Fréttatíminn - 28.10.2011, Qupperneq 56
Steven Spielberg er alltaf bestur þegar hann
fylgir barnshjarta sínu og það gerir hann svo
sannarlega í þessari sprellfjörugu ævintýramynd
um Tinna, Tobba og Kolbein kaftein. Með tölvu-
tækniliði sínu og góðum leikurum tekst honum
að blása ótrúlegu lífi í vel þekktar persónur
Tinnabóka Hergés og með göldrum sínum fangar
Spielberg anda bókanna þannig að unun er á að
horfa, bæði fyrir grjótharða Tinna-aðdáendur til
áratuga sem og nýja og yngri áhorfendur.
Kjarni sögunnar er sóttur í bókina um Tinna og
leyndardóma Einhyrningsins þar sem Tinni reynir
að leysa ráðgátuna um hvar kafteinn Kjálkabítur,
forfaðir Kolbeins, faldi fjársjóð sem kenndur er
við sjóræningjann Rögnvald rauða. Sagan er hins
vegar þétt og gerð enn skemmtilegri með því
að flétta vænan hluta úr Krabbanum með gylltu
klærnar saman við hana. Ákaflega sniðugt og vel
til fundið.
Maður sogast einhvern veginn strax inn í heim
bókanna á fyrstu mínútunum og síðan tekur við
hörkuskemmtileg rússíbanareið þar sem hvergi
er slegið af og hver uppákoman rekur aðra
þannig að áhorfandinn gleymir alveg stund og
stað. Rétt eins og í bókunum er ógnin aldrei mjög
þrúgandi en myndin er engu að síður hörku-
spennandi.
Persónurnar eru sjálfum sér samkvæmar.
Hundurinn Tobbi er eldklár og þrautgóður á
raunastund, Skapti og Skafti skila sínu gríni og
Tinni er jafn flöt persóna og venjulega þannig að
hver sem er getur speglað sig í honum. Það er
svo vitaskuld kjaftfori og hjartahreini alkóhólist-
inn Kolbeinn kafteinn sem auðgar myndina bæði
með fyndnustu atriðunum og grátbroslegum
mannlegum harmi sem gefur myndinni ákveðna
dýpt.
Og þegar þetta smellur allt saman í höndunum
á Spielberg stendur eftir frábær skemmtun og
áferðarfögur lifandi myndasaga sem sýnir Tinna
og skapara hans fullan sóma.
52 bíó Helgin 28.-30. október 2011
M yndasögur Hergés um Tinna hafa notið mikilla vinsælda áratugum saman og Tinni heldur
alltaf sínu þótt heimurinn breytist og hann
á bæði tryggja fylgendur og stöðugt bætast
nýir í hópinn, ekki síst í Evrópu sem hefur
alla tíð verið helsta vígi Tinna enda á hann
sitt varnarþing í Brussel. Þessi hjartahreini
og hugaði blaðamaður er minna þekktur í
Bandaríkjunum þar sem kynslóðirnar hafa
haft Batman, Superman, Spiderman og alla
þá halarófu af ofurhetjum sem þar starfa
til þess að halla sér að. Ekkert bendir þó
til annars að stórmyndin um Tinna muni
leggjast vel í Kanann og vegur Tinna eigi
eftir að fara vaxandi handan Atlantshafsins.
Tinni hefur einstakt lag á að róta sér í
vandræði og sérstaklega fundvís á illmenni
og skúrka sem hafa jafnan eitthvað veru
lega skuggalegt fyrir stafni. Fæstir mega
þeir sín þó mikils andspænis hinum eld
klára Tinna sem er svo sannarlega Þrándur
í götu, ekki síst þegar hann er með kjaftfora
og alkóhólíseraða sjóarann Kolbein kaftein
sér við hlið. Að ógleymdum hinum trygga
hundi Tobba.
Ævintýraþrá Tinna veldur því að hann af
kastar ekki miklu sem blaðamaður og lítið
fer fyrir fréttaskrifum hjá kappanum enda
er hann á stöðugum þeytingi. Bregður
sér meðal annars til tunglsins og lendir
í hremmingum í flestum heimshornum.
Hann er ekki ólíkur Indiana Jones að þessu
leyti og hermt er að Spielberg hafi fyrst
fengið áhuga á að kvikmynda Tinna upp úr
1980 enda meðvitaður um að heimshorna
flakk blaðamannsins með barnsandlitið
bauð upp á hressileg ævintýri í anda gömlu
þrjú bíómyndanna sem eru honum svo hug
leiknar.
Söguþráður Leyndardóms Einhyrnings
ins er flestum Íslendingum vel kunnur en
Hergé sagði söguna af fjársjóði Rögnvaldar
rauða í tveimur bókum, Leyndardómi Ein
hyrningsins og svo Fjársjóði Rögnvaldar
rauða. Þegar Tinni fer að kynna sér sögu
hins goðsagnakennda skips Einhyrnings
ins kynnist hann Kolbeini kafteini en sá
er afkomandi skipstjóra Einhyrningsins,
Rögnvaldar rauða. Þeir ákveða í framhald
inu að leggjast í leit að skipinu, sem hvílir
á hafsbotni, þar sem sagan segir að mikill
fjársjóður hafi sokkið með því. Þeir eru þó
ekki einir um að vilja komast í gullkistur
Rögnvaldar þar sem annar og fremur illúð
legur afkomandi Rögnvaldar er í svipuðum
hugleiðingum.
Myndin er í þrívídd og tölvuteiknuð sem
gefur Spielberg og Jackson gott færi á að
fanga anda bókanna og persónanna og
rétt eins og í sögum Hergés þykir Tinni
áberandi litlausastur í persónugalleríinu.
Kolbeinn kafteinn sér um að lyfta upp fjör
inu og húmornum og seinheppnustu leyni
lögreglumenn sem sögur fara af, Skapti og
Skafti, standa fyrir sínu. Og Tinni er bara
Tinni. Ákafur og úrræðagóður og kemst
alla leið með dyggum stuðningi vina sinna
og góðkunningja.
Kamelljónið Andy Serkis blæs lífi í Kol
bein en hann hefur áður sýnt mikil tilþrif í
túlkun sinni á Gollum í Hringadróttinsþrí
leik Peters Jacksons. Jamie Bell, sem gerði
fyrst garðinn frægan í Billy Elliot árið 2000
leikur Tinna.
Ævintýri tinna Leitin að einhyrningnuM
Biðin eftir fyrstu myndinni í fyrirhuguðum þríleik
þeirra miklu kappa Stevens Spielberg og Peters
Jackson um ævintýri hins dáða Tinna er loks á
enda. Þeir ríða á vaðið með Leyndardómi Einhyrn-
ingsins en Jackson snýr sér líklega að Föngunum í
sólhofinu þegar hann hefur klárað The Hobbit.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Evrópskur Indiana
Jones með barnsandlit
Tinni ásamt seinheppnustu og lélegustu rannsóknarlögreglumönnum sem sögur fara af, Skapta og Skafta.
gaMLingjar í hoLLywood
Rúnar Rúnarsson hefur farið sigurför um kvik-
myndahátíðir víða um lönd með Eldfjalli sem
gagnrýnendur hafa ausið lofi, bæði hér heima
og annars staðar. Myndin er framlag Íslands
til keppninnar um Óskarsverðlaunin sem best
erlenda myndin og gæti átt ágætis möguleika
á því að komast í fimm mynda úrslit en fari
svo þarf Rúnar að setja smókinginn í hreinsun
og vera við öllu búinn þegar verðlaunin verða
afhent í Los Angeles.
Eldri borgarar í akademíunni gæti reynst
Rúnari haukur í horni þegar kemur að vali á
bestu erlendu myndinni en þeir sem helst hafa
tíma til þess að kynna sér allar myndir eru þeir
sem sestir eru í helgan stein í Hollywood. Þá
ætti heldur ekki að spilla fyrir að Eldfjall fjallar um innri glímu manns sem þarf að takast á
við breytt líf þegar hann kemst á eftirlauna aldur.
Íslensk mynd hefur einu sinni komist í lokaslaginn um Óskarinn sem besta erlenda
myndin en það var þegar Friðrik Þór Friðiriksson mætti með Börn náttúrunnar til Los
Angeles. Á þeim tíma spratt upp sú kenning að það hefði talist Börnum náttúrunnar til
tekna að hún fjallaði einmitt um eldri borgara.
Aðrir miðlar
Imdb: 7.7
Rotten Tomatoes: 90%
Gætu hjálpað Eldfjalli
BíódóMur tinni og LeyndardóMur einhyrningsins
Fjörug eins og trilljón trylltir túnfiskar í Trékyllisvík
The Inbetweeners
Jay, Simon, Neil og Will eru utan-
garðs í skólanum, frekar óvinsælir
og klaufskir í samskiptum. Þeir
ganga að því sem gefnu að líf þeirra
muni taka
breytingum
til hins
betra að
skólagöngu
lokinni en
vandræðin
halda áfram
eftir útskrift
þannig að félagarnir ákveða að
skella sér í frí á gríska sólarströnd,
njóta lífsins og kynnast því hvernig
það er að vera alvöru karlmenn. Þeir
eru þó því miður sjálfum sér sam-
kvæmir og eru ekki lengi að róta sér
í botnlaus vandræði sem vandséð er
að þeir nái að losa sig út úr.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.9, Rotten
Tomatoes: 79%
FruMsýndar
The Help
Myndin er gerð eftir metsölubók Kathryn
Stockett og fjallar um líf auðugra hvítra kvenna
í Mississippi og þeldökka þjóna þeirra. Emem
Stone (Zombieland) leikur hina forvitnu og rétt-
nefni Skeeter sem snýr aftur til heimabæjarins
eftir háskólanám. Hún setur allt í bál og brand
í bænum þegar hún reynir að taka viðtöl við
hörundsdökar stúlkur sem þjóna ríkum, hvítum
fjölskyldum í bænum. Meðal annarra leikara í
myndinni eru Allison Janney, Sissy Spacek og
Bryce Dallas Howard.
Aðrir miðlar: Imdb: 8.1, Rotten Tomatoes:
74%, Metacritic: 62.
Theodór Júlíusson gæti átt greiða
leið að hjörtum fullorðna fólksins í
akademíunni sem velur þær fimm
myndir sem keppa um Óskarinn sem
besta erlenda myndin.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@
frettatiminn.is
Söguþráður
Leyndardóms
Einhyrningsins
er flestum
Íslendingum
vel kunnur en
Hergé sagði
söguna af fjár-
sjóði Rögn-
valdar rauða í
tveimur bókum,
Leyndardómi
Einhyrningsins
og svo Fjársjóði
Rögnvaldar
rauða.
Eldgos í Paradís
Sýningar eru hafnar í Bíó Paradís á
tveimur heimildarmyndum um gosið í
Eyjafjallajökli, Iceland Volcano Eruption
og In to Iceland́ s Volcano. Profilm
gerði myndirnar í fyrra í samráði við
National Geographic Channel í Banda-
ríkjunum. Þær hafa verið sýndar um
allan heim og vakið athygli fyrir bæði
efnistök og myndatöku. Myndirnar
hafa meðal annars verið tilnefndar til
Emmy-verðlauna og hafa verið sýndar
á yfir 300 sjónvarpsstöðvum.
Myndirnar verða sýndar í Bíó Paradís
til 4. nóvember.
Smáralind 201 Kópavogur
Hverafold 1-3 112 Reykjavík 511 1710
svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is
Opnunartími
Hverafold:
Virka daga 8:00–18:00 og
föstudaga 8:00–18:30
Opnunartími
í Smáralind:
Virka daga 11:00–19:00 og
laugardaga 11:00–18:00
SKYRTUTILBOÐ!
300 kr. skyrtan
– ef komið er með þrjár eða fleiri í einu.