Fréttatíminn - 28.10.2011, Page 20
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Sena
er í viðskiptum
hjá okkur
Björn Sigurðsson og félagar hjá Senu sjá
Íslendingum fyrir nýrri tónlist, kvikmyndum,
tölvuleikjum og fjölbreyttri skemmtun árið
um kring. Síminn stoppar ekki, hjólin snúast,
ný tækifæri bjóðast og nýtt samstarf verður
til. Þannig gerast hlutirnir.
Þess vegna er Sena í viðskiptum hjá okkur.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
B ónus býður enn upp á ódýrustu matar-körfuna. Þá niðurstöðu sýna fjölmarg-ar kannanir á síðustu árum. Í vikunni
athugaði ég verð á sömu 19 vöruflokkum og
DV athugaði árið 2001. Reyndar athugaði DV
líka verðið á Frigg Maraþon þvottaefni, en ég
fann það ekki í Bónus núna. Þá var hálfs lítra
Appelsínið í dós árið 2001 en í plastflösku árið
2011. Að öðru leyti var allt eins.
Allt hefur hækkað
Eins og við var að búast hefur allt hækkað á
þessum tíu árum. Um er að ræða 68.7 pró-
sent hækkun á heildar körfunni.
Mest hefur hveiti hækkað, um
heil 285,7 prósent. Púðursykur,
lyftiduft og Toro sósa hefur
hækkað mikið og kaffið líka,
um 88,5 prósent.
Eitthvað má skýra hækk-
unina með genginu – og
þó. Í nóvember 2001 var
gengi erlendra gjaldmiðla nefnilega frekar
hátt: Einn dollari var á 110 krónur (er 114
krónur í dag) og eitt pund á 156 krónur (er á
183 krónur í dag). Evran var reyndar lág, ein
evra var á 97 krónur, en er á 159 krónur í dag.
Á næstu tíu árum fóru allir þessir gjaldmiðl-
ar í hressilega rússibanaferð upp og niður.
Lægst fór dollarinn í 58.5 krónur, en hæst í
148 krónur – þökk sé hinni ofursveigjanlegu
íslensku krónu.
Heimsmarkaðsverð á flestum hrávöruteg-
undum – þá sérstaklega hveiti – hefur
einnig hækkað ofboðslega á þessum
tíu árum.
Við höfum það betra – ef við
höfum vinnu
Þessi hækkun á matarkörfunni
upp á 68,7 prósent er þó ekki eins
hræðileg og halda mætti, því á móti
kemur að laun hafa hækkað mikið á
þessum tíu árum – hvort sem þú trúir því eða ekki.
Hagstofan heldur utan um
launaþróunina. Miðað við þeirra út-
reikninga hefur launavísitalan hækk-
að um heil 109,1 prósent frá nóvem-
ber 2001 til september 2011.
Árið 2001 voru meðallaun lands-
manna 202.000 krónur, en árið 2010
(sem er nýjasta árið sem Hagstof-
an gefur upp tölur um meðallaun
fyrir) voru meðallaunin 381.000
krónur. Þetta er hækkun upp á
88,6 prósent, en eins og áður segir
hækkaði matarkarfan um 68,7 prósent.
Hér munar 20 prósent.
Niðurstaðan er því þessi: Við höfum það
aðeins betra. Að minnsta kosti
er aðeins ódýrara að kaupa í
matinn hlutfallslega miðað við
laun nú, en árið 2001.
Eitt má þó ekki gleymast.
Atvinnuleysi var að jafnaði
var 1,4 prósent á mánuði árið
2001, en var 6,6 prósent núna
í september.
Talsmaður neytenda
slær varnagla
Ég bar niðurstöður könn-
unarinnar undir Gísla
Tryggvason, talsmann neyt-
enda. „Þetta er athyglisverður
samanburður,“ segir hann. „Ef
útreikningarnir eru réttir hef-
ur hlutfall svona matarkörfu af
útgjöldum neytenda vissulega
lækkað, en á sama tíma hefur
kostnaður við umfangsmikla
liði á borð við húsnæði og bifreið
stóraukist eins og fleiri stórir lið-
ir, meðal annars símakostnaður.
Gísli efast um að lífskjör séu
betri nú en þau voru fyrir tíu
árum.
„Hvað sem matarkörfunni líður þá
held ég að sú ályktun sé ekki rétt almennt,“
segir hann. „Við þurfum að lifa sjálfbært í
þeim skilningi að væntanlegar lífskjarabæt-
ur eigi innistæðu en séu ekki teknar að láni,
hvað þá okurláni. Fyrri hluta tíu ára tímabils-
ins varð mikil – fölsk – lífskjaraaukning, sem
svo hrundi. Nú er greiðslubyrði þeirra sem
skulda, til dæmis húsnæðis- og bifreiðalán,
mun hærri að jafnaði. Fjármagnskostnaður er
sennilega sá kostnaðarliður sem gefur mest
sóknarfæri fyrir íslenska neytendur, ef svo
má segja.“
Dr. Gunni
ritstjorn@frettatiminn.is
Matarkarfan - 10 árum síðar
Bónus
19. nóvember 2001
Bónus
25. október 2011
Hækkun
í prósentum
Myllu heimilisbrauð 169 295 74,5%
Pringles Original 169 215 27,2%
Cocoa Puffs 369 471 27,6%
Toro villt sósa 59 165 179,6%
Egils appelsín 1/2 l dós 83 115 38,5%
Maxwell House kaffi 339 639 88,5%
DDS púðursykur 75 196 161,3%
Kotasæla, stór dós 205 347 69,3%
Kornax hveiti, 2 kg 77 297 285,7%
Fjörmjólk 1 l 88 129 46,6%
Súrmjólk 95 167 75,8%
Royal lyftiduft 239 549 129,7%
1 peli rjómi 151 204 35,1%
Tómatar í lausu, 1 kg 159 295 85,5%
Camenbert 215 354 64,5%
Paprika, græn 1 kg 259 285 10,0%
Agúrkur, 1 kg 249 382 53,4%
Kiwi 1 kg 239 359 50,2%
SAMTALS: 3239 5464 68,7%
Þá nagandi tilfinningu kannast eflaust flestir við að allt hafi hækkað mikið á síðustu
misserum og þá ekki síst matvörur. Þann 20. nóvember árið 2001 birti DV verðkönnun
á hinni týpísku matarkörfu. Að vanda var karfan ódýrust í Bónus. Dr. Gunni tók sig til
og gerði samskonar verðkönnun 10 árum síðar og rýndi í niðurstöðurnar.
Matarkarfan hefur hækkað um 68,7 prósent frá 2001 en launavísitalan hefur á sama tíma hækkað um
109,1 prósent.
20 úttekt Helgin 28.-30. október 2011