Fréttatíminn - 30.12.2011, Blaðsíða 28
Um kosninguna: 32 einstaklingar sendu inn topp 5 lista. Efsta sæti gaf fimm stig, annað sæti fjögur stig og svo koll af kolli. Þessir tóku þátt : Alísa Ugla Kalyanova (Iceland Airwaves), Anna Hildur
Hildibrandsdóttir (Útón), Arnar Eggert Thoroddsen (Morgunblaðið), Árni Þór Jónsson (Sýrður rjómi), Ágúst Bogason (Rás 2), Ásgeir Eyjólfsson (Rás 2), Benedikt Reynisson (Gogoyoko), Björn
Jónsson (bubbij.123.is), Dana Hákonardóttir (Iceland Airwaves), Dr. Gunni (Fréttatíminn), Egill Harðarson (Rjóminn), Einar Bárðarson (Kaninn), Engilbert Hafsteinsson (Tonlist.is), Freyr Bjarnason
(Fréttablaðið), Frosti Logason (X-ið), Georg Atli (Topp 5 á föstudegi), Grímur Atlason (Iceland Airwaves), Halldór Ingi Andrésson (Plotudomar.com), Haukur S Magnússon (Grapevine), Hildur
Maral Hamíðsdóttir (Rjóminn), Ingveldur Geirsdóttir (Morgunblaðið), Jóhann Ágúst Jóhannsson (Kraumur), Kamilla Ingibergsdóttir (Iceland Airwaves), Kjartan Guðmundsson (Fréttablaðið),
Kristín Gróa Þorvaldsdóttir (Topp 5 á föstudegi), Lilja Katrín Gunnarsdóttir (Séð og heyrt), Matthías Matthíasson (Rás 2), Ólafur Páll Gunnarsson (Rás 2), Ómar Eyþórsson (X-ið), Tómas Young
(Útón), Trausti Júlíusson (Fréttablaðið) og Wim Van Hooste (Icelandic Music Museum).
besta íslenska platan samkvæmt könnun Fréttatímans
Mugison stendur upp úr á frábæru ári
11-12. Of Monsters and Men
My head is an animal 17 stig
11-12. Snorri Helgason
Winter Sun 17 stig
13-14. Ben Frost & Daníel Bjarnason
Sólaris 10 stig
13-14. Low Roar
Low Roar 10 stig
15. FM Belfast
Don’t Want To Sleep 9 stig
16. Samaris
Hljóma þú 8 stig
17. Hellvar
Stop that Noise 7 stig
18. ADHD
ADHD2 6 stig
19-20. Dikta
Trust me 5 stig
19-20. Hjálmar
Órar 5 stig
Mugison
Haglél
54 stig
Sóley
We Sink
46 stig
Lay Low
Brotinn strengur
42 stig
Ham
Svik, harmur og dauði
36 stig
Reykjavík!
Locust Sounds
31 stig
GusGus
Arabian Horse
28 stig
Sin Fang
Summer Echoes
27 stig
Björk
Biophilia
23 stig
Helgi Hrafn Jónsson
Big spring
20 stig
Sólstafir
Svartir sandar
20 stig
- -
Bestu
plötur
ársins
2011
Borgar upp lán
„Það er algjör snilld að selja
svo mikið að maður fái pening
fyrir það,” segir hann. „Maður leit
bara á plötur sem einskonar nafn-
spjöld til að fá fólk á tónleika. Það
var kannski séns að maður fengi
eitthvað út úr tónleikum, það er
að segja ef maður væri einn með
kassagítarinn. Ég er þegar búinn
að greiða upp eitt lán en á eftir að
tækla annað. Geri það fljótlega.
Djöfull verður það gaman.”
Haglél er fjórða meginplata
Mugisons og sú fyrsta sem er
eingöngu sungin á íslensku. Þótt
þakka megi íslenskunni vinsæld-
irnar að einhverju leyti ætlar
Mugison að syngja á ensku næst.
„Það eru einhver eitt til tvö ár í
næstu plötu. Ætli maður skelli
ekki nokkrum lögum í spilun
fyrst og detti svo í plötuna. Það er
skemmtilegt þetta single-format
sem margir eru komnir í. Það
er, að gefa út slatta af lögum þar
til tími er kominn á plötu. Þetta
gekk allavega vel upp hjá mér með
Haglél.“
Mugison er gríðarlega jarð-
bundinn og á ekki von á því að
endurtaka þessa gríðarlegu
sigurgöngu. „Ég held að þetta sé
í síðasta skipti í 20 ár eða eitthvað
sem ég á bestu plötu ársins. Það
verður erfitt að fylgja þessu eftir
og ekki fræðilegur möguleiki að
maður haldi dampi, vinsældarlega
séð. Jafnvel þótt næsta plata verði
góð eða jafnvel betri en þessi.“
Frábært ár
Það komu margar frábærar
plötur út á þessu ári og samtals
voru 42 plötur nefndar í þessari
kosningu. Fast á hæla Mugison
komu tvær tónlistarkonur sem
gerðu framúrskarandi plötur. Hin
unga Sóley Stefánsdóttir varð
í öðru sæti með frumraun sína í
„fullri“ lengd, hina ævintýralegu
We Sink, en Lay Low hampaði
bronsinu fyrir meistaraverkið
Brotinn strengur, þar sem hún bjó
til lög við ljóð íslenskra kvenna.
Í næstu sætum komu tvær rokk-
aðar plötur með hinum endur-
lífguðu og þó nokkuð goðsagna-
kenndu Ham (fyrsta alvöru platan
síðan 1989!) og þriðja plata rokk-
hundanna í Reykjavík!
Sjálf Björk varð í áttunda sæti
með furðuverkið Biophilia og
spútniksveit ársins – Hey! – Of
Monsters and Men eru ásamt
Snorra Helgasyni í 11. til 12. sæti
með frumraun sína.
Auk allra þessara frábæru
platna var árið gleðilegt fyrir
margt annað: Mikil aukning varð
í sölu á íslenkri tónlist, Iceland
Airwaves hefur aldrei heppnast
eins vel og svo opnaði lúxushöll
tónlistarinnar, Harpan, flestum til
allnokkurrar gleði. Áfram veginn
og gleðilegt ár!
Dr. Gunni
J ess! Þetta er bara geðveikt, ég þakka fyrir heiðurinn,“ segir Örn Elías Guðmundsson –
Mugison – þegar honum er tilkynnt að
hann eigi plötu ársins, Haglél. Platan
sigraði í viðamikilli kosningu Frétta-
tímans, sem bransa- og áhugafólk um
tónlist tók þátt í. Óhætt er að segja að
2011 hafi verið árið hans Mugisons. Nú
fara gæði og vinsældir saman svo um
munar, því platan seldist í hátt í 30 þús-
und eintök fyrir jólin, sem er örugglega
einhvers konar met, að minnsta kosti
hvað Örn varðar.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
28 úttekt Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012