Fréttatíminn - 30.12.2011, Side 40
KirKjur á Íslandi – 17. bindið í hinni miklu
og merkilegu ritröð Þjóð-
minjasafns, Húsafriðunar-
nefndar og Biskupsstofu
kom út síðla hausts. Átta frið-
aðar kirkjur í Rangárvalla-
prófastskirkjudæmi eru
grannskoðaðar í þessu bindi
sem sameinar í eitt bygg-
ingarsögu, listasögu, trúar-
sögu og menningarsögu. Rit
úr þessum flokki eru afar
vel unnin, fallega frágengin,
vönduð í stíl og á fallegu
máli, glæsilega myndunnin
og til fyrirmyndar sem prentgripir. Flokkurinn allur
hefur ekki verið metinn að verðleikum en mun standa
meðan pappírinn dugar. Hann hefur alþjóðlegt gildi
því ágrip á ensku fylgir hverjum kafla. Mikilvægt verk
og öllum til sóma sem að því koma. Útgefandi er Hið
íslenska bókmenntafélag. Nánar verður fjallað um
ritið hér síðar.
landnám – ævisaga Gunnars Gunnarssonar
eftir Jón Yngva Jóhannesson
fyllir loks myndina af þessu
höfuðskáldi okkar á fyrri hluta
síðustu aldar, manninum sem
freistaði þess síðastur manna
að gera íslenskum sagnaefnum
skil á danskri tungu. Höfundar
okkar tíma líta mjög til annarra
tungumála en notast þó einkum
við þýðingar. Í Gunnari dragast
saman margir þræðir. Hann
hafði til að bera ríkan metnað
og náði um nokkurt skeið mikl-
um vinsældum sem höfundur, bæði í Danmörku og
eins hér á Íslandi. Ævisagan er stór að vöxtum og ætti
að hleypa nýju blóði í lestur og umfjöllun á verkum
hans. Hún er unnin af nákvæmni, alúð en dregur
hvergi dul á bresti Gunnars og skýrir að nokkru fjar-
veru hans úr vitund okkar og danskra lesenda. Nánar
verður fjallað um ritið hér síðar. Útgefandi er Mál og
menning.
mannvist – sýnisbók íslenskra fornleifa eftir
Birnu Lárusdóttur og fleiri
kom seint út, glæsilegt verk
og merkilegt, ekki síst fyrir
þá sök að hér gefst almenn-
ingi kostur á að fá á einum
stað yfirlit um viðfangsefni
og rannsóknir fornleifa-
fræðinnar hér á landi. Ritið
er skipulega unnið, þar er
litið bæði til eldri rannsókna
og nýrri og lesanda kemur
á óvart hversu vítt er litið;
í þrjátíu og tveimur köflum
verður ljóst að mannvistarleifar hér á landi eru miklu
meiri en mann grunar og fjölbreytilegri. Takist að
koma þeirri þekkingu sem ritið geymir á framfæri
mun það gerbreyta áliti almennings á mikilvægi forn-
leifarannsókna hér á landi. Ritið er læsilegt, aðgengi-
legt, fallega um brotið og stútfullt af ljósmyndum og
skýringarmyndum. Útgefandi er Opna. Nánar verður
fjallað um ritið hér síðar.
morKinsKinna. Í vor kom út fyrsta útgáfa
á þessu merkilega safni
konungasagna sem Þor-
móður Torfason gaf svo
heiti á sínum tíma. Ritið er
með ítarlegum formála en
útgefendur eru þeir Ár-
mann Jakobsson og Þórður
Ingi Guðjónsson. Er verkið
í tveim bindum og tilheyrir
hinni miklu útgáfuröð Hins
íslenzka fornritafélags
sem hófst 1930. Ekki þarf
að ítreka hversu mikilvæg
útgáfa á fornum textum er
bókmenningu okkar. Útgefendur lýsa sögunni sem
„hringsóli um konunga“, tilraunum til að skoða fyrir-
bærið frá nokkrum hliðum og fella inn í hin norrænu
hefð frásagnar. Fjarvera Morkinskinnu sökum lítils
aðgengis hefur lengi háð okkur en nú er hún komin.
Útgefandi er Fornritafélagið.
reisubóK Gúllivers eftir Jonathan Swift
kom út síðla hausts í þýðingu
og útgáfu Jóns St. Kristjáns-
sonar og fellur í metnaðarfulla
röð sígildra þýddra stórvirkja
sem Forlagið tók í arf frá Máli
og menningu. Reisur Gúll-
ivers höfðu mikil áhrif víða um
lönd en í ritinu má sjá skýrar
margar hugmyndir átjándu
aldar í háðulegum meðförum
hins írska höfundar. Þýðingar
sígildra heimsbókmennta
verða seint oflofaðar; merg-
miklar og fullar af uppsafnaðri
visku verða þær hið sanna viðmið okkar tíma þegar
taka skal til hendinni á ritvellinum. Eina hættan við
útgáfu þeirra er að þær týnist í hillunum, öðlist ekki
það langlífi sem til stóð. Mál og menning gefur út.
reyKvÍKinGar – Fólkið sem breytti Reykjavík
úr bæ í borg er mikil ritröð
sem Sögusteinn gefur út í
fjölda binda og litu fyrstu tvö
bindin dagsins ljós á þessu
ári Það er Þorsteinn Jónsson
sem stendur að útgáfunni
en ritið er merkileg tilraun
til að draga saman í eitt ætt-
fræði, byggingarsögu og
staðarsögu sem er miðjuð
frá húsum í Reykjavík árið
1910. Einn helsti akkur verksins er hið gríðarmikla
myndasafn sem höfundurinn hefur safnað um ára-
tugi. Fyrir ættfræðinörda er verkið „möst“, fyrir alla
þá sem vilja vita sem mest um borgarsamfélagið ekki
síðri nauðsyn.
táKnin Í málinu. Sölvi Sveinsson sendi frá
sér uppflettirit um táknmyndir
sem kom upp í daglegu tali,
hverdagsins önn. Í ritið hefur
hann safnað í áratugi og ár-
angurinn er prýðilegt uppfletti-
rit um táknheiminn sem við
hrærumst í. Í stafrófsröð eru
algeng og alkunn sem ókunn
tákn talin upp og gerð grein
fyrir uppruna, merkingu fyrr og
nú, í skilmerkilegum og klárum
texta. Þá er hlaupið í málshætti
og orðtök sem margir hafa á
hraðbergi og táknið skýrt þaðan. Útgefandi er Iðunn.
tunGlið braust inn Í húsið er safn
þýddra ljóða sem hrifið hafa
Gyrði Elíasson og orðið honum
svo hugleikin að hann hefur
ráðist í að snúa þeim á íslensku.
Viðurkenning Gyrðis af hálfu
verðlaunanefndar Norðurlanda-
ráðs fyrr á þessu ári er minni
staðfesting á styrku valdi hans
á ljóðmálinu íslenska en þessi
bók. Fáir ljóðaþýðendur voru
á ferli á árinu en safn Gyrðis
bætir fjarveru ljóðaþýðenda
upp. Frábært safn í fallegri út-
gáfu. Uppheimar gefa út.
Þúsund oG ein Þjóðleið eftir Jónas Krist-
jánsson ritstjóra og ferða-
lang kom út í haust, klædd
í mikinn kassa og diskur
fylgir. Þetta er merkilegt rit
því þar eru dregnar saman
upplýsingar um fornar
og nýrri leiðir ríðandi um
landið. Mikil kort prýða ritið
en skammar upplýsingar
um það sem við sjáum. Þar
verður ferðlangur að bæta
um sjálfur með frekari þekk-
ingarleit. Verkið er markviss
tilraun til að skapa heildar-
mynd af reiðleiðum um
landið. Nú þarf að rekja á
sama hátt gönguleiðir og ákveða bíltroðninga og færa
vegi svo landið allt verði skráð til ferðalaga. Merkilegt
og mikilvægt rit. Sögur gefa út.
40 bækur Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012
bæKur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Bækur ársins Tvö þýdd skáldverk og áTTa fræðiBækur
Í
fimmtugustu og annarri viku kemur upp
úr kafinu að mest seldu bækur ársins voru
tvær íslenskar spennusögur og sænsk
skemmtisaga. Verður seint úr því skorið
hver selst mest því enn er skiladögum
ekki lokið og við lok þeirra verður ekki talið. En,
það breytir ekki því að afþreying var sölumest í
íslenskri bóksölu þetta árið. Skáldsögur, íslenskar
skáldsögur, eru reyndar fyrirferðarmiklar í allri
umfjöllun síðustu mánuði ársins – svo hefur verið
um langt skeið. Í stigveldi bókaiðnaðarins tróna
þær á toppnum. En, þegar litið er yfir allt sviðið
og rakið hvað kom út á liðnu ári og því stillt upp í
einhverskonar merkisflokka kemur niðurstaðan
mér sjálfum á óvart: Af tíu merkilegustu útgáfum
þessa árs er meirihlutinn útgáfuverk annars eðlis,
sum hef ég reyndar ekki ráðist í að ritdæma, ýtt
þeim til hliðar með þeim ásetningi að þær þyrftu
lengri tíma, meiri vinnu. En hér er listi yfir þau rit
íslensk sem ég tel vera merkilegustu minnisvarða
bókaútgáfu liðins árs og er listanum stillt upp í
stafrófsröð.
ÍslensK listasaGa kom út í haust í
fimm bindum.
Tildrög hennar
voru sérstakt
framlag mennta-
og menningar-
málaráðuneytis til
Listasafns Íslands
og var ritstjórn
hennar falin Ólafi
Kvaran. Var síðar
gerður samningur
við Forlagið um út-
gáfuna en að verk-
inu kom fjöldi höfunda. Ritið hefur þegar valdið
nokkrum umræðum, bæði um hlut kvenna og
eins misvægi ólíkra greina innan myndlistar.
Verkið er rúmt um brotið og með miklu mynd-
efni en þar er rakin saga hinna borgaralegu lista
frá lokum 19. aldar til upphafs þessarar. Hvert
bindi kallar á frekari skoðun og verður nánar
um þau fjallað hér á nýju ári. Útgáfan verður að
teljast stórtíðindi öllum unnendum myndlistar.
Merkilegustu minnis
varðarnir í bókaútgáfunni
Árið sem er brátt liðið telst vera stærsta útgáfuár Íslands-
sögunnar, að sögn fróðra manna og vísa þeir til titlafjölda.
Hvaða ritverk standa uppúr þessari stórsókn bóksjúkrar þjóðar
á skóga heimsins?
Í stigveldi
bókaiðnaðar-
ins tróna þær
[íslenskar
skáldsögur] á
toppnum. En,
þegar litið er
yfir allt sviðið
og rakið hvað
kom út á
liðnu ári og
því stillt upp
í einhvers-
konar merkis-
flokka kemur
niðurstaðan
mér sjálfum á
óvart: Af tíu
merkilegustu
útgáfum
þessa árs er
meirihlutinn
útgáfuverk
annars eðlis.
15% afsláttur
Fæst án lyfseðils
N J Ó T U M Þ E S S A Ð H R E Y F A O K K U R
af öllum styrkleikum og pakkningastærðum