Fréttatíminn - 29.06.2012, Síða 18
Hrafninn
Hinn þýski Mesut Özil sló í gegn
á HM fyrir tveimur árum. Ekki
könnuðust margir við piltinn fyrir
mótið en að því loknu var hann á
allra vörum. Hann var keyptur til
Real Madrid í kjölfarið og hefur
verið á stöðugri uppleið síðan.
Özil er leikmaður sem
höfðar til flestra knattspyrnu-
áhugamanna enda er hann
alltaf að reyna að skapa eitt-
hvað; stöðugt vakandi við
að reyna að finna glufur
á vörn andstæðing-
anna. Hann stjórnar
leiknum og skilar
ótrúlegum fjölda
stoðsendinga
(3 til þessa
á mótinu, 24
á síðasta tímabili
með Real Madrid) en
er jafn- framt alltaf
að leita að markinu
sjálfur með snjöllum
hlaup- um í gegnum
varnar- línu andstæðing-
anna. Eitt af viðurnefnum hans
er Hrafninn sem vísar einmitt
til þess hversu klókur hann er og
þefvís á tækifærin.
Özil er ein af stjörnunum í þýska
liðinu en hann er alls ekki týpísk
fótboltastjarna. Hann er ekki sá
sem myndavélarnar leita að eins
og Ronaldo eða Pirlo – á sinn
hógværa hátt keyrir hann þýska
liðið áfram. Hann er kremið á
kökunni í hinni sterku liðsheild
Þjóðverja.
Föli riddarinn
Andrés Iniesta er, líkt og Özil,
ekki alltaf í sviðsljósinu þó sóknar-
leikur Spánverja fari að stórum
hluta í gegnum hann. Reyndar er
spænska liðið þannig mannað
á miðjunni að það er beinlínis
ósanngjarnt að taka einn
leikmann út sem aðalmann-
inn – þó Xavi sé ekki alveg
sami leikmaður
og hann var fyrir
tveimur árum
er hann samt
einn sá besti í
heimi. Og þeir Iniesta
saman, með ekki
ómerkari mann en
Xabi Alonso sér til
full- tingis, leika sér að
hvaða andstæðingum
sem er á góðum degi.
Iniesta hefur
á sinn hægláta hátt verið
lykilmaður hjá Spánverjum;
hann er að allan leikinn og
virðist alltaf eiga nóg inni.
Liðið hefur stundum spilað
framherjalaust og fyrir
vikið hafa miðjumenn-
irnir séð enn meira af
boltanum. Föli riddarinn
hefur blómstrað í því
leikkerfi.
Arkitektinn
Fyrir leik
Englendinga
og Ítala í fjórð-
ungsúrslitunum
virtust flestir á
því að uppgangur
enska liðsins
myndi halda áfram
en andstæðingarnir
yrðu sendir heim með
skottið á milli lappanna. Sú
varð alls ekki raunin. Þó
úrslitin hafi ekki ráðist
fyrr en í vítaspyrnukeppni
voru yfirburðir Ítala slíkir að þeir
ensku ættu að láta það vera að
rifja upp tölfræðina úr leiknum.
Ítalir voru með boltann 64 prósent
tímans og skiluðu 815 sendingum á
móti 320 Englendinga. Aðalmaður-
inn í ítalska liðinu, heilinn, var sem
fyrr Andrea Pirlo. Hann skilaði 117
sendingum í leiknum, fleirum en
miðjumenn Englendinga, Gerrard,
Parker, Milner og Ashley Young,
samanlagt. Til að toppa þetta niður-
lægði hann þá með Panenka-víta-
spyrnu í vítaspyrnukeppninni!
Pirlo hefur oft verið kall-
aður Arki- tektinn
enda hefur hann
ótrúlega yfirsýn og
skilning á leiknum. Hann
er ótrúlega ná-
kvæmur
í löngum
send-
ingum
og mikill
aukaspyrnusérfræðingur
eins og hann sannaði í
leiknum á móti Króötum. Þá
lagði hann upp mörk á móti
Spánverjum og Írum auk
þess að stýra enska skipinu
heim á leið eins og áður er
getið. Pirlo er 33 ára og gæti
átt nokkur góð ár eftir með
félagsliði sínu þó farið gæti
að styttast í annan endann
hjá landsliðinu. Óhætt er
að fullyrða að mennirnir
í brúnni hjá Juventus, sem
fengu hann frítt frá AC Milan
í fyrra, kvarta ekki yfir þeim
viðskiptum.
Vélin
Rétt eins og gamli
félagi hans hjá
Manchester
United, Wayne
Rooney, og erki-
óvinur hans, Lio-
nel Messi, hefur
Cristiano Ronaldo
verið gagnrýndur
fyrir að hafa aldrei sýnt sitt rétta
andlit með landsliði sínu. Þetta
Evrópumót virtist ætla að verða
eins og önnur stórmót hjá Portúgal-
anum þar til Ronaldo vaknaði til
lífsins með tveimur mörkum gegn
Hollendingum í lokaleik riðilsins.
Hann skoraði svo sigurmarkið
gegn Tékkum í fjórðungsúrslit-
unum og virtist loks kominn til að
blómstra á stóra sviðinu.
Ronaldo, eða Vélin eins og
félagar hans í Real Madrid hafa
stundum kallað hann, hefur átt
ótrúlegar þrjár leiktíðir með Real
eftir að hann var keyptur frá Manc-
hester United. Samtals hefur hann
spilað 144 leiki á þessum þremur
árum með liðinu og í þeim lúðrað
inn 146 mörkum. Í deildinni hefur
hann skorað 112 mörk í 101 leik
sem er hreint ótrúlegur árangur.
Samt fellur hann í skuggann
af Leo litla Messi. Ronaldo og
félagar stálu þó Spánarmeist-
aratitlinum af Barcelona í vor
og eftir góða frammistöðu á
þessu móti hugsar hann sér
eflaust gott til glóðarinnar í
keppninni við Messi.
Margir kunna þó að
velta því fyrir sér hvort
Portúgal hefði komist
í úrslitaleikinn ef Ro-
naldo, fyrirliði liðsins
og vítaskytta, hefði tekið fyrstu
spyrnuna í vítaspyrnukeppninni
við Spánverja? Honum var ætluð
fimmta og síðasta spyrnan en áður
en til hennar kom höfðu félagar
Ronaldos klúðrað keppninni.
Hrafninn, Vélin,
Arkitektinn og
Föli riddarinn
Úrslitaleikurinn á EM fer fram á sunnudagskvöld. Mótið fór
fremur rólega af stað en leikar hafa smám saman tekið að
æsast og í heildina hefur þetta verið hin besta skemmtun.
Fjórir miðjumenn hafa staðið sig best allra og hljóta að
koma til greina sem besti maður mótsins.
Andrea
Pirlo
Aldur: 33
ára.
Hjúskapar-
staða:
Kvæntur
Deboruh
Roversi og
saman eiga
þau tvö
börn.
Leikir/mörk:
570/56
Landsleikir/
mörk: 87/10
18 fótbolti Helgin 29. júní-1. júlí 2012
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Mesut
Özil
Aldur: 23
ára.
Leikir/mörk:
248/33
Landsleikir/
mörk: 37/8
Cristiano
Ronaldo
Aldur: 27
ára.
Hjúskapar-
staða: Á
föstu með
rússnesku
fyrirsætunni
Irinu Shayk.
Á tveggja
ára son.
Leikir/mörk:
467/269
Landsleikir/
mörk: 95/35
Andrés
Iniesta
Aldur: 28
ára.
Hjúskapar-
staða: Á
föstu með
Önnu Ortiz.
Saman eiga
þau eina
dóttur.
Leikir/mörk:
462/46
Landsleikir/
mörk: 70/10