Fréttatíminn - 28.10.2011, Qupperneq 41
Revestimiento
Ace Negro 33,3x100 cm
Ace Blanco 33,3x100 cm
Pavimento
Crystal Floor White 33,3x33,3 cm
Crystal Floor Dark 33,3x33,3 cm
25 ára
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
25 % afmælisafsláttur
21/10 - 5/11
J ón Sigurðsson, maðurinn sem hjálpaði okkur að
losna við danska kóng-
inn,” þannig talaði fóst-
urdóttir mín, Jóhanna
Rannveig, 5 ára um Jón
Sigurðsson forseta, eft-
ir umræðu á heimilinu
um þennan merka mann
sem á merkisafmæli í
ár. Hann var stór. Hann
var sterkur og hann
gerði þjóð sinni gott.
Hann á afmæli og við
fögnum því.
Hann var hugaður maður. Hann
hafði sýn, kjark og þor til að tala
fyrir okkar málstað. Hann hafði
áhyggjur af íslenskri þjóð; taldi
hana ekki nægilega hugaða né stað-
fasta. Hann vildi meira þor, meiri
baráttu fyrir trú og eigin gildum.
Sanna baráttu, ekki lýðskrum. Höf-
um það í huga þegar við flöggum
næst á afmælisdaginn, grillum
vegalambið eða skálum út í loftið
á 17. júní.
Hvernig skyldi honum síðan líða
árið 2011, þessum frænda íslensku
þjóðarinnar, sem barðist eins og
hann gat með öllum þeim ráðum
sem hann hafði, ef hann settist
um stund á bekk við Arnarhól og
horfði yfir sviðið. Ætli hann yrði
ekki hæstánægður að sjá eftirmenn
sína, alþingismennina okkar, heyja
málefnalega baráttu fyrir fólkið í
landinu, baráttu sem einkenndist af
framsýni, trúverðugleika og sterkri
samkennd?
Skyldi hann taka eftir því hversu
agað samfélagið er orðið eftir hans
dag; þar sem siðleysi, sóðaskapur,
einelti og græðgi eru aðeins orð í
gamalli bók? Skyldi hann
ekki dást að kaupsýslu-
mönnum sem glaðbeitt-
ir og fullir samkenndar
axla hverja þá ábyrgð
sem þeim ber og jafnvel
líka fyrir náungann, sem
ekki hefur alveg eins
breitt bak.
Eða skyldi hann ekki
fyllast stolti yfir vel-
gengni bankanna síð-
ustu vikur og mánuði,
ósérhlífni skilanefndar-
manna, sem vinna dag
og nótt, fyrir launum sínum, sem
varla teljast há miðað við þjóðhags-
legt mikilvægi starfsins?
Já, það er án efa margt sem gæti
glatt hjarta frænda okkar Sigurðs-
sonar og þó er það svo, að hér hef
ég ekkert skrifað um daglegt líf
og stöðu hins almenna Íslendings,
launamál kennara og heilbrigðis-
stétta, starfsskilyrði lögreglunnar,
stöðu sjúkra, fatlaðra, geðfatlaðra
og þeirra sem standa höllum fæti
í samfélaginu, enda er svo sem lít-
ið um þessi mál að segja. Það eru
stóru málin sem mestu skipta.
Já, hvernig myndi Jóni líða? Við
vitum ekki svörin. Sagnfræðingar
okkar tíma hafa ekki samið þau.
Bókin er ekki tilbúin. Enginn veit
neitt, en við höldum samt upp á af-
mælið. Og það er í sjálfu sér ærin
ástæða til, því þarna fór maður með
hugsjón, stíl, þor og getu til að tala
og framkvæma.
Ég vildi að ,,maðurinn sem hjálp-
aði okkur að losna við danska kóng-
inn” væri kominn aftur. Ég myndi
bara vilja ræða aðeins við hann …
og bjóða honum svo í bíó; ,,ameríska
bíómynd, popp og kók og alles”.
Jón Sigurðsson
,,Hjálpaði okkur að losna
við danska kónginn”
Þorgeir Pálsson
professor við tækni- og
verkfræðideild
Skyldi hann ekki dást að kaupsýslumönnum
sem glaðbeittir og fullir samkenndar axla hverja
þá ábyrgð sem þeim ber og jafnvel líka fyrir
náungann, sem ekki hefur alveg eins breitt bak.
HELGARBLAÐ
auglysingar@frettatiminn.is
Auglýsingasími Fréttatímans
531 3300
Helgin 28.-30. október 2011