Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.10.2011, Page 39

Fréttatíminn - 28.10.2011, Page 39
Af opinberri umræðu mætti einmitt halda að þessi ímynd um vonda stöðu sam- félagsins sé ráðandi. Sú er þó alls ekki raunin. H run krónunnar hefur leikið al-menning miklu verr en hrun bankanna. Erlendir kröfuhafar og ríkissjóður tóku á sig stærsta hlut bankahruns- ins en hrun krónunnar hafði meiri áhrif á hag heimila og fyrirtækja. Erlend lán heimila tvö- földuðust og fjölskyldur með verðtryggð lán sáu þau vaxa um 20 til 30 pró- sent. Þannig þurrkaðist út eignarhluti fjölmargra húsnæðiseigenda. Þá höfðu mörg fyrirtækin flúið krón- una og tekið lán í erlendri mynt. Við hrunið tvöfölduðust því skuldir velflestra fyrirtækja sem leiddi af sér „tæknilegt“ gjaldþrot um 70 til 80 prósent þeirra og hægagang í at- vinnulífinu í kjölfarið. Hálfnuð með verkefnið Sumir stjórnmálamenn hafa sagt að vegna vandamála dagsins í dag, höfum við ekki tíma til að ræða stefnumótun til lengri tíma. Ekkert er fjær sanni. Stóru vandamál dags- ins í dag tengjast beint þáverandi og að einhverju leyti núverandi skipan efnahags- og atvinnumála. Það er því hluti af lausn viðfangsefnanna að marka stefnu til framtíðar. Þór- anna Jónsdóttir doktorsnemi ramm- aði þetta vel inn í aðsendri grein í Fréttatímanum í október í fyrra þegar hún hvatti til þess að lausnir á aðsteðjandi vanda yrðu settar fram í samhengi við langtímastefnu og markmið, því annars væri ljóst að önnur og stærri vanda- mál myndu fylgja í kjölfarið: „Stærsta vandamálið er þó að skammtímahugsun er innbyggð í þankagang Alþingis- og stjórn- málamanna. Þar snú- ast leikreglurnar um að ná skjótfengnum árangri, hvort sem er sem einstaklingur eða flokkur, og færast þannig ofar í gogg- unarröðina hjá koll- egum eða kjósendum …. Þannig eru skammtímalausnir og hags- munagæsla verðlaunuð en lang- tímalausnum ýtt til hliðar. Því miður er niðurstaðan sú að þar sem lang- tímasjónarmið skortir eru líkurnar á raunverulegum árangri og umbót- um litlar,“ skrifaði Þóranna. Tölur um hagvöxt, minnkandi atvinnuleysi og betri stöðu ríkis- sjóðs sýna að við erum á réttri leið að loknu hruni. Þá hefur ríkisstjórn- in farið með skipulegum hætti yfir aðdraganda hrunsins og lagt til breytingar. Þar má til dæmis nefna endurskoðun á löggjöf um fjár- málafyrirtæki, breytingar á lögum um stjórnarráðið, nýja starfshætti Alþingis og nú stendur yfir endur- skoðun á stjórnarskránni. Þannig hefur verið reynt að tryggja að kerfið geti ekki hrunið með sama hætti og það gerði haustið 2008. Hins vegar er stór hluti endurmatsins eftir, eink- um sá hluti sem snýr að umhverfi efnahagsmála og hvernig við tryggj- um farsæld heimila og fyrirtækja til lengri tíma litið. Sjálfstraust eða ótti Nú er brýnt að ræða af alvöru hvern- ig samfélag við viljum byggja á Ís- landi. Þar virðast stjórnmálamenn skiptast í tvo hópa. Sumir telja að nánara samstarf við alþjóðasamfé- lagið skapi forsendur til að skapa stöðugleika í fjármálum heimila og fyrirtækja. Þannig verði hægt að byggja upp samkeppnishæft þjóð- félag sem laðar að sér fólk og fyr- irtæki. Aðrir vilja leggja áherslu á þjóðernishyggju og vilja hverfa aft- ur til þjóðfélagseinangrunar með skertu frelsi einstaklinga og und- irtökum þröngra hagsmunaafla. Þannig hafa íhaldsöflin daðrað við einangrunarhyggju. Svo virðist sem rökræðan um lang- tímastefnu snúist um opið eða lokað samfélag, samstarf eða einangrun, sjálfstraust eða ótta. Jafnaðarmenn telja að velferð þjóðarinnar felist í opnu samfélagi þar sem hver ein- staklingur búi við öryggi og velferð, en hafi greiða möguleika til vaxtar. Þannig leggjum við áherslu á jöfnuð en um leið að hverskyns hindrunum og pólitískum takmörkunum verði vikið úr vegi. Þessum markmiðum verði náð í samstarfi við alþjóðasam- félagið. Við viljum breytingar, ekki stöðnun. Svo virðist sem jafnaðar- menn séu í raun eini valkostur þeirra sem vilja uppbyggingu fjölbreytts at- vinnulífs í alþjóðlegum tengslum og vilja losa heimili og fyrirtæki undan oki verðtryggingar og hárra vaxta. Hvoru á að trúa, þeim sem segja að hér sé allt meira eða minna í klessu eða grjóthörðum staðreyndum um umsvif landsmanna sem benda til annars? Lítum á nokkrar tölur. Inn- lend kreditkortavelta hefur vaxið um tæplega fimm prósent á þessu ári. Aukningin á kort- anotkun í útlöndum er enn meiri. Skíða- og golfferðir seljast jafnt og þétt. Í vikunni voru svo fluttar af því fréttir að þegar er búið að selja miða á jólatónleika fyrir 350 milljónir króna. Þannig er töluverður kraftur í einkaneyslu lands- manna, enda hefur hún hefur ekki aukist hraðar frá skell- inum haustið 2008 en á þessu ári. Þessari ljómandi traustu vísbendingar benda sem sagt eindregið til þess að ástandið sé í raun töluvert langt frá því að vera jafn afspyrnu slæmt eins og maður gæti slysast til að halda þegar hlustað er full- trúa svo ólíkra hópa sem Hagsmunasamtaka heimilanna og Samtaka atvinnulífsins. Hvað er sagt og hversu oft hefur áhrif. Hollt er að hafa í huga, þegar málflutningur þessara tveggja samtaka er meltur, að þó nöfnin séu stór þá eru þau fyrst og fremst lobbíistafélög tiltölulega þröngra hagsmuna. Samtök atvinnulífsins eru að minnsta kosti ekki í neinum feluleik með þá stöðu, ólíkt Hagsmunasamtökum heimilanna, sem láta í sífellu eins og þau tali fyrir gjörvalla þjóðina. Hafa reyndar margir talsmenn furðu ólíkra sjónarmiða tekið að sér það umboð að þjóð- inni forspurðri undanfarin þrjú ár. Í Fréttatímanum í dag er athyglisverð fréttaskýring Gunnhildar Örnu Gunnars- dóttur þar sem skoðað hvort hugarfarið sé farið að þvælast meira fyrir þorra landsmanna fremur en raunverulegur efnahagsvandi, sem vissulega hrjáir afmarkaða hópa. „... hægt er að blása erfiðleikana upp með afstöðu sinni. Það er engin spurning. En [kröggurnar sem fólk upplifir] eru ekki ímyndun heldur ímynd. Ef fólk upplifir tóma erfiðleika í kringum sig verður það ímynd þess á stöðu samfélagsins. Þótt það sjálft eigi hugsanlega ekki í miklum vanda,“ segir Þórhallur Örn Guðlaugsson, markaðsfræðingur og dósent við Háskóla Ís- lands, í greininni. Af opinberri umræðu mætti einmitt halda að þessi ímynd um vonda stöðu samfélagsins sé ráðandi. Sú er þó alls ekki raunin. Allar kannanir, byggðar á samtölum við venjulegt við fólk, sýna okkur þveröfuga mynd. Börn og unglingar eru til dæmis ánægð- ari nú en fyrir þremur árum og í skýrslunni „Hvernig hefur þú það?“, sem er sagt frá í fréttaskýringunni, kemur fram að 98 pró- sent Íslendinga segjast þekkja einhvern sem þeir geti treyst á í neyð. Það hlutfall er hvergi hærra innan OECD-ríkja og 83 prósent segja að þeir eigi ánægjulegar upplifanir dagsdag- lega, sem er ellefu prósentustigum yfir meðal- tali í OECD-ríkjum. Það er umhugsunarefni að svona mikill munur skuli vera á þeirri afstöðu fólks og tón- inum í hinni opinberu umræðu. Það bendir til þess að margir af þeim sem þar tala mest og skrifa séu ekki í góðum tengslum við raun- veruleikann. Bölsýnissíbyljan Spurning um val Veruleikinn og opinber umræða Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is H Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga- stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Stefnumótun til langs tíma er hluti af lausn stóru vanamála dagsins. Opið eða lokað? Magnús Orri Schram þingmaður Samfylkingar- innar viðhorf 35Helgin 28.-30. október 2011 Veitingahús SuZushii Stjörnutorgi Sjávargrillið ehf Íslenska Hamborgarafabrikkan Italiano ehf - pizzastaður Karma Keflavík ehf Grófinni 8 Kringlunni 4-12 Skólavörðustíg 14 Hlíðasmára 15 7 ummæli 17 ummæli 4 ummæli 5 ummæli 7 ummæli 1 2 3 4 5 Efstu 5 - Vika 43 Topplistinn Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.