Fréttatíminn - 28.10.2011, Qupperneq 64
Þ að er spurning,“ segir Gói þegar hann er spurður hvern-ig standi á þessu endalausa
ástarbrölti á honum og Birgittu á
fjölunum. „Þetta hefur einhvern
veginn æxlast svona á síðustu miss-
erum og við náum vel saman enda
er ekki annað hægt. Við leikum
elskhuga núna í Kirsuberjagarð-
inum og hún var að stökkva inn í
hlutverk eiginkonu minnar í Nei,
ráðherra! og svo var hún sjúk í mig
í Gauragangi.“
„Hann er náttúrlega óþolandi.
Hvernig væri að fara að fá einhvern
nýjan?“ spyr Birgitta og hlær. „Nei,
djók. Þetta er fínt og hann er frábær
mótleikari og svo mikill atvinnu-
maður. Svo var ég rosa mikið að
reyna við hann í Fólkinu í kjallar-
anum. Það er að segja persónan mín
var að reyna við persónuna hans.
Höfum það alveg á hreinu,“ segir
Birgitta áfram á léttu nótunum.
Kirsuberjagarðurinn er síðasta
og mest leikna verk Antons Tsjek-
hovs og er í hugum margra eitt
besta leikverk allra tíma. „Ég held
að maður væri ruglaður ef maður
myndi neita því að það væri draum-
ur hvers leikara að fá að kljást við
Tsjekhov yfir höfuð,“ segir Gói.
„Þetta er alveg ótrúlega vel skrifað
leikrit og alveg magnað að vera bú-
inn að fást við að síðustu vikurnar
og sjá hvað það á mikið erindi við
tíðarandann á Íslandi í dag. Ég held
að íslenskir áhorfendur skilja það
betur nú en nokkru sinni fyrr.“
Kirsuberjagarðurinn var frum-
sýndur árið 1904 í Moskvu í leik-
stjórn Constantins Stanislavskí.
„Tsjekhov var einmitt mjög ósáttur
þegar Stanislavskí setti það upp
fyrst að þá var ekkert nema drama.
Það er mjög auðvelt að gera sýn-
inguna þannig en þegar maður fer
að kafa ofan í verkið skilur maður
hvað Tsjekhov er að meina með því
að segja að þetta sé gamanverk.
Vegna þess að hann er kannski svo-
lítið að gera grín eða benda okkur
á hvernig manneskjan virkar. Það
er aldrei bara drama í okkar lífi og
þótt það komi upp einhver hræðileg-
ur atburður þá finnur maður alltaf
grínið, einhvern veginn til að gera
hlutina bærilegri,“ segir Birgitta.
„Þessi leið Hilmis Snæs og þessi
uppfærsla núna er rosalegan stór
og mikið líf í henni,“ segir Gói. „Við
erum með tónlistarmenn á svið-
inu þannig að það er mikil tónlist
og mikið stuð og fjör í Kirsuberja-
garðinum. Það er stanslaust partí
hjá hefðarkonunni sem á garðinn,
en harmurinn er náttúrlega alltaf
skammt undan. Eins og við þekkj-
um bara. Það var stuð 2007 og svo
var ekkert meira stuð. Það er dálítið
eins í þessu leikriti.“
toti@frettatiminn.is
Birgitta og gói Kærustupar eina ferðina enn
Ástin blómstrar í
Kirsuberjagarðinum
Guðjón Davíð og Birgitta njóta þess að fást við Tsjekhov í Kirsuberjagarðinum. „Ég hugsa að þetta leikrit hafi aldrei verið
sett upp á Íslandi á tímum þar sem það talar svona beint til okkar,“ segir Gói. „Mér finnst líka að Tsjekhov sé að reyna að fá
áhorfendur til að sjá hvað við erum hlægileg í rauninni, mannskepnan, án þess að það fari út í einhvern farsa.“
Guðjón Davíð Karlsson, Gói, og Birgitta Birgisdóttir leika elskendur í Kirsuberjagarðinum sem
Þjóðleikhúsið frumsýnir á föstudagskvöld í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar. Gói og Birgitta eru
alvön því að leika kærustupar en á síðustu misserum hafa þau haft ríka tilhneigingu til þess að
fella saman hugi á sviðinu. Þau voru par í Gauragangi, eru hjón í Nei, ráðherra! og straumar voru
á milli þeirra í Fólkinu í kjallaranum.
plötuhorn Dr. gunna
locust sounds
Reykjavík!
VIP!
Þriðja plata Reykja-
víkur! er 14 laga bland
í svörtum ruslapoka,
dæmalaust vel útilátinn
skammtur af hráslaga-
legu en ýkt hressandi
gítarrokki. Hljómsveitin
hefur pússast saman
eftir áralangt hark og
kemur hér ægiþétt með
slípuðustu og bestu
plötuna sína. Hún er mun
poppaðri en hinar tvær
og lögin melódísk undir
glitrandi gítarhaugum.
Þegar svona vel er
skammtað vill lakara efni
sullast með. Sem betur
fer eru þó b-hliðar lög í
algjörum minnihluta og
Hellbound Heart, Black
Out, Cats og mörg fleiri
urrandi flott rokklög
tryggja sveitinni leður-
legubekki í vip-setustofu
íslenska rokksins. Ass-
goti gott!
svefn og vöku skil
Árstíðir
Sætsúpa
Þetta er önnur plata Árs-
tíða. Aftur er boðið upp
á róleg og dramatísk lög
– eins konar þjóðlaga-
barokk-popp – bæði á
íslensku og ensku. Kallað
hefur verið í Ólaf Arn-
alds, sem spinnur utan
um lögin mikinn silkiþráð
strokhljóðfæra. Sveitin
minnir á ýmislegt, bæði
Simon & Garfunkel og
Savanna tríóið, og er
orðin mjög góð í því sem
hún gerir. Samhljómur
söngvaranna er fallegur
og hljóðfærasláttur hák-
lassa, en því miður eru
mörg lög bara ekki nógu
eftirminnileg. Það vantar
ágengari lög og platan
rennur því niður sem
litrík sætsúpa, fín sem
slík, en það vantar meira
sem grípur og heldur.
trash Can honey
Elephant Poetry
Alt-rokkað
Alnafni stórpopparans,
Björgvin Halldórsson,
fer fyrir Fílaljóði með
dönskum vinum sínum
og (á þessari plötu)
íslenska trommaranum
Janusi Braga. Bandið
hefur verið starfandi
í Kaupmannahöfn frá
árinu 2003 og sett ýmis
verk á netið og á plötur.
Þessa nýjustu átta laga
plötu má fá hér: elep-
hantpoetry.bandcamp.
com. Bandið spilar
„alt-rokk“ með rifnum
gíturum og dínamískri
uppbyggingu laga –
poppaður afleggjari frá
Sonic Youth og Smashing
Pumpkins. Platan er
ágæt, vel spiluð og
sungin, en lagasmíðarn-
ar mættu vera sterkari.
Ekki er þetta tíðindamikil
músík 20 árum á eftir
gullöld hennar, en rokk-
áhugamenn ættu að
tékka á þessu.
Kirsuberjagarðurinn – frumsýning í kvöld
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 29/10 kl. 14:00 13.k Sun 20/11 kl. 14:00 20.k Sun 18/12 kl. 14:00 27.k
Sun 30/10 kl. 14:00 14.k Sun 20/11 kl. 17:00 aukas Mán 26/12 kl. 14:00 28.k
Mið 2/11 kl. 19:00 aukas Lau 26/11 kl. 14:00 21.k Mán 26/12 kl. 17:00 29.k
Lau 5/11 kl. 14:00 15.k Sun 27/11 kl. 14:00 22.k Lau 7/1 kl. 14:00 30.k
Sun 6/11 kl. 14:00 16.k Lau 3/12 kl. 14:00 23.k Sun 8/1 kl. 14:00 31.k
Lau 12/11 kl. 14:00 17.k Lau 3/12 kl. 17:00 aukas Lau 14/1 kl. 14:00
Sun 13/11 kl. 14:00 18.k Sun 4/12 kl. 14:00 24.k Sun 15/1 kl. 14:00
Sun 13/11 kl. 17:00 aukas Lau 10/12 kl. 14:00 25.k
Lau 19/11 kl. 14:00 19.k Sun 11/12 kl. 14:00 26.k
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Lau 29/10 kl. 19:00 12.k Lau 12/11 kl. 19:00 14.k Fös 2/12 kl. 20:00
Lau 5/11 kl. 19:00 13.k Fös 25/11 kl. 19:00 15.k Fös 9/12 kl. 19:00
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011
Kirsuberjagarðurinn (Stóra sviðið)
Fös 28/10 kl. 20:00 frums Mið 16/11 kl. 20:00 6.k Fim 1/12 kl. 20:00 aukas
Fim 3/11 kl. 20:00 2.k Fös 18/11 kl. 20:00 aukas Sun 4/12 kl. 20:00 10.k
Fös 4/11 kl. 20:00 3.k Lau 19/11 kl. 20:00 7.k Fim 8/12 kl. 20:00 11.k
Mið 9/11 kl. 20:00 4.k Mið 23/11 kl. 20:00 8.k Sun 11/12 kl. 20:00 12.k
Fim 10/11 kl. 20:00 aukas Lau 26/11 kl. 20:00 aukas Fös 16/12 kl. 20:00 13.k
Fös 11/11 kl. 20:00 5.k Sun 27/11 kl. 20:00 9.k
Sannkölluð leikhúsperla um ástir, drauma og vonir
Klúbburinn (Litla sviðið)
Lau 29/10 kl. 22:30 2.k Lau 12/11 kl. 17:00 3.k
Dansleikhús um karlmenn. Snýr aftur frá fyrra leikári. Aðeins þessar sýningar
Afinn (Litla sviðið)
Fös 28/10 kl. 20:00 9.k Fös 11/11 kl. 20:00 11.k Lau 19/11 kl. 20:00 13.k
Fös 4/11 kl. 20:00 10.k Fös 18/11 kl. 20:00 12.k
Hlýlegt gamanverk með stórt hjarta. Síðustu sýningar
Eldfærin (Litla sviðið)
Sun 30/10 kl. 13:00 8.k Sun 6/11 kl. 13:00 9.k Sun 13/11 kl. 13:00 10.k
Leikhústöfrar fyrir börn á öllum aldri. Sýningum lýkur í nóvember.
Fullkominn dagur til drauma (Stóra sviðið)
Sun 30/10 kl. 20:00 5.k Sun 6/11 kl. 20:00 6.k
Íslenski Dansflokkurinn. Verk eftir Anton Lackhy úr Les Slovaks
Lau 29.10. Kl. 16:00 15. sýn.
Lau 29.10. Kl. 19:30 16. sýn.
Sun 30.10. Kl. 19:30 17. sýn.
Mið 2.11. Kl. 19:30 4. au.
Fim 3.11. Kl. 19:30 5. au.
Listaverkið (Stóra sviðið)
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Fös 28.10. Kl. 19:30 16. sýn.
Lau 29.10. Kl. 19:30 17. sýn.
Mið 2.11. Kl. 19:30 1. sér.
Fim 3.11. Kl. 19:30 18. sýn.
Fös 4.11. Kl. 19:30 5. au.
Lau 5.11. Kl. 19:30 6. au.
Mið 9.11. Kl. 19:30 19. sýn.
Lau 12.11. Kl. 19:30 20. sýn.
Sun 13.11. Kl. 19:30 21. sýn.
Lau 19.11. Kl. 19:30 22. sýn.
Sun 20.11. Kl. 19:30 23. sýn.
Fim 24.11. Kl. 19:30 24. sýn.
Fös 25.11. Kl. 19:30 25. sýn.
Sun 27.11. Kl. 19:30 26. sýn.
Fim 1.12. Kl. 19:30 27. sýn.
Fös 2.12. Kl. 19:30 28. sýn.
Hlini kóngsson (Kúlan )
Sun 30.10. Kl. 15:00
Hreinsun (Stóra sviðið)
Uppnám (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 29.10. Kl. 22:00
Fös 25.11. Kl. 22:00
Fös 2.12. Kl. 22:00
Lau 10.12. Kl. 22:00
Fös 28.10. Kl. 19:30 2. sýn.
Fös 4.11. Kl. 19:30 3. sýn.
Lau 5.11. Kl. 19:30 4. sýn.
Lau 12.11. Kl. 19:30 5. sýn.
Sun 13.11. Kl. 19:30 6. sýn.
Lau 19.11. Kl. 19:30 7. sýn.
Sun 20.11. Kl. 19:30 8. sýn.
Fim 24.11. Kl. 19:30 9. sýn.
Fös 25.11. Kl. 19:30 10. sýn.
Fös 2.12. Kl. 19:30 11. sýn.
Lau 3.12. Kl. 19:30 12. sýn.
Lau 10.12. Kl. 19:30 13. sýn.
Ö
Ö
Ö
Ö
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 29.10. Kl. 16:00 Aukas.
Judy Garland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 30.10. Kl. 22:00 4. sýn.
Lau 5.11. Kl. 22:00 5. sýn.
Sun 6.11. Kl. 22:00 6. sýn.
Lau 12.11. Kl. 22:00 7. sýn.
Sun 20.11. Kl. 22:00 8. sýn.
Ö
U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
Ö
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Fim 10.11. Kl. 19:30
Fös 11.11. Kl. 19:30
Fim 17.11. Kl. 19:30
Fös 18.11. Kl. 19:30
Kjartan eða Bolli? (Kúlan)
Lau 29.10. Kl. 17:00 Frums. Lau 5.11. Kl. 17:00
Uppistand - Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 2.11. Kl. 20:00 Fim 3.11. Kl. 20:00
SÍÐASTA SÝNING!
21. sýn.
22. sýn.
23. sýn.
24. sýn.
25. sýn.Lau 26.11. Kl. 19:30
Nánari upplýsingar og skráning: sími 525 4444 endurmenntun.is
FRÓÐLEIKUR OG SKEMMTUN
Eystrasalt – ferð um fögur
lönd með Jóni Björnssyni
hefst 31. október
Súkkulaði …
himneskt um jólin
skráningarfrestur til 31. október
Kínversk heimspeki
skráningarfrestur til 2. nóvember
Barokk list: málverk,
höggmyndir og arkitektúr
skráningarfrestur til 1. nóvember
Draumar – auður svefnsins
skráningarfrestur til 7. nóvember
Jólahald fyrir tíma
Jesúbarnsins
skráningarfrestur til 9. nóvember
Námskeið Endurmenntunar eru öllum opin
60 menning Helgin 28.-30. október 2011