Fréttatíminn - 10.08.2012, Blaðsíða 53
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Velkomin í okkar hóp!
Staðurinn - Ræktin
Frábærir tímar framundan!
Sjá nánari upplýsingar og stundatöflu á jsb.is.
Hausttilb
oð!
5 mánuð
ir
á 29.900
til 20. ágú
st
Nú er komið að því að velja líkamsrækt sem skilar þér árangri og auknum lífsgæðum. Við bjóðum fjölbreytta alhliða tíma frá morgni
til kvölds, bæði í opna kerfinu og á lokuðum námskeiðum.
S&S
stutt og strangt
Innritun hafin á öll námskeið í síma 581 3730
Hvað hentar þér?
Ath. Sérstök viðbót fyrir korthafa: áherslumiðaður árangur - 35 mínútna hádegistímar 2x í viku.
Nýir tímar á töflu í opna kerfinu: HOTYOGA
Hausttilboð JSB - 5 mánuðir í opna kerfinu á kr 29.900 til 20. ágúst!
Öllum námskeiðum fylgir frjáls aðgangur að opna kerfinu og tækjasal!
„Ég vil gefa börnum og ungling-
um kost á því að vera fyrsta flokks
menningarneytendur á sínum for-
sendum með fyrsta flokks tónlist-
arfólki og í spennandi umhverfi.
Í framtíðinni hefur þetta vonandi
jákvæð áhrif og sum þeirra stofni
hljómsveitir og láti vaða,“ segir Jó-
hann Ágúst Jóhannsson, aðstand-
andi Pönks á Patró, sem haldið
verður í Sjóræningjahúsinu á Pat-
reksfirði á morgun, laugardag.
Þetta er í fjórða sinn sem Pönk
á Patró er haldið. Að þessu sinni
er það hljómsveitin Prinspóló sem
kemur fram og fetar þar með í fót-
spor Pollapönks, Diktu og Amiinu.
Prinspóló mun stjórna tónlistar-
smiðju á sinn einstaka hátt en svo
heldur hljómsveitin tvenna tónleika
í Eldsmiðju Sjóræningjahússins. Þá
fyrri fyrir börn og unglinga að lok-
inni tónlistarsmiðju og þá seinni
klukkan 21 um kvöldið. Frítt er
fyrir börn og unglinga á tónleikana
sem og í tónlistarsmiðjuna sem
hefst klukkan 13. Tónleikarnir um
kvöldið eru fyrir 16 ára og eldri og
kostar 1.500 krónur inn.
Í fréttatilkynningu frá skipu-
leggjendum segir að Pönk á Patró
gangi út á virka þátttöku barna og
unglinga en þeim gefst kostur á
að eyða tíma með hljómsveit dags-
ins. Tónlistarmennirnir koma til
með að spjalla við krakkana, svara
spurningum um tónlist og sköpun,
kynna fyrir þeim hljóðfæri og tón-
list sína og jafnvel gefa þeim kost á
að spreyta sig. Að lokinni tónlistar-
smiðju verða tónleikar fyrir krakk-
ana. Á meðan á þessu stendur gefst
foreldrum tækifæri til að skoða sig
um á Patreksfirði. Um kvöldið eru
tónleikar fyrir fullorðna en allir
krakkar í fylgd með foreldrum vel-
komnir. -hdm
PrinsPóló á Patró
Pönkað í
fjórða sinn
Svavar Pétur Eysteinsson og félagar
í hljómsveitinni Prinspóló stjórna tón-
listarsmiðju og troða upp á Patreksfirði
á morgun, laugardag.