Fréttatíminn - 30.12.2011, Qupperneq 62
tíska Útrás í íslenskri fatahönnun
Hljómplötuframleiðendur
brosa breitt þessa dagana því
árið í ár er á pari við árið 2008
hvað varðar sölu á hljómdisk-
um. Salan er 32 prósentum
meiri en árið 2010 og gott
betur því Eiður Arnarsson
hjá Senu segir árið í ár það
besta frá 2008 þó ekki jafnist
það á við bestu árin sem voru
2006 og 2007. „Þetta var mjög
gott ár í útgáfu og auðvitað
snýst salan um diskana sjálfa.
Fólk hafði áhuga á þeirri tón-
list sem kom út á árinu og það
skilaði sér,“ segir Eiður.
Óhætt er að segja að
Mugison hafi borið höfuð og
herðar yfir aðra tónlistarmenn
í sölu því diskur hans Haglél
hefur selst í þrjátíu þúsund
eintökum. Eiður segir að þótt
salan á Hagléli sé aldeilis með
ólíkindum þá standi Mugison
ekki einn undir þeirri miklu
söluaukningu sem menn sjá
frá því í fyrra. „Ef við tækjum
Mugison út úr jöfnunni þá
væri aukningin samt tíu pró-
sent,“ segir Eiður.
Að sögn Eiðs þá seldu þeir
tónlistarmenn sem á eftir
Mugison koma á sölulistanum
jafnmikið og þeir söluhæstu
gera að venju ár hvert. „Páll
Óskar og Sinfó, Of Monsters
and Men og Helgi Björns og
Reiðmenn vindanna eru í
kringum tíu þúsund eintök.
Sem er auðvitað alveg frá-
bært,“ segir Eiður og bætir við
að nýjasta plata Helga Björns
og Reiðmannanna sé sú þriðja
í röð sem fari yfir tíu þúsund
eintaka múrinn. -óhþ
tónlist sala hljómdiska
Söluaukning um þriðjung frá árinu 2010
Viðtökur nýjasta útibús Laundromats,
kaffihúss Friðriks Weisshappel í
Kaupmannahöfn, hafa verið framar
vonum. Staðurinn er við Gammel
Kongevej en beint á móti honum er
kaffihúsið Meyer sem er kennt við
eigandann sem heitir Claus Meyer og
er vinsælasti matgæðingur Dana. Sá
á til dæmis meirihlutann í hinu fræga
veitingahúsi Noma, nokkur önnur
kaffihús þar að auki og bakarí. Meyer
er eins konar danskur Jamie Oliver,
er reglulega með sjónvarpsþætti og
gefur út matreiðslubækur. Laundro-
mat opnaði í byrjun desember það
hristi greinilega upp í Meyer. Rétt
áður en Friðrik opnaði við Gammel
Kongevej gegnt Meyer breytti sá
danski opnunartíma staðar síns. Lýkur
hann nú upp dyrum sínum snemma
dags rétt eins og Laundromat. Bætti
hann líka á morgunverðarseðilinn
beikoni og ýmsu öðru öðru góðgæti,
sem hafði ekki verið þar áður, en er í
boði á Laundromat.
Frikki velgir dönskum matgæðingi undir uggum
Grafarþögn
á uppboði
Grafarþögn eftir Arnald
Indriðason fór á uppboð
í Grikklandi á dögunum.
Fjórir útgefendur börðust
harkalega um bókina
en loks var það forlagið
Metachmio sem bar sigur
úr býtum. Arnaldur er ekki
í slæmum félagsskap
hjá því forlagi því meðal
annarra höfunda forlagsins
eru margir af vinsælustu
glæpasagnahöfundum
Norðurlanda, höfundar
á borð við hinn norska
Jo Nesbo og hin sænsku
Camillu Låckberg, Åsu
Larsson, Hakan Nesser
og Johan Theorin.
Cal-ið hjarta
Söngfuglinn Anna Mjöll
Ólafsdóttir hefur sótt
um skilnað frá öldruðum
og moldríkum eiginmanni
sínum Cal Worthington,
bílasala og fyrrum sjón-
varpsstjörnu. Þau giftu
sig með pompi og pragt í
sumar og létu fortölur um
aldursmun, sem er 49 ár,
sem vind um eyru þjóta.
Ástin spyr nefnilega hvorki
um stétt né stöðu né aldur.
Og þó, því nú hefur Anna
Mjöll sótt um skilnað vegna
óleysanlegs ágreinings
eins og það er orðað í
bandarískum miðlum. Ekki
er vitað hvert ágreinings-
efnið óleysanlega er og
því óvíst hvort hálfa
öldin sem skildi
þau að hafi,
þegar allt
kemur til
alls, verið
orsökin?
Eftir
situr Cal
Worthing-
ton með
brostið hjarta eða kalið
eftir því hvernig menn vilja
orða það.
Íslenska tískuhúsið ELLA er að leggjast í útrás. Viðtökur við fatnaði þess hafa verið góðar.
„Svo nú
þegar eru
konur farnar
að klæðast
ELLU víðs-
vegar um
heiminn“
ELLA sýnir á tísku-
vikunni í New York
519 þúsund til UN Women
ELLA tilkynnti nýlega um styrk sinn til UN Women á
Íslandi en fyrirtækið gaf 1.000 af hverju seldu ilmvatni
til samtakanna. Styrkurinn nam 519 þúsund krónum. „Ég
held að nú sé góður tími fyrir tískuhús sem setur sínar
eigin reglur. Það er ákaflega margt gert í heimi tískunnar
sem fólk hefur lokað augun fyrir. Að geta klætt sig
vönduðum fatnaði sem búinn er til í sátt við náttúruna og
samfélagið hljómar eitthvað svo frelsandi. ELLA gerir það
með því að leggja áherslu á gæði í stað magns, með það
að leiðarljósi að skapa velmegun en ekki fátækt.”
Nánari upplýsingar gefur, Elínrós Líndal listrænn stjórnandi
og eigandi ELLU.
e LLA – nýtt íslenskt tískuhús mun sýna þriðju línuna sína; haust-línuna 2012 á tískuvikunni í New York í febrúar komandi. Sýningin er á vegum ISTOK, sölu- og dreifingar-
miðstöðvar, sem mun jafnframt aðstoða við koma tískulínunni á
framfæri í Bandaríkjunum. Elínrós Líndal er listrænn stjórnandi
ELLU en hönnuður er Katrín María Káradóttir. Lilja Björg
Rúnarsdóttir stýrir klæðskeraverkstæði ELLU, en alls
eru starfsmenn fyrirtækisins sex talsins.
Elínrós segir, í samtali við Fréttatímann, það hafa
staðið til að sýna hjá ISTOK fyrir hálfu ári en hún
hafi þá talið rétt að bíða átekta. „Ég vildi einblína
á heimamarkað og koma öllum ferlum framleiðsl-
unnar í góðan farveg áður en við færum á erlendan
markað með merkið,“ segir Elínrós.
Alek Bimbiloski er eigandi ISTOK en bróðir
hans Risto er yfirhönnuður yfir prjónverki KENZO
og var áður einn af yfirhönnuðum hjá Louis Vuitton.
„Samstarfið með Risto og Alek kom til vegna þess að
þeir eiga framleiðslufyrirtæki í Makedóníu. Risto er
einn af ráðgjöfum okkar hjá ELLU og kom það til vegna
þess að honum líkaði hugmyndafræðin og
hönnun okkar vel. Hann framleiddi hluta
af fyrstu línunum okkar, þá aðallega
handprjónuðu peysurnar okkar
og kasmír-yfirhafnirnar,“
segir Elínrós og bætir
við að fyrirhugað sé að
færa stærri hluta af
vetrarlínu ELLU
til Makedóníu.
„Þar rekur
fjölskylda
Risto lítið
fyrirtæki sem
sinnir nokkr-
um öðrum
hátískumerkjum
í Evrópu. Þar fáum við
persónulega þjónustu. Verk-
smiðjan býður upp á góð gæði,
starfsfólki er greitt í það minnsta
30 prósentum hærri laun en tíðkast
á þessu svæði og aðbúnaður þess er
góður,“ segir Elínrós sem er bjartsýn á
framtíðina.
„Varðandi væntingar um sölu erum
við ágætlega bjartsýn. Íslenski markað-
urinn hefur sýnt það og sannað að það
er markaður fyrir vöru sem þessa. Við
höfum einnig selt vörur okkar í gegnum
heimasíðuna www.ellabyel.com. Svo
nú þegar eru konur farnar að klæðast
ELLU víðsvegar um heiminn.“
Elínrós Líndal og
liði hennar hjá
ELLU gengur allt
í haginn. Ljósmynd/
Aldís Pálsdóttir
Páll Óskar og Of Monsters and Men komu á eftir
Mugison á sölulista ársins.
kg
27
SEK
3
5
7,5
Það er magnaður stígandi í þessari.
Rauðar kúlur með hala sem springa
út í þéttar silfraðar stjörnur, stígandi
ljósagangur sem endar síðan með
miklum hávaða og látum. Ein af
þeim betri.
2
62 dægurmál Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012