fyrirbæri
sem kallast pólitísk hegðun, sem er
skilgreind sem viðleitni einstaklings
til að vinna eigin hugmyndum brautar-
gengi og koma í veg fyrir að andstæð
sjónarmið nái fram að ganga. Í stjórn-
málum er það þannig að meirihluti á
hverjum tíma hefur hag af því að tala
þannig að allt sé í góðu lagi og allir
ánægðir á meðan minnihlutinn hefur
hag af því að tala sem allt sé í kalda koli
og allir óánægðir. Öll umræða er svo
undir þessu. Það sést því að menn haga
seglum eftir vindi þegar þeir tala um
efnahagsmál,“ segir hann.
„Auðvitað er ekki allt gott sem stjórn-
in gerir. Margt er umdeilt og hægt að
fara aðrar leiðir. Auðvitað er verið að
nýta aðstæður til að koma pólitískum
hugðarefnum til leiðar sem eru ekki
endilega nauðsynlegar – eins og at-
vinnulífið gagnrýnir,“ segir hann. „Sem
dæmi þá er allt fullt af peningum hérna.
Hugarfarskreppa
Hættum að tönglast á
hruninu
En, hér varð hrun! Þrátt fyrir það eru
meðaltekjur Íslendinga yfir meðallagi
meðal OECD-ríkja. Mun fleiri hafa
vinnu en í öðrum löndum OECD og
Íslendingar vinna styttri daga en
meðalmaðurinn í OECD (sem er hópur
40 ríkja, allt frá Suður-Afríku til flestra
Vesturlanda). Við landsmenn getum líka
búist við að lifa tveimur árum lengur en
meðaltal OECD og við öndum að okkur
betra lofti. Þetta er glæný skýrsla! En
gögnin sum gömul. Þau eru að hluta
til frá árinu 2008 og ekki getið hvort
þau séu fyrir eða eftir hrun. Við því
fengust ekki svör en ætli lífslíkurnar
hafi styst mikið á þessum þremur
árum?
Þórkatla segir að það geti haft
áhrif á bata þjóðarinnar eftir
efnahagshrunið að tönglast sífellt
á því að hér hafi orðið hrun.
„Já, það hefur áhrif á batann.
Nú mæli ég ekki með því að við
förum í afneitun á því sem gerðist
en ef við tölum endalaust um hrunið
verður það svo nálægt okkur í tíma. Þá fáum
við svo lítið tækifæri til þess að búa til nýja
sögu – með því að rifja upp hvað við höfum
gert síðan, á hverju við höfum sigrast og hvað
við séum að gera núna; Búa til nýja sögu, svo
okkur geti farið að líða betur og við getum
aftur orðið bjartsýn og fengið kjark til að halda
áfram,“ segir hún. „Já, já, við erum enn að borga
fyrir þetta hrun. En mér finnst það ekki hjálpa að
vera alltaf að tala um það. Ég held að það hjálpi
bara ekki neitt að vera alltaf að tala um að við
lentum í hruni og að hér varð hrun. Ég held að
það sé mikið betra að tala um verkefnin
og hvernig við ætlum að leysa þau.“
„Svartsýni og bjartsýni eru ákvarðanir. Þær byggja
ekki á neinum staðreyndum. Það er aðeins spurning
hvort við ákveðum að trúa því að allt fari á besta
veg eða hvort við ákveðum að trúa því að allt sé á
leiðinni til andskotans.“ Þórkatla Aðalsteinsdóttir.
16 fréttaskýring Helgin 28.-30. október 2011
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
Það er alltaf nóg að gera!
Borgun gerir það eins
auðvelt og hægt er.
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía