Fréttatíminn - 30.12.2011, Side 52
Kvikmyndatímaritið Empire hefur á vef sínum
tekið saman lista yfir 20 bestu myndir árs-
ins sem er að líða og sjálfsagt kemur fáum á
óvart að á toppnum trónir Drive þar sem Ryan
Gosling sýnir stórleik í hlutverki dularfulls
og járngrimms ökuþórs.
Gosling er einnig í ellefta sætinu ásamt
Michelle Williams í myndinni Blue Val-
entine. Sjálfur Tinni kemst ekki lengra en í
nítjánda sætið en fimmta Fast&The Furious-
myndin rekur lestina í því tuttugasta. Sam-
kvæmt Empire má segja að aksturshetjur hafi
átt þetta ár þar sem í öðru sæti er heimildar-
myndin Senna sem fjallar um formúlukapp-
ann Ayrton Senna da Silva.
52 bíó Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012
S herlock Holmes er ein mest kvikmyndaða skáldsagnapersóna kvikmyndasögunnar og mikill fjöldi leikara hefur því brugðið
sér í gervi þessa sérlundaða snillings. Basil
Rathbone sérhæfði sig í Sherlock í nokkrum
myndum upp úr 1940 en menn eins og Chri-
stopher Plummer, Michael Caine og Peter
Cushing hafa tekist á við Holmes í ýmsum
útgáfum. Jeremy Brett gerði Holmes frábær
skil í sjónvarpsþáttum sem sýndir voru í Sjón-
varpinu fyrir rösklega tveimur áratugum og
Benedict Cumberbatch leikur spæjarann í
nýjum breskum sjónvarpsþáttum þar sem Hol-
mes og Watson hafa verið færðir til samtímans
og leysa þeir sakamál í London á öndverðri 21.
öldinni. Og Robert Downey Jr. hefur tekið
léttan snúning á persónu Holmes í tvígang. Í
Sherlock árið 2009 og nú aftur í Sherlock Hol-
mes: A Game of Shadows.
Downey og leikstjórinn Guy Richie koma
að Holmes úr annarri átt en venjulega og gals-
inn í bæði Holmes og myndunum er miklum
mun meiri en gamalgrónir aðdáendur Holmes
hafa átt að venjast. Þessi uppfærsla á Holmes
virkar þó vel hjá Downey og gerir persónuna
aðgengilegri yngri áhorfendum sem ekki hafa
fengið almennilegt Holmes-uppeldi.
Hér er Holmes kærulaus, kaldhæðinn og
snjall en fyrir vikið nokkuð mannlegri en Sher-
lock hefur verið hingað til. Richie og Downey
byggja persónu hans þó á gamla grunninum
frá höfundinum Arthur Conan Doyle og
öllum helstu og skemmtilegustu persónuein-
kennum Holmes er haldið til haga. Hann hefur
til dæmis enn ákaflega gaman að því að dulbú-
ast og bregða sér í ýmis gervi, er frábær hnefa-
leikari og sekkur í djúpt þunglyndi þegar hann
fær ekki að nota ofvirkan hug sinn til þess að
leysa flókin sakamál. Í sögum Conan Doyle var
Holmes beinlínis dópisti og sprautaði sig með
kókaínupplausn þegar honum leiddist.
Í A Game of Shadows mætir Holmes erkióvini
sínum, sjálfum prófessor Moriarty, sem ætlar
sér að koma af stað stríði í Evrópu. Margir
söknuðu Moriartys í fyrri myndinni en þó
mátti vera ljóst að á bak við skúrkinn þar var
einhver ennþá verri. Moriarty er vitsmuna-
legur jafnoki Holmes og jafnvel aðeins klárari
þannig að Sherlock má hafa sig allan við í
eltingarleik sínum við óvininn sem alltaf er
skrefi á undan.
Jude Law endurtekur rullu sína sem Dr.
Watson, hinn hundtryggi aðstoðarmaður Hol-
mes, en nýliðarnir í þessari mynd eru Jared
Harris sem leikur Moriarty, Noomi Rapace
og Stephen Fry. Rapace leikur spákonu sem
flækist í vef Moriartys en Fry leikur Mycroft,
eldri bróður Holmes. Sá kom lítillega við sögu
í bókunum um Holmes og þótti ef eitthvað var
gáfaðari en Sherlock þannig að kappinn er
að þessu sinni umsetinn vitringum sem geta
slegið hann út í greindarvísitölumetingi.
Hasarinn í A Game of Shadows byrjar þegar
austurríski krónprinsinn finnst látinn í London
og hinn glámskyggni lögregluforingi Lestrade
ákveður að um sjálfsvíg hafi verið að ræða.
Holmes sér auðvitað miklu lengra en nef Lest-
rade nær og telur víst að prinsinn hafi verið
myrtur og að morðið sér liður í stóru samsæri.
Eftir örlítið grúsk berast böndin að sjálfum
Moriarty og þeir félagar Holmes og Watson
þurfa að gefa sig alla í æsilegan eltingaleik upp
á líf, dauða og framtíð heimsins við Napoleon
glæpanna.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.8, Rotten Tomatoes: 59%,
Metacritic: 48
frumSýnd Sherlock holmeS: A GAme of ShAdowS
Nýja Sherlock Holmes-myndin, A Game of Shadows, er síðasta stórmyndin sem ratar í íslensk
kvikmyndahús á þessu ári. Myndin kemur í kjölfar vinsælda Sherlock Holmes frá árinu 2009.
Sem fyrr fer Robert Downey jr. með hlutverk Holmes og Jude Law leikur hinn trausta félaga hans
Dr. Watson. Noomi Rapace gengur nú til lið við þá félaga og að þessu sinni mætir Holmes loks
erkióvini sínum, sjálfum Napoleon glæpannna, prófessor Moriarty.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Holmes hittir ofjarl sinn
frumSýnd
Brandarakallinn Jonah Hill, sem síðast gerði
það gott með Brad Pitt í Moneyball, er nú
mættur til leiks í gamanmyndinni The Sitter. Hann
leikur iðjuleysingjann og metnaðarlausa mennta-
skólanemann Noha. Hann býr hjá móður sinni og
gerir helst ekkert annað en að glápa á sjónvarpið
móðurinni til nokkurs ama.
Henni tekst þó að fá letihauginn til þess að gæta
þriggja barna fyrir sig eina kvöldstund svo hún
komist á stefnumót. Noah telur barnapössunina
verða ljúft verk og löðurmannlegt og sér fyrir sér
notalegt kvöld fyrir framan sjónvarpið. Hann á þó
eftir að komast að því all harkalega að þetta er
ekkert grín og fyrr en varir er hann búinn að róta
sér í hættuleg vandræði með börnin í eftirdragi.
Aðrir miðlar: Imdb: 5.5, Rotten Tomatoes: 25%,
Metacritic: 39
Hodejegerne
Nikolaj Coster-Waldau, einn
aðalvondi kallinn í Game of
Thrones, fer hamförum í
hlutverki ískalds skúrksins
og Aksel Hennie er ekkert
minna en frábær í túlkun
sinni á smávaxna lúðanum
sem lærir sína lexíu svo um
munar.
Borgríki
Sleppum öllum málaleng-
ingum og komum okkur
beint að kjarna málsins:
Borgríki Ólafs Jóhannes-
sonar er ferlega flott og
grjóthörð glæpamynd sem
hlýtur að setja ný viðmið
þegar íslenskir krimmar eru
annars vegar.
Klovn The Movie
Þeir félagar nýta sér út í
ystu æsar að vera lausir
undan þeim hömlum sem
sjónvarpið setur þeim
óhjákvæmilega og leyfa
sér að vera svo sjúkir að
þegar maður gengur út
úr bíóinu er manni enn
hlátur í huga þó það að
finnast maður vera svolítið
óhreinn fyrir að hafa hlegið
að vitleysunni fylgi með í
kaupunum.
The Fighter
Hér er boðið upp á allan
pakkann; bræðrabönd í
tilfinningaflækju, ást, reiði,
vonbrigði og von með
nokkrum ógleymanlegum
gæsahúðaratriðum þannig
að The Fighter er alveg 12
lotu mynd.
Mission Impossible:
Ghost Protocol
Allt leikur þetta í lúkunum á
teiknimyndaleikstjóranum
Brad Bird sem skilar ef sér
fjörugustu og skemmti-
legustu hasarmynd ársins,
sem er svo gott sem búið.
- úr dómum Fréttatímans
Öllum helstu
og skemmti-
legustu
persónu-
einkennum
Holmes er
haldið til
haga
empire BeStu myndirnAr 2011
Drive á toppnum
Iðjuleysingi passar börn
Holmes og Watson komast heldur betur í hann krappann þegar illfyglið Moriarty lætur til skarar skríða.
K A K A Á R S I N S 2 0 1 1
Kveðjum árið með stæl!
Svakaleg 190 skota terta!
StrAuSS-kAhn Á leið í Bíó
Depardieu daðrar við Kahn
Sá mistæki, en af og til frábæri leikstjóri, Abel Ferrara
(King of New York, Bad Lieutenant) er byrjaður að vinna að
handriti bíómyndar sem sækir innblástur í kynlífshneyksli
Dominique
Strauss-Kahn,
fyrrverandi for-
stjóra Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins.
Frönsku leikararnir
Gérard Depar-
dieu og Isabelle
Adjani eru sögð
áhugasöm um að leika í myndinni. Depardieu hefur þó ekki
viljað staðfesta neitt í þeim efnum en segir aðspurður að
almennt sé hann mjög góður í því að leika persónur sem
honum líkar illa við eða telji sig ekki líkjast á nokkurn hátt.
Topp 20 samkvæmt Empire:
1. Drive
2. Senna
3. The King’s Speech
4. Harry Potter And The Deathly Hallows – Part 2
5. The Artist
6. Tinker Tailor Soldier Spy
7. True Grit
8. Bridesmaids
9. Rise Of The Planet Of The Apes
10. Black Swan
11. Blue Valentine
12. The Fighter
13. Hanna
14. We Need To Talk About Kevin
15. The Inbetweeners Movie
16. Super 8
17. Incendies
18. The Tree Of Life
19. The Adventures Of Tintin: The Secret Of The Unicorn
20. Fast Five
Ryan Gosling er frábær í hlutverki
nafnlausa ökuþórsins í Drive.
Nokkrar góðar á árinu