Fréttatíminn - 28.10.2011, Qupperneq 68
É g var orðinn leiður á að hanga og bíða eftir góðu hlut-verki, löngu hættur í prent-
verkinu og ákvað því að söðla um,“
segir Magnús Ólafsson, leikari og
skemmtikraftur með meiru, en nú
selur hann bændum búvélar, hvort
heldur eru dráttarvélar eða heybind-
itæki, auk bíla og tækja fyrir verk-
taka. „Ég sá starfið auglýst og sótti
um, vildi vita hvort svona gamall jaxl
fengi vinnu. Mér var boðið að prófa
og líst bara vel á,“ segir Magnús en
hann starfar nú á Bifreiða- & vélasöl-
unni, fyrirtæki sem tengist Höfða-
bílum.
Þegar nær dregur aðventunni býr
Magnús sig, ásamt félaga sínum
Þorgeiri Ástvaldssyni, undir komu
jólasveinanna Hurðaskellis og Stúfs.
Þeir hafa það fram yfir aðra jólasveina
að hafa verið handteknir þegar þeir
dreifðu eplum meðal alþingismanna.
Sumargleðimenn, Magnús og félagar,
fara síðan í alla fjórðunga næsta sum-
ar með viðeigandi húllumhæi – og
hafa auk þess neglt niður goslokahá-
tíðina í Eyjum næsta sumar.
Magnús hefur leikið lögreglumenn
í þremur síðustu kvikmyndum eða
sjónvarpsseríum, nú síðast í Heims-
endi Ragnars Bragasonar sem sýnd-
ur er á Stöð 2. Þar eru flestir galnir
en Magnús segir lögreglumann sinn
heilan á geði en af gamla skólanum.
„Hann kemur að þessu geðveika fólki
þegar allt er komið í hund og kött,
eins og allt stefnir í. Ragnar leikstjóri
segir að ég hljóti að hafa verið lög-
reglumaður í fyrra lífi því þetta sé svo
létt fyrir mig. Það er spurning hvort
ég ætti að fara í Lögregluskólann, ég
gæti tekið við af Geir Jóni, er hann
ekki að hætta? Ég er hávaxinn eins
og hann en ekki eins svakalegur og
ég var, sjötíu kílóum léttari, orðinn
svo mjór að ég er eiginlega hvorki
heill né hálfur maður.“
Magnús tekur þó niður lögreglu-
húfuna í næsta hluverki sínu, bíó-
mynd sem gerð verður á komandi ári.
„Þar á ég að leika gamlan alkóhólista.
Ég veit nú hvernig á að lyfta glasi, en
er ekki alveg orðinn handlama af því
enda skilur það lítið eftir, en það er
gaman að leika svona karaktera.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Spurning hvort ég ætti að
fara í Lögregluskólann
Gæti tekið við af Geir Jóni enda þrjú síðustu hlutverkin lögregluþjónar. Leikarinn selur nú búvélar – en
tekur góðum hlutverkum þegar þau bjóðast.
Vertu hress í vetur
Angelica er íslensk náttúruafurð úr ætihvönn sem gefur þér aukna orku
og veitir mótstöðu gegn alls konar vetrarpestum.
Sæktu styrk í náttúru Íslands!
www.sagamedica.is
Fæst í apótekum, heilsuvöruverslunum og stórmörkuðum.
DráttarvÉlasali Magnús Ólafsson söðlar uM
Magnús Ólafsson, leikari og skemmtikraftur, hefur söðlað um og selur nú búvélar, meðal annars. Ljósmynd Hari
Miðasala sími: 571 5900
ALVÖRU MENN
“Hér er valinn maður í hverju rúmi...
Leikurinn er upp á fimm stjörnur.”
-Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.
- harpa alþýðunnar
FÖS 28/10
L AU 29/10
FÖS 04/11
L AU 05/11
FÖS 1 1 / 1 1
L AU 12 /11
FÖS 18/11
FIM 24/11
FÖS 25/11
L AU 26/11
FÖS 02 /12
FÖS 09/12
L AU 10/12
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
Ö
Ö
Ö
U
f atahönnun, tískuteikning og ljósmyndun renna saman í eitt í sýningu sem opnar í
Hafnarborg í Hafnarfirði á laug-
ardag. Það er ekki oft sem stóru
virðulegu listasöfnin hýsa sýningar
tengda tísku svo það eitt er vísbend-
ing um að hér er eitthvað spennandi
á ferðinni.
Það eru þær Saga Sigurðardóttir
ljósmyndari og Hildur Yeoman fata-
hönnuður og tískuteiknari sem eru
á bakvið sýninguna.
Hildur hef-
ur meðal ann-
ars hannað
fylgihlutalínu
þar sem var
að finna hand-
töskur í formi
púðluhunda
og hún frum-
sý ndi aðra
fatalínu sína
Cherry Bomb
á Reykjav ík
Fashion Festi-
val fyrr á árinu.
Saga býr og
starfar í Lond-
on þar sem hún
lauk nýverið BA
prófi í tískuljós- myndun
í London College of Fashion. Hún
hefur unnið með fjölda
ólíkra hönnuða á stuttum
ferli og ljósmyndir eftir
hana hafa birst í stórum
tískutímaritum á borð
við Dazed and Confused,
Dazed Digital og Tops-
hop 214
Sýnininguna kal la
þær Hamskipti en hún
var hluti af norræna
tískutvíæringnum sem
var haldinn í Seattle í
Bandaríkjunum nú í
september. Sýningarstjóri er Klara
Þórhallsdóttir.
Hafnarborg HaMskipti Hefjast á laugarDag
Sambræðsla hönnunar
og ljósmyndunar
64 dægurmál Helgin 28.-30. október 2011