Fréttatíminn - 28.10.2011, Blaðsíða 69
Grænt og blátt Epli í fallegri skál og púði í stíl.
’Undirtónn-inn í þessuer að koma við-skiptavinum áóvart með
skemmtilegum
hugmyndum
sem gefa hvers-
dagsleikanum
gildi og gleði.
S
vart, grátt, vínrautt, með orange,
grænum og bláum tónum eru ráð-
andi litir hjá Village í haust og
vetur. Ég tel þessa liti falla vel að
þeim smekk sem Íslendingar hafa, sér-
staklega hvað textílvörur varðar, en þær
eru stór þáttur sem stjórnar samsetningu
litavals í búðinni,“ segir Hallgunnur
Skaptason verslunarstjóri Village á Ís-
landi.
Taki fyrsta skrefið
„Eins og Íslendingar eru áhugasamir
um nýstárlega hönnun þarf alltaf svolítið
til þess að brjóta ísinn. Frá því við opn-
uðum í maí nú í vor hafa erlendir ferða-
menn verið allstór hluti viðskiptavina okk-
ar og eru þeir óhræddir við að velja sér
eitthvað nýtt sem óvíða sést. Íslendingar
vilja hins vegar að einhver sé búinn að
taka fyrsta skrefið,“ segir Hallgunnur.
Í Village er fjölbreytt heimilis- og
gjafavöruúrval. Í búðinni á Laugavegi 70 í
Reykjavík er byggt á rými og einfaldleika
og hver vara fær sitt svæði. Undirtónninn
í þessu er að koma viðskiptavinum á óvart
með skemmtilegum hugmyndum sem gefa
hversdagsleikanum gildi og gleði.
Miklar hreyfingar
Vörunum er stillt upp til þess að auð-
velda viðskiptavininum að velja sér vör-
una. Þar má nefna textílvörur, glervörur,
trévörur og fleira. „Litir, áferð, textíll;
vöruúrvalið allt er sett saman eftir
ákveðnu fyrirkomulagi. Miklar hreyfingar
eru í Village búðunum árið um kring og
hafa þær allar sem eru um það bil fjörutíu
í ýmsum borgum Svíþjóðar, sama útlit
þrátt fyrir mismunandi umhverfi,“ segir
Hallgunnur. www.village.se
sbs@mbl.is
Hugmyndir
með gildi
og gleði
Sænsk hönnun í skemmtilegum litatónum allsráðandi
hjá Village, sem er ný búð við Laugaveginn í Reykjavík.
Morgunblaðið/Golli
Ný búð „Svart, grátt, vínrautt, með orange, grænum og bláum tónum eru ráðandi litir hjá Village í haust og
vetur,“ segir Hallgunnur Skaptason verslunarstjóri í búðinni.
Fjólublátt Dúkur, bakki og kertastjaki í stíl.
14 | MORGUNBLAÐIÐ
HÚÐVÆNT
án ertandi ilm- og litarefna
uppþvottalögur
glerhrei sirbaðherbergishreinsir yfirbor shreinsir sturtuhreinsirblettahr insir
uppþvottaefni þvottaefnimýkingarefni þvottaefni og mýkingarefni
Allt sem þú þarft er smá
umhverfisvæn og húðvæn hreinsiefni sem virka
UMHVERFISVÆNT
framleitt samkvæmt
ströngustu umhverfisstöðlum
án kemískra efna
ÖFLUG VIRKNI
NÁTTÚRULEGAR
ILMOLÍUR
ferskur ilmur
Hagkaup Víðir Þín Verslun Seljabraut Fjarðarkaup
Halle á föstu með
frönskum leikara
Strákar, hættið að
láta ykkur dreyma um
Halle Berry. Hún er
komin á fast – aftur.
Sá heppni er franski
leikarinn Olivier
Martinez. Halle skildi
við barnsföður sinn,
Gabriel Aubry, í byrjun árs.
„Nei, ertu ekki að grínast,“ sagði Þórarinn
Þórarinsson, blaðamaður og kvikmynda-
gagnrýnandi Fréttatímans, þegar hann
heyrði fréttina. „Hún sem var svo ást-
fangin þegar ég hitti hana á kvikmyndahá-
tíðinni á Cannes 2006 í tengslum við þriðju
X-Man myndina.“
Halle Berry, óskarðsverðlaunahafi frá
árinu 2002 og kyntáknið sem hélt sig
við Five Factor Diet-megrunarkúrinn,
samkvæmt vefnum skinnycelebrities og
Fat Flush Plan fyrir sex árum, samkvæmt
Womensday, er orðin 45 ára. Kærastinn
Olivier, sem reyndar er búin að vera með
Halle frá því í mars, var í mörg ár með hina
áströlsku Kylie Minogue upp á arminn
- gag
Fúlskeggjaður Bond
Daniel Craig mun
skarta alskeggi
sem James Bond í
Skyfall, næstu mynd
um þennan fremsta
njósnara í þjónustu
hennar hátignar.
Bond hefur ekki látið
sjá sig áður skeggj-
aðan ef undan er skilin óhjákvæmilegur
skeggvöxtur hjá Pierce Brosnan í Die
Another Day en þar var Bond í fangelsi í
Kóreu í 14 mánuði en var fljótur að raka sig
þegar hann losnaði. Bond hefur því ekki
áður látið sér vaxa skegg af sjálfsdáðum.
Tökur á myndinni hefjast í London og Skot-
landi í næsta mánuði en hún verður gerð
fyrir miklu minna fé en síðustu myndir
þannig að sjálfur Bond þarf að beygja sig
undir kreppuna og spara.
Ör á höfði prinsessu
Kate Middleton,
hertogaynja af Cam-
bridge, mætti glæsileg
til samkvæmis í vikunni.
Hárgreiðsla hennar
afhjúpaði áður óþekkt
ör við vinstra gagnauga
hennar og eins og geta
má nærri hafa fjölmiðlar í Bretlandi sýnt
örinu umtalsverðan áhuga. Talsmaður
Kate hefur staðfest að hún sé vissulega
með ör á höfðinu og að það sé eftir aðgerð
se hún undirgekkst sem lítið barn. Hann
vildi ekki fara nánar út í aðgerðina, sagði
hana einkamál og að hún hefði verið
alvarleg. Sérfræðinga greinir á um það og
haft er eftir lækni að sennilega hafi örið
komið eftir að fæðingarblettur var fjar-
lægður eða eitthvað álíka meinlaust.