Fréttatíminn - 30.12.2011, Síða 4
Michelsen_255x50_E_0811.indd 1 04.08.11 15:48
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Veðurvaktin ehf
Ráðgjafafyrirtæki í eigu
Einars Sveinbjörnssonar
veðurfræðings. Veður-
vaktin býður upp á veður-
þjónustu fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og opinbera
aðila í ráðgjöf og úrvinnslu
flestu því sem viðkemur
veðri og veðurfari.
Veðurvaktin ehf
Eikarási 8, 210 Garðabæ
Sími: 857 1799
www.vedurvaktin.is
Snjókoma og hVöSS Sa-átt, fyrSt
SuðVeStanlandS, en hlánar á
láglendi með rigningu eða Slyddu
þegar frá líður.
höfuðborgarSVæðið: HRíðaRVEðuR í
fyRRamálið og SkafREnninguR, En þíða
SíðdEgiS og Rigning.
S-átt og hiti rétt ofan froStmarkS VíðaSt
hVar. Skýjað að meStu, SíSt norðauStan-
landS og SmáVægileg úrkoma.
höfuðborgarSVæðið: dálítill bláStuR og
SkúRiR Eða Slydduél
kólnar aftur með éljum Sunnan- og
VeStantil, en birtir upp norðanlandS
og auStan.
höfuðborgarSVæðið: fRyStiR á nýáRS-
nótt og él Eða Snjómugga lEngSt af
dagSinS.
Væg þíða á gamlársdag
Þessa síðustu tvo daga ársins blotnar í þeim
snjó sem fyrir er, en lítið nær að leysa. Hins
vegar verður stórvarasöm hálka á vegum
þegar nær að gera þíðu. Reiknað er með
slydduéljum á gamlárskvöld á höfuðborgar-
svæðinu og smá blæstri og reyndar víða
um land. Einn helst að það nái að birta vel upp á
norður- og austurlandi. á nýársdag
og jafnvel strax á nýársnótt frystir
aftur. Þá er gert ráð fyrir nýjum snjó
og éljum vestan- og suðvestanlands.
Árið 2012 ætlar að heilsa með
vetrarveðráttu á ný.
0
2 5
1
1
2
1 1
2
3
1
2 4
6
0
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
É g vil að það verði viðurkennt að þetta [kynferðisofbeldi og áreitni] hafi átt sér stað,“ segir Iðunn Angela Andr-
ésdóttir, sem lýsti í viðtali við Fréttatímann
í júní kynferðisofbeldi sem hún upplifði á
sjöunda áratugnum af hendi séra Georgs,
þá skólastjóra við Landakotsskóla Kaþólsku
kirkjunnar. Hún fylgdi í fótspor Ísleifs Frið-
rikssonar sem um miðjan júní sagði frá því
ofbeldi sem hann upplifði innan Kaþólsku
kirkjunnar.
Iðunn hefur fengið bréf frá rannsóknar-
nefndinni sem kannar viðbrögð Kaþólsku
kirkjunnar á Íslandi við ásökunum um kyn-
ferðisbrot og önnur ofbeldisbrot af hendi
fyrrum starfsmanna hennar. Nefndin aug-
lýsti eftir því að þeir sem vildu tjá sig gæfu
sig fram við hana fyrir desembermánuð.
Nefndin hittir á nýju ári hvern og einn og
hlustar á frásagnir þeirra og rök.
„Þetta er, á því sem heitir, á þessu við-
kvæma stigi,“ segir Hrefna Friðriksdóttir
dósent við Háskóla Íslands og nefndar-
maður. Þó nokkrir hafa haft samband við
nefndina eftir birtingu auglýsingarinnar.
„1. desember er svo sem ekki heilagur tími.
Ef einhver hefði samband á meðan við erum
enn að störfum myndum við eflaust tala við
viðkomandi,“ segir Hrefna, sem bendir á að
nefndin eigi að rannsaka viðbrögð kirkjunn-
ar þegar kirkjunnar menn fréttu af ásökun-
unum en ekki rannsaka sannleika þeirra.
Auk Hrefnu skipa Jón Friðrik Sigurðsson,
prófessor við Háskóla Íslands og Háskól-
ann í Reykjavík, og Hjördís Hákonardóttir
nefndina. Hjördís leiðir og á nefndin að
skila skýrslu 1. september en getur beðið
um frest takist henni ekki að ljúka störfum
fyrir tilsettan tíma.
Iðunn Angela segir ofbeldið aldrei hafa
liðið úr minni sínu. Upplifunin hafi verið
ósköp ljót. „Ég var hrædd alla skólagöng-
una. Ég var með magabólgur og stamaði –
var nær mállaus – frá um átta til tólf ára ald-
urs,“ segir hún. Með ofbeldinu var trúnni
rænt frá henni. „Ég er trúuð manneskja en
ekki eins og ég var. Ég hef aldrei getað farið
í Landakotskirkju eftir þetta.“
Hún er þakklát fyrir að málið hafi komið
upp og sé nú skoðað. „Já, ég ætlaði ekki að
trúa viðbrögðunum sem ég fékk eftir við-
talið í Fréttatímanum, sem Þóra Tómasdótt-
ir tók, birtist. Ég verð ennþá meyr þegar
ég hugsa um allan fallega póstinn sem mér
barst.“
Sjá nánar um kynferðisbrot í kaþólsku
kirkjunni í fréttaannál á síðu 20.
Viðtalið við Iðunni má lesa í eldri blöðum
á frettatiminn.is.
gunnhildur arna gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
fjárfestingafélag Hann-
esar gjaldþrota
Fjárfestingafélag Hannesar Smárasonar,
FI fjárfestingar ehf, hefur verið tekið til
gjaldþrotaskipta, að því er fram kemur
í Lögbirtingablaðinu sem mbl.is vísar til.
Félagið, sem áður hét Fjárfestingafélagið
Primus ehf, fékk tvö lán hjá Glitni í lok
ársins 2007. Þau lán standa nú í 4,7 millj-
örðum króna. Í fréttinni kemur enn fremur
fram að Hannes gekkst í 400 milljóna
króna sjálfsskuldarábyrgð vegna lánanna
og fellur hún því á hann þar sem þrotabú
félagsins á ekki fyrir skuldum.
Héraðsdómur hefur þar að
auki staðfest fyrsta veðrétt í
atvinnuhúsnæði Hannesar að
Faxafeni 12 og fimm sumarbú-
staðalóðum hans við Illagil í
Grafningi. -jh
Viðræður
Hreyfing-
arinnar
og ríkis-
stjórn-
arinnar
Þingmenn
Hreyfingar-
innar hafa
undanfarna daga
átt í óformlegum við-
ræðum við oddvita
ríkisstjórnarflokk-
anna um helstu
áherslumál Hreyfingarinnar í stjórnmálum
er lúta að þjóðaratkvæðagreiðslum,
persónukjöri og nýrri stjórnarskrá, að því
er fram kemur í tilkynningu frá þingflokki
Hreyfingarinnar. Þar segir að einnig hafi
verið rætt um stefnu Hreyfingarinnar í
tengslum við aðgerðir vegna skuldavanda
heimilanna, almenna leiðréttingu lána og
afnám verðtryggingar. - jh
þrenn
viðskiptaverðlaun
Samherji hf hlýtur Viðskiptaverðlaun Við-
skiptablaðsins árið 2011. Í áramótablaði
þess kemur fram að tvö síðustu ár hafi
verið Samherja sérstaklega hagfelld
og fjárfestingar félagsins í frakk-
landi, á Spáni og í Kanada hafa þegar
skilað félaginu tekjum. Samherji
hefur einnig aukið bein umsvif sín hér
á landi, nú síðast með kaupum á
úa. Skúli mogensen, eigandi
títan fjárfestingafélags,
var valinn viðskipta-
maður ársins 2011 af
Markaðnum, viðskipta-
blaði fréttablaðsins.
Skúli leiddi hóp
fjárfesta sem standa
að baki hinu nýja flug-
félagi, WOW-Air. Að mati
frjálsrar verslunar er
Eyjólfur árni Rafnsson,
framkvæmdastjóri verk-
fræðistofunnar mannvits,
maður ársins 2011 í ís-
lensku atvinnulífi. -jh
rannsókn kynFerðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar
Ég var
hrædd alla
skólagöng-
una. Ég var
með maga-
bólgur og
stamaði
– var nær
mállaus –
frá um átta
til tólf ára
aldurs.
„Ég vil að brotin
verði viðurkennd“
Iðunn Angela Andrésdóttir, sem segir að séra Georg, þá skólastjóri Landakotsskóla, hafi misnotað
sig til margra ára þegar hún var barn, vill að Kaþólska kirkjan viðurkenni ofbeldið. Iðunn mætir á
fund rannsóknarnefndarinnar á nýju ári. Þó nokkrir bíða fundar með nefndarmönnum.
iðunn angela sagði frá upplifun sinni af kynferðisofbeldi og áreitni innan landakotsskóla kaþólsku kirkjunnar í júní.
4 fréttir Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012