Fréttatíminn - 30.12.2011, Page 2
Lítilsvirðing við starfsfólk Deloitte
Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri SSF.
Bankakerfið Tvö þúsund manns hafa missT vinnuna á þremur og hálfu ári
Árið bankamönnum hið erfiðasta frá hruni
Gunnhildur
Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatiminn.is
v ið sem fylgjumst með bankakerfinu héldum að 2010 yrði erfiðasta árið
innan bankanna en reynslan
er að árið 2011 hefur verið það
erfiðasta,“ segir Friðbert Trausta-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
starfsmanna fjármálafyrirtækja,
SSF. Ástæðan er að svo langan
tíma hefur tekið að koma með
sameiginlegar lausnir vegna
skuldavanda heimila. Þetta hefur
seinkað uppgjöri um allt að einu
ári.
„Ýmsir stjórnmálamenn voru að
lofa upp í ermina á sér um að það
þyrfti að gera meira fyrir heimilin
og að það yrði nú jafnvel gert. Þeir
jafnvel hvöttu fólk til þess að leita
ekki lausnanna,“ segir Friðbert.
Hann býst ekki við uppsögnum
á komandi ári því þær sem hafa
verið í aðdraganda jóla í Arion og
Byr-hluta Íslandsbanka. „Nei, ég
held ekki. Álagið á starfsmenn
fjármálafyrirtækja hefur vaxið svo
mjög auk þess sem bankakerfið
er komið niður í þá stærð sem
það var árin 1990 til 2004. Fjöldi
starfsmanna er svipaður og var
þá; innan við fjögur þúsund. Þeir
voru 6.000 í byrjun árs 2008.“
Þegar Friðbert lítur til ársins
2012 segir hann að enn verði
mikið um úrvinnslu vegna skuld-
settra heimila og fyrirtækja. „Því
starfi er engan veginn lokið. Það
er að koma að þeim hópi sem fékk
enga lausn, þessum meðal Jóni og
Gunnu.“ Friðbert telur einnig að
ólíklegt sé að felldar verði niður
skuldir. Aðrar lausnir, eins og að
setja fjárhæðir á biðreikninga og
skoða í fyllingu tímans, sé líklegri
leið.
„Dylgjur,“ segja bæjarfulltrúar Samfylkingar, Framsóknar og Vinstri grænna um
orð Gunnars I. Birgissonar og Aðalsteins Jónssonar, Sjálfstæðisflokki, þess efnis að
Deloitte sé hirðendurskoðandi flokkanna. Þorvarður Gunnarsson, forstjóri Deloitte,
lýsir furðu sinni á ummælum þeirra Gunnars og Aðalsteins sem segja einnig að
tilboð Deloitte í endurskoðun ársreikninga bæjarins sé svo lágt að annað hvort verði
skoðunin nær engin eða að Deloitte stóli á önnur verk hjá bænum í staðinn.
Þorvarður bendir á að Deloitte sé eitt stærsta fyrirtækið í Kópavogi, með 230
starfsmenn. „Mér finnst þetta lítilsvirðing við starfsfólk okkar, sem að margt hvert
býr í Kópavogi,“ segir hann og leggur áherslu á að Deloitte setji engin skilyrði um
önnur verk háð þessu. „Við buðum í verkið. Við höfum þekkingu á því sem við erum
að gera og vitum hvað við erum að bjóða í,“ segir hann en Deloitte bauð 27 prósent
af áætluðum kostnaði í verkið. - gag
Hlífðargleraugu
á alla
Gamla árið verður kvatt með flug-
eldum að vanda. Flugeldamarkaðir
björgunarsveitanna, helsta tekju-
öflun þeirra, eru 110 víða um land
og þar af 36 á höfuðborgarsvæðinu.
Auk þess selja íþróttafélög og fleiri
flugelda. Það verður því væntanlega
mikil litadýrð á himni þegar árið
2011 kveður og 2012 tekur við. Rétt
er þó að fara að öllu með gát til
þess að koma í veg fyrir slys. Í grein
sem Gunnar Stefánsson, sviðstjóri
björgunar- og slysavarnarsviðs
Landsbjargar, birtir í Víkurfréttum
bendir hann á að varlega þurfi að
fara og leggur áherslu á að farið
sé eftir leiðbeiningum. Skothólkar
þurfa að vera öruggir og alls ekki
má gleyma hlífðargleraugum og
ullar- eða skinnhönskum. Gildir það
jafnt fyrir unga sem aldna. - jh/Ljós-
mynd Landsbjörg
Bækur velTa á Bókamarkaði
Tíu söluhæstu veltu
hálfum milljarði
Gríðarleg velta var í kringum söluhæstu bækur ársins. Könnun Fréttatímans leiðir í ljós að þær
hafi selst í rúmlega 135 þúsund eintaka og að heildarsala hafi numið um fimm hundruð milljónum.
T íu söluhæstu bækur ársins 2011 veltu um hálfum milljarði
samkvæmt úttekt Frétta-
tímans. Bækurnar tíu
seldust í um 135 þúsund
eintökum en aldrei áður
hafa þrjár bækur selst í yfir
tuttugu þúsund eintökum á
einu ári.
Yrsa Sigurðardóttir, Arn-
aldur Indriðason og Jonas
Jonasson eru sigurvegarar
bókaársins 2011 samkvæmt
heildarsölulista Félag bóka-
útgefenda. Allir rithöfund-
arnir þrír seldu meira en
tuttugu þúsund eintökum
af sínum bókum. Yrsa gerði
sér lítið fyrir og náði topp-
sætinu því sem Arnaldur
Indriðason hefur einokað
undanfarin sex ár í það
minnsta. Sú bók sem kom
mest á óvart var örugglega
Gamlinginn sem skreið út
um gluggann og hvarf eftir
hinn sænska Jonas Jonas-
son. Íslenskir bókaunn-
endur heilluðust af sögunni
og rifu bókina út í bílförm-
um. Ætla má að þessar þrjár
bækur hafi einar og sér velt
rúmlega 230 milljónum.
Bókaforlögin Forlagið (en
undir þeirri regnhlíf eru með-
al annars útgáfurnar JPV,
Mál og menning og Vaka-
Helgafell) og Bjartur/Veröld
geta vel við unað. Þau eiga
samtals sjö bækur á listanum
yfir tíu söluhæstu bækurnar,
Forlagið fjórar og Bjartur/
Veröld þrjár. Egill Örn Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri
Forlagsins, segir í samtali við
Fréttatímann að menn þar
á bæ séu afskaplega sáttir
við útkomu ársins og í sama
streng tekur Pétur Már Ólafs-
son, útgefandi hjá Veröld.
Fastir gestir eins og árleg
matreiðslubók Hagkaups og
matreiðslubók Disney eru
ofarlega auk þess sem sál-
fræðingurinn Hugó Þórisson,
sem kom út á vegum Sölku,
virðist hafa náð að höfða til
kaupenda.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Mest seldu bækur ársins
1 Brakið Yrsa Sigurðardóttir -
Veröld
2 Einvígið Arnaldur Indriðason -
Vaka-Helgafell
3 Gamlinginn Jonas Jonasson -
JPV
4 Heilsuréttir Hagkaups Sólveig
Eiríksdóttir - Hagkaup
5 Stóra Disney köku- og brauð-
bókin Walt Disney - Edda
6 Málverkið Ólafur Jóhann
Ólafsson - Vaka-Helgafell
7 Hollráð Hugos Hugó Þórisson
- Salka
8 Hjarta mannsins Jón Kalman
Stefánsson - Bjartur
9 Stelpur A-Ö Kristín Tómas-
dóttir - Veröld
10 Konan við 1000° Hallgrímur
Helgason - Mál og menning
Hundruð íslenskra kvenna
gætu átt bótarétt á lýta-
lækna sína
Lýtalæknar
sem hafa
notað
sílikonpúða
við brjósta-
stækkanir frá
franska fram-
leiðandanum
PIP ætla að
senda þeim
400 íslensku
konum sem bera fyllingarnar bréf með upp-
lýsingum og ráðgjöf um hvað þær þurfi að gera
í kjölfar þess að upplýst var um að fyllingarnar
stæðust ekki gæðapróf. Tryggvi Axelsson, for-
stjóri Neytendastofu, segir ríkari ábyrgð lagða
á dreifingaraðila, sem eru læknarnir í þessu
tilfelli,, hér á landi en í Evrópusambandinu. Lög
um skaðsemisábyrgð geri líklega læknana ábyrga
fyrir gölluðu sílikonpúðunum. Frönsku fyllingarn-
ar hafa verið notaðar hér á
landi í um tvo áratugi. Þær
voru teknar af markaði í
Evrópu í maí 2010 þar sem
framleiðandinn notaði
annað efni og lakara en
það sem hann hafði fengið
vottað. Þetta kemur fram á
vef landlæknisembættisins.
- gag
2 fréttir Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012