Fjarðarpósturinn - 20.09.2007, Qupperneq 18
Hafnarfjarðarkirkja var teikn -
uð af Rögnvaldi Ólafssyni arki -
tekt og Guðni Þorláksson var
yfir smiður þegar kirkjan var
byggð árið 1914 og vígð 20. des -
ember sama ár.
Kirkjunni hefur í raun verið
lítið breytt síðan og nú gerir fólk
sig ekki ánægt með það sama og
gert var fyrir nærri heilli öld.
Kolakyndingin er að vísu löngu
aflögð en þá var heitu lofti blásið
um stokka í gólfi kirkjunnar en í
dag er hefðbundið ofnakerfi og
hefur verið mjög misheitt í
kirkjunni enda hefur þak hennar
aldrei verið einangrað.
Nú eru framkvæmdir hafnar
við endurbætur kirkjunnar og
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt
hefur yfirumsjón með fram -
kvæmdunum en Ístak sér um
allar verklegar framkvæmdir.
Að sögn presta kirkjunnar
verð ur skipt um öll gólf kirkj -
unnar og settar hitalagnir í þau,
þakið verður einangrað og mikl -
um tæknibúnaði komið fyrir í
kirkjunna svo hægt verði að
mæta kröfum nútímans. Þegar
gólf kirkjunnar var rifið kom
ýmislegt í ljós og þegar skoðaðar
voru undirstöður undir kórgólfið
prísuðu menn sig sæla yfir því að
það hafi ekki gefið sig t.d. við
altarisgöngu en undir gólfinu var
gamli kolakjallarinn.
Búið er að taka alla kirkjumuni
úr kirkjunni og mörgum þeirra
hefur verið komið fyrir í
Hásölum sal kirkjunnar og
Tónlistarskólans en þar fer
helgihald fram í dag en búist er
við að framkvæmdum verði
lokið áður en fyrstu fermingar
verða um næstu páska.
Nýlega tóku pólskir iðnaðar -
menn niður orgel kirkjunnar en
þangað hafði það verið selt fyrir
litla upphæð en orgelið var illa
farið en verður gert upp og mun
þjóna í pólskri kirkju. Í stað
orgelsins hafa verið pöntuð tvö
orgel, eitt á söngloftið í stað þess
gamla en einnig verður annað
staðsett niðri í kirkjunni.
Allar athafnir verða í Há söl -
um, jafnt helgihald sem brúð -
kaup, útfarir og skírnir.
Kirkjan heitir Hafnarfjarðar -
kirkja en lengst af gekk hún
undir nafninu Þjóðkirkjan í máli
manna enda voru þá bara tvær
kirkjur í bænum, Fríkirkjan og
Þjóðkirkjan.
16 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. september 2007
Fékk 25 ára
Mogga inn
um lúguna
Íbúi við Arnarhraun varð
heldur betur undrandi þegar
hann fékk 25 ára gamalt
Morgunblað inn um bréfa -
lúgun. Blaðið var örlítið
gulnað en annars eins og nýtt.
Fyrirsögnin „Pólskir mennta -
menn mótmæla kúguninni“
vakti grunsemdir og því var
dagsetningin könnuð - 24.
janúar 1982. Varla er þetta
trassaskapur í blaðberanum,
frekar létt grín einhvers en
nágranninn fékk líka gömul
blöð inn um lúguna.
Bílaþjónusta
Magga
Pústþjónusta
Bílaþjónusta
Bónstöð
Opið virka daga kl. 9-18
Opið laugardaga kl. 9-16
Tilboð: (fólksbíll)
Alþrif aðeins kr. 5.495,-
Hraðþrif að utan kr. 1.195,-
Mössun kr. 9.995,-
Hvaleyrarbraut 2
sími 517 0350
Kringlan
Reykjavíkurvegur 74
Suðurlandsbraut 4A
konditori.is 588 1550
Kaffihús og bakarí
morgunverður og hádegisverður
Alhliða veisluþjónusta & salir
!"#
$$
"
%
#$$
&
! " '
555 0888
20% afsláttur
gegn framvísun þessa miða á
virkum dögum til 1. des. 2007.
Taka skal afslátt fram við pöntun
„Þjóðkirkjan“ tekin í gegn
Ný endurbætt kirkja á að vera tilbúin fyrir fermingar í vor
Sr. Þórhallur Heimisson, Guðmundur Sigurðsson organisti og sr.
Gunnþór. Þ. Ingason í „kirkjunni“ í Hásölum.
Prestarnir og organistinn í sundurtættu kirkjuskipinu.
Gamla orgelið fær endurnýjun lífdaga í Póllandi.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n