Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 06.03.2008, Qupperneq 3

Fjarðarpósturinn - 06.03.2008, Qupperneq 3
Þýski sendiherrann kynnir kvikmynd Nýlegar þýskar kvikmyndir sýndar á bókasafninu Fyrsta fimmtudag, kl. 19, í hverjum mánuði verða sýndar nýlegar þýskar kvikmyndir í Bókasafni Hafnarfjarðar. Fyrsta sýning þýska kvik - mynda klúbbsins verður í kvöld en þá verður sýnd þýsk- tyrkneska kvikmyndin Ke bab Connection frá árinu 2005. Myndin vann m.a. áhorfenda - verð laun á Alþjóðlegu kvik - mynda hátíðinni í Ljubljana. Þýski sendiherrann, Dr. Karl-Ulrich Müller, mun kynna myndina kl. 18.30, áður en sýning hefst. Allir velkomnir – enginn aðgangseyrir! www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 6. mars 2008 Fríkirkjan Sunnudagurinn 9. mars Sunnudagaskóli kl. 11 Kvöldvaka kl. 20 með fermingarbörnum og foreldrum. Fermingarveisla í safnaðarheimilinu á eftir. Verið velkomin www.frikirkja.is Tryggðu þína framtíð Hjá Allianz sparar þú í evrum Viðbótarlífeyrissparnaður - tryggir þína framtíð Allianz Ísland hf. | Laugavegur 176 | 105 Reykjavík | 595 3300 | allianz@allianz.is | allianz.is | BYR er eigandi Allianz á Íslandi ÓSTÖÐUGLEIKI STÖÐUGLEIKI Ó ! · 1 12 03 Skákdeild Hauka stóð sig frábærlega í lokaumferð Íslands - móts taflfélaga sem að fram fór um síðustu helgi. Samheldni og barátta Haukamanna var mikil um helgina og skilaði sínu. A-sveit félagsins lenti í 3. sæti eftir hörkukeppni við Skákdeild Fjölnis. Haukamenn sýndu þar og sönnuðu að þeir eiga eitt besta skáklið landsins um þessar mundir. B-sveitin stóð sig einnig vel og lenti í 3. sæti í annari deild. C-sveitin er í 1. sæti í 4. deild, en úrslit liggja ekki fyrir vegna frestaðra skáka, en samt er sveit in örugg með sæti í 3. deild að ári. D-sveitin lenti í 9. sæti og E- sveitin sem að var skipuð að mestu ungum og upprennandi skákbörnum lenti í 26. sæti. Haukar munu því eiga sveitir í öllum deildum á næsta ári. Skákmenn Hauka í þriðja sæti Verða með sveitir í öllum 4 deildunum Henrik Danielsen í þungum þönkum í upphafi skákar. L j ó s m . : H e l g i Á r n a s o n Hafnarfjarðarkaupstaður er 100 ára 1. júní nk. Þann 29. febrúar sl. náði íbúafjöldinn 25 þúsund manns en íbúar í Hafn - arfirði, þegar Hafnar fjörður varð kaupstaður, voru íbúarnir 1.469 eða álíka fjöldi og var á árshátíð bæjarins á Ásvöllum sl. laug - ardag. Fjarðarpósturinn leitar eftir þeim einstaklingi sem hefur búið lengst samfleytt í Hafnar - firði. Látið endilega vita í net - fang ritstjorn@fjardarposturinn.is eða í síma 565 4513. Hver hefur búið lengst í Hafnarfirði?

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.