Fréttatíminn - 30.12.2011, Qupperneq 26
Mugison
Árið 2011 er ár
Mugisons sem
límdi sig rækilega
í efstu rjáfur stjörnu-
himinsins. Þjóðin
elskar að elska
Mugison
sem
þakkar fyrir sig
af hógværð og örlæti
með því að halda ókeypis
tónleika í röðum. Þeir
sem komust ekki á
tónleika hans í Hörpu rétt
fyrir jól fengu að hrifast með
beinni sjónvarpsútsendingu
og gleymdu gremju sinni og
svekkelsi yfir því að ná ekki í
miða í hrifningarlosta yfir snilld
Vestfirðingsins ljúfa. Þrjátíu
þúsund eintök af plötunni hans
Haglél hafa rokið út og hann
fékk flestar tilnefningar til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna.
Alls sex. Fyrir plötu ársins, sem
lagahöfundur ársins, textahöf-
undur ársins, fyrir lag ársins
og sem söngvari og flytjandi
ársins. Tök hans á þjóðarsálinni
eru slík að hann myndi mala
forsetakosningarnar í vor færi
hann fram.
Páll
Óskar
Er einhver allra
skærasta
stjarna
Íslands og
afrekaskrá
hans er orðin ansi
löng. Hann var á
fleygiferð á þessu ári.
Tróð upp með Sinfó í Hörpu við
mikinn fögnuð enda fyllti hann
húsið fimm sinnum. Tónleikarnir
komu síðar út á geisladiski og
þeir voru sýndir í sjónvarpinu
á milli jóla og nýárs við álíka
fögnuð áhorfenda og yfir tón-
leikum Mugisons í Sjónvarpinu
skömmu áður.
Rúnar Rúnarsson
Kom, sá og
sigraði með Eld-
fjalli, sinni fyrstu
kvikmynd í fullri
lengd, á árinu.
Myndin var
frumsýnd í
Cannes þar sem góður
rómur var gerður að
henni en Rúnar hafði
áður heillað með
stuttumyndum sínum. Theódór
Júlíusson skaust aftur upp á
stjörnuhimininn með myndinni,
eftir stjörnuleik í Mýrinni, en
hann fer á kostum í hlutverki
manns sem er að komast á
eftirlaunaaldur og á í mikilli innri
bar- áttu. Eldfjall fór
sigurför um kvik-
myndahátíðir víða
um heim og keppir
fyrir Íslands hönd um
Óskarsverðlaunin sem
besta erlenda
kvikmyndin.
Gísli Örn
Garðarsson
Höfðuðpáfi Vesturports-
hópsins held-
ur stöðu sinni á
stjörnuhimninum.
Sigurganga hópsins
er óslitinn
og Gísli Örn
kláraði árið svo
með stæl þegar hann
leikstýrði Hróa hetti,
jólasýningu Konunglega
Shakespeare-leikhúss-
ins, við mikinn fögnuð.
Sveppi (Sverrir
Þór Sverrisson)
Sveppi gefur ekkert eftir frekar
en síðustu ár og flest sem hann
snertir verður
enn að gulli. Hann
troðfyllti bíósali
um langt skeið með
þriðju Sveppa-
myndinni,
Algjör Sveppi
og töfraskápurinn. Hann
seldi síðan vænan slatta
af leikjabók sinni fyrir
börn um jólin.
Ari Eldjárn
Varð á örskömmum tíma einn
vinsælasti skemmti-
kraftur landsins og ekk-
ert lát er á vinsældunum
og eftirspurninni eftir Ara
sem er bókaður langt
fram í tímann. Þá
hefur hann gert
það gott með félögum sínum
í Mið-Íslandi í samnefndum
sjónvarpsþáttum á Stöð 2.
Tobba Marínós
Var blaðakona á Séð og heyrt
þegar hún byrjaði að busla í
Djúpu lauginni á Skjá einum í
byrjun síðasta árs. Þegar
hún stökk upp úr lauginni
var skammt milli stórra
högga og hún átti
tvær metsölubækur
árið 2010, Makalaus
og Dömusiði. 2011 byrj-
aði vel hjá Tobbu
þegar Skjár einn
hóf sýningar á
sjónvarpsþáttum byggðum
á Makalaus. Síðsumars kom
framhaldsbókin Lýtalaus
út og með haustinu byrjaði
Tobba með sinn eigin þátt á Skjá
einum. Þátturinn hét einfald-
lega Tobba og þar tókst henni
að vekja athygli með ýmsum
uppátækjum.
Of Monsters and
Men
Hljómsveitin sigraði Músíktil-
raunir í fyrra og hitti í mark
með sinni fyrstu plötu, My
Head Is an
Animal, á
árinu. Lagið
Little Talks af
plötunni
gerði
það
gott í Banda-
ríkjunum og undir lok
ársins rauk fjögurra
laga plata sveitarinnar,
Into the Woods, upp sölulista
iTunes í Bandaríkjunum og
Kanada.
Gus Gus
Gömlu brýnin sýndu á árinu að
þau eru síður en svo dauð úr
öllum æðum. Sveitin, sem
lengst af var hálfgert
jaðarfyrir-
bæri, sótti
fast inn á
miðjuna
með
plöt-
unni
Arabian Horse á
þessu ári. Sveitin
hélt tvenna útgáfu-
tónleika fyrir troðfullu
húsi og endurtók svo leikinn
aftur skömmu fyrir jól með
frábærum tónleikum.
Gus Gus gerði líka gott
mót þegar kom að til-
nefningum til Íslensku tón-
listarverðlaunanna
og fékk tilnefningar
fyrir plötu ársins,
lag ársins, sem flytjandi ársins
og þrír söngvarar sveitar-
innar, Högni Egilsson, Daníel
Ágúst Haraldsson og Urður
Hákonardóttir, voru tilnefnd
sem söngvarar ársins.
Annie Mist
Þórisdóttir
Þessi 21 árs nemi við Háskóla
Íslands vann hug og hjörtu
landsmanna í
sumar þegar hún
tryggði sér heims-
meistaratitil kvenna
í Crossfit á
heims-
leikunum í Los
Angeles í Kaliforníu. Hún
er einnig Evrópumeistari
kvenna í greininni sem tekur
verulega á þannig að titlunum
landaði hún af miklu harðfylgi.
Verðlaunafé hennar vakti ekki
síður athygli hér heima en titill-
inn en það nam um þrjátíu millj-
ónum íslenskra króna. Þá gerði
Annie Mist styrktarsamning
við íþróttavöruframleiðandann
Reebok - sem hlýtur að teljast
afrek út af fyrir sig.
Hilmar
Guðjónsson
Útskrifaðist frá Leiklistardeild
Listaháskóla Íslands vorið 2010
og er kominn langan veg frá
Frostaskjólinu þar sem hann
hljóp um í hlutverki Rauða
ljónsins, lukkudýrs KR-inga, á
árum áður. Hann var ráðinn
við Borgarleikhúsið eftir
útskrift og
hefur leikið
þar í sýningum
á borð við Of-
viðrið, Nei,
ráðherra!,
Galdra-
karlinum í OZ og
verður í Fanný og
Alexander á sviði
leikhússins í janúar.
Hilmar stóð sig með stakri prýði
í hinni vanmetnu kvikmynd Á
annan veg á þessu ári og í lok
árs var hann valinn í hóp tíu
efnilegustu leikara Evrópu,
Shooting Star. Hópurinn er
kosinn af alþjóðlegri dómnefnd
og verður kynntur sérstaklega
á kvikmyndahátíðinni í Berlín í
febrúar.
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
Heldur sínu striki frá því í fyrra
þegar hún stýrði vinsælum
matreiðsluþætti, smekkfyllti
kökunámskeið
og mokaði út
matreiðslubók
fyrir jólin. Allt
sem hún kom
nálægt
varð að
gulli og þannig er
það enn. Rikka hefur
gert bollakökur að
meiriháttar tískufyrir-
bæri og skyggir nú á sjálfan Jóa
Fel í sjónvarpskokkadeildinni.
Fastar stjörnur
og aðrar á reiki
Frægðarfólkið skín misskært á stjörnuhimninum yfir Íslandi enda er frægð sumra mæld í mínútum og
þær þjóta yfir sviðið eins og halastjörnur og brenna hratt upp. Óhjákvæmilega fara sumar stjörnur
út af sporbaugi og hverfa sjónum eða að skuggi gleymskunnar fellur á þær. Af og til hrapa stjörnur
til jarðar, eins og loftsteinar, og skella svo harkalega að samfélagið nötrar. Nokkrum fastastjörnum
verður hins vegar vart haggað og þær skína skært ár eftir ár. Páll Óskar er sjálfsagt lífsseigasta
stjarna undangengina ára og heldur stöðu sinni þótt Mugison hafi farið með himinskautum á árinu
sem er að líða. Stjarna Egils Gillzeneggers Einarssonar féll aftur á móti með gríðarlegum þunga
eftir að ung stúlka kærði líkamsræktarfrömuðinn og rithöfundinn fyrir nauðgun.
Stjörnur
ársins 2010
Páll Óskar
Egill Gilzenegger
Tobba Marinós
Vala Grand
Steindi
Ólöf Arnalds
Gísli Örn Garðarsson
Sveppi (Sverrir Þór Sverrisson)
Gunnar B. Guðmundsson
Gunnar Nelson
Ari Eldjárn
Hlín Einarsdóttir
Kristinn Hrafnsson
Erpur Eyvindarson
María Sigrún Hilmarsdóttir
Friðrika Hjördís Geirsdóttir
Egill Gilzenegger
Hæsta fall ársins, ára ef ekki
áratuga, en hrap Egils Gilzeneggers
af stjörnuhimninum eftir að átján ára
stúlka kærði hann og unnustu hans
fyrir nauðgun í byrjun desember.
Hvernig sem málið mun þróast er
vandséð að Gillzenegger eigi sér við-
reisnar von og segja má að kjafturinn
á honum og rembutal liðinna ára
hafi gert fallið enn hærra. Og enginn
skortur er á fólki sem hann hefur
stuðað og móðgað sem telur sig nú
heldur betur hafa fundið á honum
höggstað.
Síðasta ár var með þeim betri á
ferli Gillz. Hann hafði meira en nóg
að gera sem einkaþjálfari, varð
fullgildur meðlimur í Rithöfunda-
sambandi Íslands og var fenginn
til þess að hanna Símaskrána – að
vísu við æði misjafnar undirtektir og
hávær mótmæli, einkum úr röðum
femínista og kollega hans í rithöf-
undastétt. Gillzenegger stóð það
þó allt af sér og þriðja bók hans,
Mannasiðir, rokseldist í lok ársins.
Vinsældum Mannasiða ætlaði hann
að fylgja eftir í ár með Heilræðum
en sú bók var nýútkomin þegar
nauðgunarmálið kom upp og hún
sést hvergi á sölulistum vertíðar-
innar. Hrunið í bóksölunni er ágæt
vísbending um að fáir vilji koma
nálægt Gillz og þau
fyrirtæki sem hafa
tengt sig nafni hans
og vinsældum eru í
ímyndarvandræð-
um og í nokkru
fáti að því er
virðist. Þannig
situr Stöð 2
uppi með fokdýra
þáttaröð byggða á
Mannasiðum sem
ráðgert var að sýna í
byrjun ársins 2012 en
þau áform hljóta að
vera í uppnámi eins
og sakir standa.
Auðunn Blöndal
Auddi Blö hefur notið töluverðrar
velgengni í sjónvarpi á liðinum árum
en Auddi hvarf af Stöð 2 á árinu
yfir í ósýnileika útvarpsins þar sem
hann stýrir nú þættinum FMBlö á FM
9.57. Talsvert fall ef haft er í huga að
Auddi hefur verið fastur á sjónvarps-
sviði 365 miðla lengi og hefur þar
fengið að sprella og leika sér með
vinum sínum í alls kyns þáttagerð.
Þannig fóru þeir til dæmis mikinn
við nokkrar vinsældir, Auddi, Sveppi,
Villi Naglbítur og Gillzenegger í
ferðaþáttunum Ameríski draumurinn
þar sem þeir grínuðust á flakki um
Bandaríkin 2010.
Félagar Audda úr Strákunum,
þeir Pétur Jóhann Sigfússon og þá
sérstaklega Sveppi, halda hins vegar
enn sínu striki. Vinir Audda hafa þó
verið duglegir við að hjálpa félaga
sínum með því að mæta reglulega
í þáttinn og grínast með honum í
útvarpið. Einn fastagestanna hjá
Audda var einmitt Gillzenegger
sem hefur nú verið
útlægur ger
frá 365
miðlum í
Skafta-
hlíð.
Stjörnuhröp
26 stjörnukort ársins 2011 Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012
Nýstirni og fastastjörnur