Fréttatíminn - 29.06.2012, Síða 36
36 bílar Helgin 29. júní-1. júlí 2012
Þ að er löngu tímabært að endur-vekja Opel á íslenskum bílamark-aði, hann hefur ekki verið fluttur
inn síðan árið 2008. Nú blásum við í
lúðra með opnun sýningarsalar í dag,
föstudag, í Ármúla 17,“ segir Hörður Þór
Harðarson, sölustjóri Opel hjá BL.
Helsta nýjungin hjá Opel er bíll ársins í
Evrópu, Ampera, sem byggður er á sama
grunni GM og Chevrolet Volt sem valinn
var bíll ársins í Bandaríkjunum árið 2011;
rafmagnsbíll með bensínmótor sem er
ljósamótor. Drægni rafmótorsins er 60-
80 kílómetrar en þegar um 30 prósent
hleðslunnar eru eftir fer bensínmótorinn
sjálfkrafa í gang, drífur bílinn áfram og
hleður jafnframt inn á rafmótorinn. Verð
hans verður á bilinu 8 til 8,5 milljónir
króna.
Hörður Þór segir að boðið verði upp
á alla línu Opel: Astra býðst í þremur
útfærslum og
Insignia einnig,
arftaki Vectra,
bíll sem valinn
var bíll ársins
í Evrópu árið
2009. Hörður
Þór segir að
Opel Insignia
sé flottur og
magnaður bíll.
Hann býðst
sjálfskiptur
með 165 hest-
afla dísilvél
og mun kosta
um 5,2 millj-
ónir króna. Þá
verður sjö manna Opel Zafira Tourer á
boðstólum á verði frá tæplega fimm til
rúmlega 6 milljóna króna.
Hörður Þór var áður í fimmtán ár hjá
Toyota og segist því góðu vanur en Opel
bjóði gríðarlega flotta bíla. „Opel hefur
verið í 3.-4. sæti söluhæstu bíla í Evrópu
undanfarin þrjú ár og seldi á síðasta ári
968 þúsund bíla. Við munum flytja bílana
inn í gegnum Danmörku en Danir eru
ákaflega hrifnir af Opel. Ég er búinn að
fara til Danmerkur, skoða og prófa bílana
þar og þeir standa fyllilega undir vænt-
ingum,“ segir Hörður Þór.
Hann segir að fimm bílar verði til sýnis
nú en reiknað sé með stórri sendingu
bíla og meira húllumhæi í kringum mán-
aðamót júlí og ágúst.
Markaðssetning Nýr sýNiNgarsalur í Ármúla
Opel endurvakinn á
íslenskum bílamarkaði
Helsta nýjungin er bíll ársins í Evrópu, Opel Ampera. Astra í þremur útfærslum og Insignia vel búinn,
sjálfskiptur með dísilvél.
Boðið
verður upp
á alla línu
Opel.
TAKE
AW
AY T
ILBO
Ð
56
2
38
38
SUÐURLANDSBRAUT 12 | LAUGAVEGUR 81 BRAGAGATA 38a
16”PIZZ
A
24
95.- með tveim
ur ále
ggju
m
& 12” MA
RGA
RITA
/
HVÍT
LAUK
SBRA
UÐ
2
16”PIZZ
A
34
95.-
af m
atseð
li
& 16” MA
RGA
RITA
/
HVÍT
LAUK
SBRA
UÐ
3
16”PIZZ
A
18
95.-með tveim
ur ále
ggju
m
1
Opel Ampera búinn raf- og bensínmótor, bíll ársins 2012 í Evrópu.
H ekla afhenti síðastliðinn föstudag þúsundasta nýja bílinn á árinu, fyrst um-
boða hérlendis, annað árið í röð,
að því er fram kemur á heimasíðu
þess. Það var Guðrún Sigríður
Magnúsdóttir sem fékk nýjan Audi
A3 og fékk hún blómavönd að gjöf
frá Bjarka Steingrímssyni, sölu-
stjóra Audi, við afhendingu bílsins.
Bjarki Steingrímssyni afhendir
Guðrúnu Sigríði Magnúsdóttur þú-
sundasta Heklu-bílinn á árinu, nýjan
Audi A3. Ljósmynd Hekla
Hekla afhenti
þúsundasta bílinn
á árinu
Hörður Þór Harðarson,
sölustjóri Opel hjá BL.
Nýr sýningarsalur verður
opnaður í dag. Ljósmynd
Hari
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Spennandi
konur
„Kaldhæðinn
stíll Sólveigar
gefur sögunni
myrkt og töffara-
legt yfirbragð.“
K r iS tja na
Gu ðbr a n dSd ó t t ir
dV
„Fínt stöff.“
Pá l l ba l dV i n
ba l dV i nS Son
F r ét tat í mi n n
„Höfundurinn nær
slíku tangarhaldi
á lesandanum
að hann vill alltaf
vita meira og
meira ...“
S Va n H V í t l jóSb jörG
morGu n bl a ðið