Fréttatíminn - 30.12.2011, Qupperneq 42
Víða var mótmælt á árinu. Í september
settust andófsmenn siðspillts fjár-
málakerfis Wall Street í New York að í
Zuccotti-garði á neðri hluta Manhattan.
Mánuði síðar höfðu mótmælin breiðst út
til hundrað borga í Bandaríkjunum og út
um heim. Hreyfingin er heldur sundurlaus
en sameinast í kröfu um aukinn jöfnuð,
betra velferðarkerfi og skikkanlegri við-
skiptahætti. Umsáturshreyfingin vill brjóta
upp vanheilagt bandalag auðmanna og
stjórnmála; en nálega helmingur auðs í
Bandaríkjunum hefur safnast á hendur
aðeins eins prósents landsmanna sem
einnig hefur undirtökin í stjórnmálum.
Heldur hefur fjarað undan hreyfingunni
undangengnar vikur. -eb
Umsátrið um Veggjarstræti
42 heimurinn Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012
Heimsfréttir Árið 2011
Í maí var Dominique Strauss-Kahn, fram-
kvæmdastjóri AGS, handtekinn á svo dramatískan
hátt að reyfarahöfundar stóðu á öndinni. Á
freyðvínsfarrými fyrirmenna í Air France-flugvél
á Kennedy flugvelli í New York, á leið til fundar
við Þýskalandskanslara til að ræða aðgerðir gegn
alþjóðlegu fjármálakrísunni, tók sveit vopnaðra
lögreglumanna hann höndum en Strauss-Kahn
var sakaður um að hafa nauðgað þeldökkri
herbergisþernu á Novotel-hótelinu á Manhattan.
Fram að því var DSK álitinn skæðasti keppinautur
Nicolas Sarkozy í komandi forsetakosningum í
Frakklandi. Dramatíkin í málinu minnkaði ekki
þegar saksóknari hætti við ákæru og ásakanir
komu fram þess efnis að um viðamikið samsæri
væri að ræða. -eb
Skandall ársins
Eftir þriggja ára að-
draganda skall fjár-
málakreppan af fullum
þunga á Evrópu.
Ekki svo ýkja leyndur
galli opinberaðist í
evrukerfinu þegar
svakaleg skuldastaða
nokkurra ríkja í Suð-
ur-Evrópu ætlaði að
ríða hinum unga gjald-
miðli að fullu.
Silfurrefurinn
sigraður
Fyrst voru allra augu
á Grikklandi en svo beindust sjónir áhyggjufullra efna-
hagssveina að Ítalíu. Í báðum löndum tóku embættis-
menn við af lýðræðislega kjörnum leiðtogum. Lukas
Papademos var fenginn til að hreinsa upp eftir George
Panadreú sem hrökklaðist frá í kjölfar þess að hafa boð-
að til þjóðaratkvæðagreiðslu um björgunarpakkann sem
fól meðal annars í sér helmings eftirgjöf skulda. Nokkuð
sem Evrópuleiðtogar sóru að aldrei yrði endurtekið.
Á Ítalíu varð sjálfur silfurrefurinn að játa sig sigraðan.
Í ljós kom að Silvio Berlusconi varði tíma sínum einkum
með ungum vændiskonum í alræmdum Bunga Bunga
veislum á meðan skuldirnar uxu ríkinu yfir höfuð. Við
forsætinu tók hagfræðingurinn Maríó Monti – Súper
Maríó eins og hann er gjarnan kallaður. Í desember
nötruðu stoðir Evrópusambandsins svo enn á ný þegar
David Cameron strunsaði af fundi eftir að leiðtogar allra
hinna ríkjanna 26 samþykktu að auka mjög efnahags-
lega samstillingu evruríkjanna.
Náttúran minnir á sig
Hafi maðurinn talið sig skapara eigin örlaga sló náttúr-
an ítrekað á þá tálsýn á árinu. Í febrúar fórust 65 manns
í jarðskjálftanum í Christchurch á Nýja-Sjálandi. Tæpum
mánuði síðar reið hrina jarðskjálfta yfir norðausturhluta
Japans. Gjöreyðing varð á stóru svæði þegar tíu metra
há flóðbylgja feykti fólki og mannvirkjum langt upp á
land. Kjarnorkuverið í Fukushima rifnaði í sundur svo
geislavirk efni flutu um í eyðileggjandi ólgunni. Í vor
riðu mannskæðir fellibylir yfir Bandaríkin og í haust
gerðu hamfaraflóð víða ógnarusla í Austurlöndum fjær,
svo sem í Tælandi. Náttúruhamfaraárinu lauk með flóð-
um á Filippseyjum núna í desember þegar 650 manns
lágu í valnum. -eb
Nagaðar neglur
Heimsfréttir Árið 2011
heimurinn
dr. Eiríkur Bergmann dósent og forstöðu-
maður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst
eirikur@bifrost.is
Fréttaflóðið 2011
Arabískum harðstjórum var stökkt á bráðan flótta, mótmælendur sátu um Wall Street,
Osama bin Laden var drepinn, Evrópuleiðtogar nöguðu neglur, ungmenni ærðust í Bretlandi,
forstjóri AGS var handtekinn fyrir nauðgun, fjöldamorðingi rændi sakleysi Norðurlanda og
náttúran minnti á mátt sinn.
Í Bretlandi
hefur lengi
verið safnað
í púður
tunnu efna
hagslegrar
örvinglunar
ungs lág
stéttarfólks
sem sífellt
hefur orðið
afskiptara
eftir því sem
óhófsglaum
urinn hefur
glumið
hærra í fjár
málakerfinu
í London.
Ó mögulegt er að saka þann um ýkjur sem heldur því fram að árið 2011 hafi verið viðburðaríkt. Jafn-
vel þótt fullyrt væri að það sé eitt það tíð-
indamesta á okkar tímum – í það minnsta á
svokölluðum friðartímum. Tvær fréttir risu
öðrum ofar; annars vegar arabíska vorið
sem blés hverjum harðstjóranum á fætur
öðrum frá völdum og hins vegar evru-
krísan sem fékk forystumenn Evrópuríkja
til að naga neglurnar langt inn í blóðrautt
holdið. Upptakturinn fyrir komandi for-
setakjör í Bandaríkjunum, Frakklandi og
Rússlandi var einnig sleginn á árinu.
Harðstjórum stökkt á flótta
Árið hófst með látum þegar lýðræðisbylgj-
an, sem kennd hefur verið við arabíska vor-
ið, reis í Túnis og hlykkjaðist svo um hvert
harðstjórnarríkið á fætur öðru. Hrinan
hófst raunar rétt fyrir áramótin þegar ung-
ur götusali í Túnis kveikti í sér í mótmæla-
skyni. Innan við mánuði síðar hrökklaðist
Ben Ali, forseti Túnis, frá völdum eftir 23
ár á valdastóli. Ellefu dögum síðar brutust
mótmælin út á Tahir-torgi í Kairó. Fjöldi
manns lá í valnum áður en Hosni Mubarak
Egyptalandsforseti var stökkt á flótta þann
11. febrúar eftir 30 ár á valdastóli. Bylgja
lýðræðismótmæla hlykkjaðist svo um Mið-
Austurlönd og Norður-Afríku. Muammar
Gaddafí Líbíuleiðtogi þráaðist lengi við
en var loks felldur í heimabæ sínum Sirte
í október eftir 42 ár á valdastóli. Undan-
farnar vikur hafa logar uppreisnarinnar
einkum sviðið einræðisstjórn Sýrlands.
Fleiri fallnir leiðtogar
Fleiri illræmdir leiðtogar féllu á árinu.
Eftir áratugarleit banaði handaríkja-
her Osama Bin Laden að heimili hans í
Pakistan. Nokkru síðar var hinn illræmdi
serbneski herforingi Ratko Mladic, sem
talinn er bera ábyrgð á þjóðarmorði á mús-
límum í Srebrenica árið 1995, loksins tek-
inn höndum. Í Norður Kóreu lést Kim Jong
Il núna í desember. Hann tók við valda-
taumum af föður sínum Kim Il Sung árið
1994 og herti þá enn að sultaról fólksins
sem nauðbeygt skrimtir undir harðstjórn
Kim-fjölskyldunnar. Harðræðið sést best
í hjárænulegri sorgarorgíunni yfir hinum
fallna leiðtoga. Sonurinn Kim Jong-un
tekur nú við valdataumunum. Hungurs-
neyð hefur sest að í landinu og fátt bendir
til þess að nýi leiðtoginn hyggist gera
nokkuð í því. Hungursneyð var raunar
víða að finna á árinu, einn verst í austur-
hluta Afríku, sér í lagi í Sómalíu sem virð-
ist aldrei ætla að losna úr eymdinni.
Hryllingurinn í Útey
Barnslegt sakleysi syfjulegra Norður-
landa hvarf á augabragði þann 22. júlí
þegar hægri öfgamaðurinn Anders
Bhering Breivik varð 77 manns að bana í
skelfilegum fjöldamorðum í stjórnarráðs-
hverfinu í Ósló og í sumarbúðum ungliða-
hreyfingar Verkamannaflokksins í Útey.
Fjöldamorðinginn sagðist berjast gegn
svokölluðum menningarmarxistum og
því sem hann kallaði mengun múslima í
Evrópu. Hann vildi sundra Norðmönnum
en samstaðan á meðal frænda okkar hefur
aldrei verið meiri, svo aðdáun hefur vakið
víða um heim. Jens Stoltenberg skipar nú
sess meðal helstu leiðtoga heims. Margir
tóku andköf þegar Anders Breivik var
úrskurðaður ósakhæfur vegna geðrösk-
unar. En menn skildu þó athuga að aðeins
með því móti er hægt að halda honum bak
við lás og slá um aldur og ævi. Að öðrum
kosti væri ítrasta mögulega hámarksrefs-
ing þrjátíu ár.
Ungmenni ærast
Í Bretlandi hefur lengi verið safnað í púð-
urtunnu efnahagslegrar örvinglunar ungs
lágstéttarfólks sem sífellt hefur orðið af-
skiptara eftir því sem óhófsglaumurinn
hefur glumið hærra í fjármálakerfinu í
London. Logar fjármálakreppunnar náðu
loks að kveikja í tunnunni sem sprakk
núna í ágúst eftir að lögregla skaut til
bana Mark Duggan, 29 ára gamlan íbúa
Tottenham-hverfisins í norður London.
Fjöldi ungmenna af ólíkum uppruna þusti
að lögreglustöðinni og svo fór allt í bál og
brand. Mótmælaaldan barst út í Hackney
og náði til Brixton, Croydon og Lewisham
í suður London, barst þaðan til Ealing í
vesturborginni áður en henni skaut upp í
Birmingham, Bristol, Leeds og Liverpool.
Í ljós kom gapandi menningarmunur
milli ráðandi stétta menntafólks, svo sem
í stjórnsýslu, viðskiptum, fjölmiðlum og
fræðum, og svo þess fjölmenna hóps sem
myndar lægri lög samfélagsins. Svo mikill
að hóparnir skilja vart lengur tungumál
hvers annars.
Hægri öfga-
maðurinn Anders
Bhering Breivik
varð 77 manns að
bana í skelfilegum
fjöldamorðum
í stjórnarráðs-
hverfinu í Ósló
og í sumarbúðum
ungliðahreyfingar
Verkamanna-
flokksins í
Útey. Ljósmyndir/
Nordicphotos Getty-
Images
Slysið í kjarn-
orku verinu
í Fukushima
varð til þess
að áætlanir um
byggingu fleiri
kjarnorkuvera
víða um heim
voru lagðar til
hliðar.
HÁSKÓLINN Á BIFRÖST
Velkomin á Bifröst
www.bifrost.is
Nýir tímar í fallegu umhverfi